Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 18
Andrés Straumland var af merkum
breiðfirskum ættum, foreldrar hans voru
hjónin María Gísladóttir frá Auðshaugi í
Barðastrandasýslu f. 23. júní 1868, d. 9.
ágúst 1959 og Jóhannes Jónsson f. í Skál-
eyjum 2. ágúst 1864 og dó þar 22. maí 1918.
Foreldrar Andrésar bjuggu allan sinn
búskap í Skáleyjum og þar fæddist Andrés
og ólst upp á mannmörgu heimili eins og
tíðkuðust í eyjum Breiðafjarðar á þeim
tíma.
Andrés Straumland var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Sólveig Pétursdóttir
ættuð af Vestfjörðum. Pau eignuðust tvo
syni. Annar þeirra dó í bernsku, en hinn
er Jóhannes Marinó sem búsettur hefur
verið á Húsavík. Pau slitu samvistum.
Síðari kona Andrésar sem lifir mann
sinn hér í Reykjavík er Sigrún Pálsdóttir
Straumland hjúkrunarfræðingur. Pau
gengu í hjónaband 24. des. 1934. Dóttir
þeirra er Sigurlaug gift kona hér í
Reykjavík. Pá eignaðist Andrés dóttur á
milli hjónabanda sem heitir Inga og er
gift kona á ísafirði.
Andrés Straumland veiktist af berklum
og var sjúklingur á Vífilstaðahæli í lok
fyrri heimsstyrjaldar, en náði aftur heilsu
og hélt út í lífið.
Fundum okkar Andresar bar fyrst sam-
an á Akureyri rétt eftir 1930. Hann var
þá búinn að vera 3 ár í Kanada, hafði
kynnt sér þjóðfélagsfræði við Oxford Col-
lege í Bretlandi, hafði verið einn vetur í
Ráðstjórnarríkjunum eftir byltinguna
þar, og komið við í fleiri löndum. Hann
var þá orðinn sósíalisti að lífsskoðun og
bjartsýnismaður á framtíð mannkynsins.
Víðlesinn á mörgum sviðum, með fast-
mótaðar skoðanir á heimsmálum sem
mikið voru þá til umræðu.
Pað mátti segja að Andrés Straumland
væri glæsimenni sem dró að sér fólk sem
honum kynntist. Hann var vel meðalmað-
ur á hæð og samsvaraði sér vel. Fríður
sýnum (svipurinn bjartur), ennið hátt og
gáfulegt, augun mild, en gátu þó skotið
eldneistum þegar hann flutti mál sitt af
sannfæringarkrafti. Öll var framkoma
þessa manns fáguð og einkenndist af
prúðmennsku. Það fór því ekki á milli
mála, að Andrés Straumland var vel til
foringja fallinn. Á stofnþingi Sambands
ísl. berklasjúklinga, S.Í.B.S. sem haldið
var að Vífilstöðum dagana 23. og 24.
október 1938 var Andres kosinn forseti
þessa nýja sambands sem átti eftir að
marka mestu gæfuspor þessarar aldar í
heilbrigðismálum íslendinga með bygg-
ingu vinnuhælisins að Reykjalundi. Andrés
Straumland þessi mikli hugsjónamaður
var áfram kosinn forseti S.Í.B.S. á hverju
sambandsþingi á meðan hann lifði.
Á þessum árum þjáðist Andrés oft af
sínum gamla sjúkdómi og þurfti að vera
stundum á sjúkrahúsi eða hæli, en hann
æðraðist ekki og bar sjúkdóm sinn með
mikilli karlmennsku, studdur af sinni
mikilhæfu konu Sigrúnu. Lengst af stund-
aði Andrés þó skrifstofu og bókhaldsstörf
hér í Reykjavík og þótti mjög fær á því
sviði. Eftir að hann varð forseti S.Í.B.S.
þá fór hann margar ferðir hringinn í
kringum landið til að stofna félög til
styrktar hinum nýju samtökum berkla-
sjúklinga og varð mikið ágengt. Hvar sem
hann kom og talaði við fólk þá vann hann
það til fylgis við hin nýstofnuðu samtök.
Einbeitni þessa manns ásamt fágaðri og
prúðmannlegri framkomu opnuðu hon-
um allar dyr. Andrés Straumland þessi
mikli baráttu og hugsjónamaður, hann
lifði þann hamingjudag að vera með í því
ásamt öðrum í stjórn S.Í.B.S. og nokkr-
um velunnurum samtakanna að grafa út
146