Réttur


Réttur - 01.01.1986, Síða 11

Réttur - 01.01.1986, Síða 11
inu, og þar með hefur borgarsjóður getað sparað fé. Það hefur staðið árleg rimma milli Al- þýðubandalags og Sjálfstæðismanna um þessi mál í borgarstjórn og niðurstaða Sjálfstæðismanna hefur hverju sinni orðið að fresta kerfisbreytingu eitt ár í viðbót. Um byggingar er það að segja, að eng- in nýbygging hefur risið og framlag til nýbygginga á þessu ári er 4Vi milljón. Að mestu er lokið breytingum á fyrrverandi húsnæði Hitaveitunnar í Drápuhlíð fyrir ærinn pening, og þar verður vonandi rek- in heilsugæslustöð þó að húsnæðið sé ekki eins og best verður á kosið. Svona fór með fyrirheitið um eina heilsu- gæslustöð á ári. Nú sækja læknar nokkuð á að fá að reka heilsugæslustöðvar sjálfir, og þeir fara fram á að borgin hjálpi þeim við að fá rekstrarfé frá ríkinu. Viðbrögð ríkis- stjórnar eru óþekkt, þegar þetta er skrif- að en eitt er víst að með einhverjum hætti mun almenningur standa undir fyrirhug- uðum einkarekstri. Byggingasaga B-álmu Borgarspítalans sem ætluð er öldruðum sjúklingum hefur orðið dapurleg á þessu kjörtímabili, og nú árið 1986 ætlar borgin ekki að verja nema 500 þúsund krónum í þessa miklu framkvæmd. Við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar lögðu borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins fram eftirfarandi tillögu: Byggingarframkvœmdir við B-álmu Borgarspítalans voru litlar árið 1985 og ntunu svo til stöðvast á árinu 1986. Mciri- hluti alþingismanna lét sér sœma að skera niður fjárveilingu til þessarar sjúkrastofn- l<nar aldraðra niður í kr. 3 milljónir. Skylduframlag borgarinnar á móti svo rýru framlagi ríkisins er aðeins kr. 530 þúsund. Pó að til sé samningur milli ríkis og Reykjavíkurborgar frá 12. apríl 1984, þar sem gert er ráð fyrir að stefna að verklok- um við B-álmuna 1986, hefur meirihlutan- um í borgarstjórn mistekist að fá fé úr ríkissjóði til að halda áfram við bygging- una með sama krafti og gert var eftir að markvissar framkvœmdir hófust á síðasta kjörtímabili. Nú er svo komið, að óhjákvœmilegt er, að borgin leggi fram fé umfram laga- skyldu á árinu 1986 til þess að firra spítal- ann vandrœðum vegna þeirrar starfsemi, sem þegar er komin í húsið. Sjúkradeildir eru komnar á 5. og 6. hæð og sjúkraþjálf- un er að komast í gagnið á 1. hœð, en eng- in lyfta er í álmunni. Borgarstjórn samþykkir því sérstaka fjárveitingu, að upphæð 7.2 milljónir, til að kaupa lyftur í húsið og koma þeim upp. Um þessa tillögu bókuðu Sjálfstæðis- menn. „Tillaga um framlag til lyftu á þessu ári er sýndartillaga og yfirboð og ekki ástæða til að styðja þá tillögu“. Málefni barna — málefni aldraðra Börnin Fyrri hluta kjörtímabilsins voru fram- kvæmdir við dagvistarstofnanir í algeru lágmarki, en eftir mikinn eftirrekstur minnihlutaflokkanna hafa Sjálfstæðis- menn hert róðurinn síðari árin. Það er ekki vænlegt að leggja út í kosningar nema nokkur bragabót sé gerð í þessum efnum. En það þarf mikið til að vinna upp vanræksluna. Okkar tillaga við af- greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 1986 var á þessa leið: 11

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.