Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 23

Réttur - 01.01.1986, Page 23
Tvær svipmyndir úr 80 ára sögu Dagsbrúnar Um leið og Réttur scndir Dagsbrún sínar innilegustu hcillaóskir og þakkir fyrir áratuga forustu í stéttastríði verkalýðsins, viljum við reyna að draga upp tvær svipmyndir úr sögu hennar. I. 23. júní 1942: Harðskeyttasti sigurinn í skæruhernaðinum mikla Ríkisstjórn íhalds og Framsóknar hafði 8. janúar 1942 sett þau gerðardómslög, er sviftu verkalýðsfélögin frelsi sínu til kauphækkana að viðlögðum stórsektum og fangelsun félagsforingjanna. Sósíalistaflokkurinn svaraði með því að tilkynna og skipuleggja ólöglega bar- áttu „skæruhernaðinn"1, — er lögleg bar- átta var bönnuð, — en í Sósíalistaflokkn- um var þá besta og harðasta forustusveit verkalýðshreyfinginnar. Hófst nú skæruhernaðurinn, hver vinnu- staðurinn var tekinn fyrir á fætur öðrum. Verkamenn stóðu saman sem einn maður 1 írelsisbaráttu sinni og smámsaman sax- aðist á þá vinnustaði, þar sem þrælalögin voru við lýði. Hámarki sínu náði skæruhernaðurinn þann 23. júní 1942, þegar hafnarverka- ■^enn hjá Eimskipafélaginu lögðu niður vinnu, allir sem einn, — fóru af vinnustað og komu ekki aftur. Vinnuveitendafélag- ■ö undir forustu Eggerts Claessens ætlaði að svínbeygja hina vígreifu verkamenn 'tteð því að senda bréf til allra atvinnurek- enda í félagi sínu nieð fyrirmælum uni að taka þessa uppreisnargjörnu verkamenn alls ekki í vinnu. Það voru yfir 300 verka- menn, sem atvinnurekendavaldið þannig bannfærði þennan dag og ætlaði að brjóta á bak aftur. En hin sósíalistíska baráttustjórn Dags- brúnar, er tekið hafði við forustu félags- ins 3. febrúar, svaraði kúgunartilraun at- vinnurekendavaldsins samdægurs með tilkynningu um að verkbann yrði sett á alla meðlimi Vinnuveitendafélgsins, ef bannfæringin yrði ekki afturkölluð sam- dægurs — fyrir kl. 3. Vinnuveitendafélagið varð að beygja sig, hinn voldugi og harðvítugi foringi þess, Eggert Claessen, varð að lúta í lægra haldi fyrir samstöðu hins vígreifa, sósíalistíska verkalýðs Dagsbrúnar. Bann- færingin var afturkölluð samdægurs. Verkamenn höfðu sýnt hvert vald þeir eru, er þeir standa saman, meðvitandi um mátt sinn í krafti þeirrar frelsishugsjónar, er þeir fylkja sér um. Við birtum nöfn þeirra bardagahetja Dagsbrúnar, er bannfærðir voru og brutu bannið í krafti félagsskapar síns, í III. kafia þessarar greinar. Gerðardómslögin voru nú með skæru- hernaði hinna mörgu og samtaka verka- lýðsfélaga, er nutu sósíalistískrar for- ustir, brotin á bak aftur og Alþingi sá sér 23

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.