Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 19

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 19
leiðslu, hugsunarháttur okkar, tilfinn- ingalíf og lífsskoðanir. í ágætri grein í Þjóðviljanum fyrir skemmstu, sem höfundurinn, Bríet Héð- insdóttir leikkona, kallar sjónvarpsvaðal af hæversku sinni, spyr hún lesendur eftir- farandi spurninga: „Erum við betur upplýst en áður fyrir tilverknað sjónvarpsins — um aðrar þjóðir, lönd þeirra og siði, sögu og menn- ingu, unr náttúruna, sköpunarverkið allt, himingeiminn; fylgjumst við betur en áður með framvindu heimsmála og ís- lenskra stjórnmála; hefur það örvað gagnrýna hugsun okkar, skerpt fegurðar- skyn okkar; er mannlíf á Islandi fjöl- hreyttara, skemnrtilegra, göfugra, við sjálf menntaðri, víðsýnni, umburðarlynd- <tri og pólitískt þroskaðri þjóð en áður en við nutum þess? Hefur sjónvarpið gert okkur að betri manneskjum?“ Svo mörg eru þessi orð Bríetar. Og ég kem þessum spurningum hennar hérmeð á framfæri við ykkur, sem nennið að hlusta á mig. Ég bið ykkur að íhuga þær vandlega og reyna að svara þeim, í hvert s'nn, sem þið horfið á sjónvarp. Þetta er ekkert smámál. Bríet heldur því fram, að sjónvarpið hafi nú á því herrans ári 1985 ■heiri áhrif á almenna menntun okkar en aHir skólar landsins til samans. Og ef við svo bætum við öðrum fjölmiðlum, útvarpi °g dagblöðum og áhrifum þeirra á okkur, eg tala nú ekki um allar spólurnar og ^hyndböndin, þá held ég að það sé varla °frnælt, að hugsunarháttur okkar, tilfinn- 'hgalíf og skoðanir eru fjöldaframleiðsla, sem við sjálf höfum tekið harla lítinn þátt '■ I vímu þessarar framleiðslu lifum, hrærumst og erum vér. Nú er hægt að svara því til, að hér ríki ’hálfrelsi og ritfrelsi, fjölmargar skoðanir homi franr í fjölmiðlum og það sé neyt- andans að velja og hafna. Og þetta spjall mitt, sem er með öllu óritskoðað, sé besta dæmið um það. Ekki verður því neitað, að margt ágætt efni hefur verið flutt bæði í útvarpi og sjónvarpi. En sannleikurinn er sá, að þetta kafnar í síbyljunni, sem á okkur dynur alla daga ársins og er í grundvallar- atriðum og að því er tekur til margs þess, er mestu skiptir um líf okkar allra, næst- um öll á eina leið. Þrátt fyrir allt, sem á milli ber, leggjast öll dagblöðin á eitt til þess að móta lífs- viðhorf okkar, þótt mörgum virðist annað í fljótu bragði. Munurinn á Morgunblað- inu, DV, Alþýðublaðinu og NT er harla lítill. Lengst af hefur Þjóðviljinn skorið sig úr. En satt að segja hefur mjög dregið saman með honum og öðrum blöðum nú um langt skeið, t.d. í alþjóðamálum. Þeg- ar Morgunblaðið sakar Þjóðviljann um kommúnisma og sovétvináttu, þá held ég að það sé óverðskuldaðasta ásökunin, sem nokkrum andstæðingi hefur verið borin á brýn í allri stjórnmálasögunni. Þjóðviljamenn eru að vonum sárgramir yfir svona fjarstæðum og ósvífnum áburði og fátt er auðveldara en að hrekja hann með tilvitnunum til fjölmargra greina blaðsins, sem skrifaðar hefa verið af heitu hjarta um árabil. En ekkert dugar. Það er aðeins til eitt ráð til þess að þvo af sér þennan blett: Að hætta að vera málsvari fyrir hagsmuni verkalýðsins, minnast aldrei á umbreytingu þjóðfélagsins í sósíalískt horf og hætta öllu andófi gegn amerískum herstöðvum. Samstilltur áróður og furður vorra daga Þetta, sem ég hef nú sagt um samstillt- an áróður fjölmiðlanna, skýrir margar 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.