Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 56

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 56
Allir kannast við Sigfinn á 16 skóm, hinn landskunna vatnsbera Reykvíkinga. Það voru ýmsar manneskjur í þorpum og kaupstöðum um allt land, sem fengust við þennan starfa, að bera vatn. Ég ætla nú að minnast með fáeinum orðum á einn vatnsberann, sem ég þekkti og kynntist um nokkurra ára skeið. Það eru nú um 40 ár liðin síðan ég sá hana Bjöggu gömlu í fyrsta sinn. Mér varð starsýnt á hana, þar sem hún rogað- ist áfram með vatnsföturnar. Klæðnaður hennar var allur hinn nöturlegasti. Gúmmí- skógarma hafði hún á fótum, þríhyrnu á höfði. Pilsgopinn trosnaður og óhreinn, treyjugarmurinn var einnig mjög snjáður. Stundum klæddi hún sig í háleista utan yfir skóna, einkum er sleipt var. En oft vildi verða sleipt í kringum brunninn, ef frost var. Þannig var nú útgangurinn á henni Bjöggu gömlu daglega. Ég sá hana nærri daglega um 15 ára skeið og alltaf eins klædda. — Hún Bjagga gamla var ekki margmál, en ansaði þó glaðlega, ef á hana var yrt. Hún sást venjulega á ferli um götur þorpsins frá því fyrir hádegi og langt fram á kvöld. Hún bjó ein í ofurlitlum timbur- skúr, innarlega í þorpinu. Kofinn var rétt niðri á sjávarkambinum. Fyrir neðan var stórgrýtis fjara. Þegar hvasst var, eða brim var, heyrðist þungur niður, þegar hafaldan skall á fjörusteinum. — Þetta surg gerði slíkan hávaða að aðkomufólk sem svaf í húsum á sjávarkambinum, gat ekki sofið. En íbúar þorpsins létu þetta ekki á sig fá. Þeir voru þessu svo vanir. Þetta verkaði á þá eins og rokkhljóð, sem mörgum fannst í gamla daga svo gott að sofna við. Það sást aldrei reyk leggja upp úr reykháfnum á kofanum hennar Bjöggu. Aldrei vissu menn til að hún keypti neitt í verslunum, enda kannske átt fáa aura til að kaupa fyrir. Þó voru það allmargir, sem gáfu henni aura fyrir vatnsburðinn. En enginn vissi til að hún keypti nokkurn tíma nokkuð. Hún var alltaf í sömu fötunum, að því er virtist, en þegar þau biluðu, hefur hún líklega fengið einhverjar notaðar flíkur gefins hjá góðhjörtuðu fólki. — Menn voru stundum að undrast hvernig hún Bjagga gamla héldi starfskröftum, þar sem hún keypti aldrei neitt matarkyns. Ekki svo að skilja að henni væri ekki boð- inn biti í húsunum, sem hún kom í, er hún var að sækja vatnið, — en mat þáði hún næstum aldrei. Ef henni var boðinn biti sagði hún oftast: „Nei, þakka þér fyrir. En áttu ekki kaffisopa? Er ekki heitt á könnunni?“ Hún drakk þau ósköp af kaffi að undrum sætti. Það var sama í hve mörg hús hún kom, — aldrei neitaði hún kaffi. En aldrei vildi hún neitt með kaffinu, nema sykur og mjólk. — Menn ályktuðu að hún lifði næstum eingöngu á kaffi. Marga langaði til að gleðja hana, eink- um fyrir hátíðar, þar sem sýnt var að hún hugsaði lítt um matargerð og keypti aldrei neitt. — Þeir bjuggu stundum út matar- pinkla handa henni, hangikjöt, svið og þessháttar góðgæti, og ætluðust til að gamla konan hefði þetta fyrir sig yfir há- tíðisdagana. Hún þakkaði hlýlega fyrir sig, gamla konan, tók pakkann. — En fólk sá brátt að þetta var tilgangslaust, því venjulega skildi hún pakkann eftir einhversstaðar á leið sinni um þorpið. Og gjöfin kom því að litlu haldi. Aldrei vissu menn til þess að hún Bjagga gamla hleypti neinum inn í kof- ann sinn. Hún hafði hlaðið nokkurs konar garð umhverfis kofann, tínt steina upp úr fjörunni og hlaðið upp með veggjunum. 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.