Réttur


Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 26

Réttur - 01.08.1985, Blaðsíða 26
í Víetnamskir sósíalistar fagna sigrinum. grunnt. í Bandaríkjunum t.d. leystist hreyfingin gegn Víetnamstríðinu upp — ekki með sigrinum 1975 heldur þegar hætt var að senda hermenn þangað árið 1973. Tímaritið Time segir um þetta ný- lega: „Það sem sennilega skipti sköpum var millistéttaæskan og foreldrar hennar, hávær hópur sem leit á stríðið sem pers- ónulega ógnun — þrátt fyrir það að byrð- ar herþjónustunnar legðust þyngst á syni láglaunafólks.“ í áróðursstríðinu gegn Víetnam hefur þögninni einnig verið beitt með góðum árangri. Þannig veit t.d. meirihluti Bandaríkjamanna í dag ekki hvort Bandaríkin börðust gegn Norður- eða Suður-Víetnam og fjöldinn allur veit ekki einu sinni að Bandaríkin töpuðu. Þessi vanþekking er hættuleg fyrir alþýðu Indókína, — og alþýðu Nícaragúa og E1 Salvador, — og fyrir fátæklinga Banda- ríkjanna 35 milljónir að tölu. Það má leggja þursann að velli betta er sá lærdómur sem Víetnamar kenndu okkur. Og þó að menn „gleymi“ í Washington og þar með í Reykjavík þá er þessi lærdómur þeim mun betur varð- veittur í Luanda, Harare, á vesturströnd Jórdan, — allstaðar meðal alþýðu heims. Jafnvel hér á landi muna menn, það sýnir sig m.a. í stuðningsstarfinu við Mið- Ameríku. Enn skortir þó nokkuð á að við förum að dæmi Víetnama og köstum kan- anum úr landi, hvað þá að vinnandi fólk þessa lands bindist samtökum til að steypa þeim afætulýð, sem mergsýgur þessa þjóð, íslensku auðvaldi. Oft var þörf — en nú er nauðsyn! 154

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.