Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 34
Sveinbjörn Guðlaugsson
1902 - 1986
Með Sveinbirni Guðlaugssyni er fallinn í valinn sá maður, er var leiðtogi vöru-
bílstjóra í fræknasta verkfalli, er þeir og aðrir bílstjórar háðu og unnu I stríði við
ríkisstjórn og breska olíuhringi fyrir rúmum 50 árum, í desember 1935.
Sveinbjörn var fæddur í Selvogi 12.
mars 1902, en fluttist til Reykjavíkur
1920, stundaði fyrst sjómennsku um 9 ára
skeið, en gerðist síðan vörubílstjóri á eig-
in bíl. Hóf hann snemma starf í verka-
lýðshreyflngunni og þegar þau tíðindi
gerðust að ríkisstjórn Framsóknar og Al-
þýðuflokks, sem kallaði sig „stjórn hinna
vinnandi stétta“, lagði 4 aura toll á bensín-
líterinn í desemberbyrjun 1935, voru
bresku olíuhringirnir ekki lengi að ákveða
að láta bílstjórana og almenning borga
þann toll og hækkuðu bensínlíterinn úr 32
aurum í 36 aura.
Sveinbjörn var þá formaður „Vörubif-
reiðastjóradeildar Dagsbrúnar“ þegar
þetta gerðist og gerði strax sarnkomulag
við bifreiðastjórafélagið „Hreyfil“ um
verkfall gegn skatti þessum. Hófst það kl.
12 á hádegi 21. desember. Stöðvaðist nú
allur akstur bifreiða, nema sá er félögin
leyfðu.
Stjórnir bílstjórafélaganna ræddu á
öðrum degi verkfallsins við atvinnumála-
ráðherra Aiþýðuflokksins um að setja
hámarksverð á bensínið, en ráðherrann
kvað olíuhringana svo volduga að ekki
væri til neins fyrir ríkisstjórnina að ætla
að segja þeim fyrir verkum.
Gerðu nú bílstjórafélögin samkomulag
við félagið „Nafta“, sem gat þá útvegað
pólskt bensín á nógu lágu verði til að
beygja bresku olíuhringana, ef það fengi
að byggja bensíntank og flytja bensínið
inn. (Nánar er sagt frá þessu í bókinni
„Kraftaverk einnar kynslóðar“, bls. 310-
313.)
Bifreiðastjórafélögin kváðust nú
34