Réttur - 01.08.1985, Side 48
W
NEISTAR
Viðvörun Þorsteins
„Og opnirðu’ ei sjálf þínum
óvinum frið,
er alt þeirra vindgjálfur búið.
Og alirðu sjálf ekki svikara lið,
er sverðið úr hendi þeim snúið.
Það greinir þér reynsla þín
gömul og ný,
ef gjörvöll þín saga er ei lýgi.
Þú verður að standast í stríðinu
því, —
þú stendur svo Ijómandi að
vígi.“
Þorsteinn Erlingsson 1888.
★
Von Halldórs
„En andi hins fátæka alþýðu-
skálds, sem hinir lærðu höfðu að
eingu og stórskáldin fyrirlitu, hefur
búið með íslensku þjóðinni í þús-
und ár, í fastilju afdalakotsins, í
snauðri verbúð undir Jökli, á há-
karlaskipi fyrir Norðurlandi eftir að
öll mið voru týnd í miðsvetrar-
svartnætti Dumbshafsins, í tötrum
flakkarans sem blundar við hlið
fjallasauðarins á víðikjörrum heið-
anna, í hlekkjum þrælkunarfang-
ans á Brimarhólmi; þessi andi var
kvikan í lífi þjóðarinnar gegnum
alla söguna, og það er hann sem
hefur gert þetta fátæka eyland hér
vestur í hafinu að stórþjóð og
heimsveldi og ósigrandi jaðri
heimsins."
Halldór Laxness: Ljós heimsins
Gegn hernáminu
„íslendingar!
Örlagaríkustu atburðir í sögu
þjóðar vorrar kalla oss til varð-
stöðu um malstað lands vors.
Hernám það, sem ameríska
auðvaldið hefur nú framið, á að
þess hyggju að verða langvar-
andi og leiða tii fullkominnar
undirokunar vor íslendinga
undir Bandaríkin.
Mætið þessu hernámi með
þeirri mótspyrnu einni, sem vér
fámennir og vopnlausir, frið-
samir og frelsisunnandi, getum
veitt.
Standið órofa vörð um tungu
vora, þjóöerni og menningu
gegn þeirri skrílmenningu amer-
íska mammonsríkisins, sem nú
gerir innrás í land vort.
Standið vörð gegn þvi her-
námi hugans og hjartans, gegn
forheimskuninni og þýlyndinu,
sem leppblöðin og leppflokkar
amerísks auðvalds boða, —
því það hernám er öllu öðru
hættulegra.
Aldrei að víkja frá algerum
rétti vor íslendinga einna til að
ráða þessu landi og byggja það
einir og frjálsir!"
Ur „Ávarpi til íslendinga“
frá miðstjórn Sósíalista-
flokksins 8. maí 1951
(daginn eftir síðara her-
nám bandaríkjahers).
★
Heyrt út á götu:
Hvað eru þeir að gera í stjórn,
Grímur og Geir?
Þeir eru að bisa við að smækka
Islendinga niður í eigin smæð.
Skyldi þeim takast það?
Kannski með Kanans hjálp.
Til íhugunar
í Japan hafa Bandaríkin 119
herstöðvar og meir en 50.000
hermenn.
★
i Bandaríkjunum eru þjóðartekj-
urnar 100.000 dollarar á mann á
ári. í Suður-Ameriku eru þær 1500
dollarar á mann á ári. í Mið-Amer-
íku eru þessar tölur undir 500 doll-
urum.
í sumum landshlutum Mið-Amer-
íku deyja 200 af hverjum 1000
börnum á unga aldri, í Bandaríkj-
unum 13. — í Mið-Ameríku er
meðalaldurinn 50 ár, i Bandaríkj-
unum 73 ár.
★
Bandaríkjaher réðst á Grenada
1983 og hertók eyjuna. íbúar eyj-
arinnar eru 100.000. Reagan kvað
þessa eyjaskeggja vera ógnun við
Bandaríkin með sínum 230 millj-
ónum íbúa, voldugasta herveldi
heims. — Engin „lýðræðisstjórn"
Nato mótmælti.
★
Tomas Borge, einn af foringjum
Sandinista, hafði kynnst bæði
fangelsisvist og útlegð í frelsisbar-
áttunni. Eftir sigurinn 1979, varð
hann innanríkisráðherra. Einn
daginn fór hann í fangelsið, þar
sem pyntingaherrarnir nú sátu og
sagði við þá: „ Refsing mín á ykk-
ur verður sú að sleppa ykkur,
hefnd mín sú að sjá um að börn
ykkar gangi á skóla."
★
176