Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 32
þá tillögu Bandaríkjanna að þjóðarat-
kvæðagreiðsla undir alþjóðlegu eftirliti
skyldi skera úr um það hvort Sómóza nyti
stuðnings þjóðarinnar.
Alþjóðlegur stuðningur við FSLN jókst.
Costa Rica og Panama viðurkenndu
FSLN og einnig Mexíkó og Venezúela.
í byrjun árs 1979 var það orðið ljóst að
FSLN myndi fara með sigur af hólmi inn-
an skamms ef ekki yrði gripið til meiri
háttar aðgerða til varnar Sómóza.
Carter, sem áður hafði fordæmt mann-
réttindabrot þau sem stjórn Sómóza hafði
á samviskunni, og stöðvað lán og styrki,
reyndi nú að fá OAS til að senda „friðar-
sveitir" til Nícaragúa til að koma í veg
fyrir sigur FSLN.
Bandamaður Bandaríkjanna, Israel,
jók hergagnasendingar sínar til Sómóza
og sendi sérfræðinga í apríl 1979 til að
setja upp nýtt loftvarnakerfi.
Carter veitti nú gegnum Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn 40 milljónum dollara og
skömmu síðar 20 milljónum dollara til
Sómóza til að halda honum við völd. Her-
sveitir Bandaríkjanna við Panamaskurð
flugu með ný vopn til Managua í maí.
Sómóza steypt
Skoðanahóparnir þrír í FSLN höfðu
fylkt sér að baki sameiginlegri hernaðar-
og stjórnmálaforustu í mars 1979 og hófst
nú lokaatlagan gegn Sómóza í júní sama
ár. Brezinski, utanríkisráðherra í stjórn
Carters, lagði til að bandaríski herinn
yrði sendur á vettvang en aðrir ráðgjafar
voru efins.
FSLN myndaði bráðabirgðastjórn og
áttu borgaraleg og sósíaldemókratísk öfl
aðild að henni. Bandarísk sjónvarpsstöð
sýndi hvernig Þjóðvarðlið Sómóza sallaði
niður bandaríska fréttamenn úti á götu og
vakti það mótmælaöldu í Bandaríkjun-
um, sem gerði Carter erfiðara um vik að
senda her til stuðnings Sómóza.
Þann 17. júlí 1979 flýði Sómóza af
hólmi og Þjóðvarðliðið hrundi saman
þegar forsprakkinn var horfinn úr landi.
Efnahagslífíð í rúst
Baráttan gegn ógnarstjórn Sómóza
hafði kostað hátt í 40 þúsund mannslíf og
meira en 100 þúsund höfðu særst og hlot-
ið örkuml. Efnahagslíf landsins var al-
gjörlega í rúst. Sómóza og fylgifiskar
hans ásamt æðri foringjum í Þjóðvarðlið-
inu höfðu flutt fé í stórum stíl úr landi til
Bandaríkjanna þegar þeir sáu að ósigur-
inn var á næsta leiti. Iðnaður og opinber
þjónusta voru nánast úr sögunni þegar
stjórn FSLN tók við. í sveitunum hafði
einnig dregið mjög úr framleiðslunni.
í lok valdatíma Sómóza var opinbert
atvinnuleysi meira en 22 af hundraði.
Meira en helmingur íbúanna var ólæs. í
sveitunum og minni borgum fyrirfannst
tæpast nokkur heilsugæsla né önnur fé-
lagsleg þjónusta.
Skömmu eftir sigurinn lögðu Bandarík-
in niður alla aðstoð við Nícaragúa. í stað-
inn var Nícaragúa undir stöðugum þrýst-
ingi og ógnunum frá Bandaríkjunum.
Eftir að Reagan komst til valda hefur
þessi yfirgangur aukist um allan helming.
Á sama tíma og Kúba og önnur lönd
sendu lækna, kennara og annað sér-
menntað fólk til að aðstoða við endur-
reisn landsins, reyndu Bandaríkin á allan
hátt að leggja stein í götu FSLN.
Bandaríkin neyddu alþjóðastofnanir
eins og Alþjóðabankann og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn til að ganga algjörlega
framhjá Nícaragúa, og reynt er að ein-
angra Iandið frá öðrum löndum í róm-
önsku Ameríku.
160