Réttur - 01.08.1985, Side 13
ur þeirra eru börn, sem oft þjást af
ólæknandi sjúkdómum. Verst er þó að að
meðaltali deyja 90 þúsund manna á dag
úr hungri, — m.ö. orðum 33 milljónir
manna á ári... Athugið svo að á síðasta
ári var um það bil 700 milljörðum dollara
varið til vopnakaupa. Reiknið: Það þarf
ekki nema 2 dollara til að fæða mann á
dag: 700 dollara á ári. Féð, sem varið var
til vopnakaupa, hefði nægt til að bjarga
einum milljarði manna, — þ.e. 30 sinnum
fleirum en hungurdauðinn krafðist.“
Rísa þeir arðrændu og hungruðu ein-
hvern tíma upp frekar en bíða hungur-
dauða — og er auðvaldinu þá ekki ódýr-
ast að beita kjarnorkusprengjum?
Er ástandið svona slæmt af því
mannkynið sé svo fátækt? F*ví fer frjarri.
Mannkynið hefur aldrei verið ríkara en
nú að auð, tækni og möguleikum. Hjá
öllum fremstu iðnaðarlöndum heims er
verið að minnka landbúnaðarframleiðslu,
-— líka hér —, af því hún selst ekki! í
ýmsum iðnaðarlöndum er aðeins 50%
framleiðslugetunnar hagnýtt. Og svo fara
ótrúlegar fjárhæðir í vopnabyrgðir. Það
væru til allsnægtir handa öllum, ef allir
möguleikar væru hagnýttir. Til þess þarf
skipulag á allri framleiðslu í þeim tilgangi
að fullnægja þörfum allra mannanna
barna, — ekki tilviljunarkennt brask í
þeim tilgangi einum að græða á því pen-
inga, — m.ö. orðum: Sósíalisma í stað
kapítalisma.
„Rand Corporation“, sem annast viss-
ar rannsóknir fyrir Pentagon, hermála-
ráðuneyti Bandaríkjanna, lagði nýlega
skýrslu fyrir Pentagon um hvað innrás í
Nicaragúa myndi kosta. Skýrslan sýndi að
innrásin myndi verða Bandaríkjunum svo
dýr, að þau ættu erfitt með að standa við
skuldbindingar sínar annarsstaðar í heim-
inum. — Hvað ef „órói“ yrði í Asíu aust-
arlega á meðan ráðist væri á Nicaragúa
og það tæki mánaðartíma að sigla suður
fyrir Afríku með vopnaútbúnaðinn! Am-
eríska blaðið „Newsweek“ ritar háðslega
um þessi mál: „Til allrar óhamingju fyrir
Bandaríkin, þá eru það fá hernaðarsvæði
í heiminum, sem eins auðvelt er að her-
taka og litla Grenada.“
Þeir fáráðlingar og ofstopamenn, sem
Bandaríkjunum stjórna, vígbúast sem
vitskertir af því vinir þeirra stórgræða á
því. En þeir sjá ekki fram á hvernig beita
ætti þessum vopnum, — sem nægja nú til
að drepa hvert mannsbarn á jörðinni 6
sinnum — nema eiga á hættu gereyðingu
alls mannkyns.
En þeir halda áfram sem óðir væru og
vilja nú fara að vígbúast út í himingeimn-
um líka.
Er ekki tími til kominn að hugsandi
menn á jörðinni taki fram fyrir hendurnar
á þessum vígbúnaðar-ófreskjum og stöðvi
vitfyrringu þeirra áður en það er orðið of
seint?
Við íslendingar gætum gengið á undan
með góðu fordæmi og stöðvað fyrirætlan-
ir manndrápslýðsins er drottnar hér áður
en þeir verða búnir að forheimskva eða
kaupa það mikið af valdamönnum þjóð-
arinnar að eigi verði lengur aftur snúið.
141