Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 44

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 44
þeim mun fjarlægari sem hraðinn var meiri, stéttirnar fleiri, sléttari og áferðar- fegurri til að sjá. Mennirnir tveir stóðu þarna á stétt og töluðust við, um stéttir. Það var ekki langt á milli þeirra, aðeins nokkur skref, þó var eins og heill mannsaldur stæði á milli þeirra í skilningi og viðhorfum. Ungi maðurinn hélt á pappírunum sínum og heiðríkjan skein úr augum hans. Erfið- ismaðurinn studdist við hnallinn, horfði á vegfarendur og þó ekki, heldur yfir þá og út í heiminn, hann var aö hugsa um lífið. Við hérna erum í akkorði, sagði hann og ekki tjóir að slóra. Hann yrði að ná meiru en meðalafköstum. Klippt og skorin ákveðin upphæð fyrir lagðan fer- meter af heilum en aldrei gert með hve vinnan við undirlag og þjöppun gat verið mismikil. Akkorðið, já, fjárans áreiti, furðulegt hvernig það gat ýtt manni áfram að vinna. Rétt eins og maður væri ekki orðinn þreyttur að afloknum sínum lög- bundna vinnutíma. Við, sagði ungi mað- urinn og ósjálfrátt fann hann til samúðar með öllum heimsins róttæklingum. Við, erum nú kannski ekki allir eins nema í því að vilja tala hispurslaust við fólk — vinnufólk og reynum að hafa áhrif á það. Finnst þér kannski letrið of smátt í Stétta- baráttunni og helst til stórkallalegt á Neista. Líka ertu alveg sjálfráður hvort þú kaupir þessi upplýsingarit um samtíma viðburði, ekki ætla ég að neyða þig til eins eða neins. Námslaun hefur mér ekki tekist að krækja í þó ég hafi veriö að flögra þetta í öldungadeildinni, hcld reyndar aö þau tíðkist aðeins í kommúnistaríkjunum. En hvað sem því líður, hef ég lifað á sumar- vinnunni og bútung sem ég dró á trillunni hans afa fyrir vestan. — Kemur saman og heim. Þið fylgist vel með þeim þarna hin- um í öðrum löndum. Snasið upp hvert til- vik og atburð frá stórþjóðum, dragið í sarpinn og heimtið það sama. Slíkur er mátinn og ætlist sjálfsagt til námslauna og styrkja. Þú ert svo sem nógu heiðskír á svipinn, ekki vantar það. Ef til vill bráð- saklaus að vestan. En hvað ertu að láta véla þig í þetta blaðaráp? Væri ekki nær að fá sér vinnu, hafa sig upp, eiga minnsta kosti fyrir skjólgóðri flík. Norpandi ber- hálsaður á lélegum skóm. Já, þú ert hissa, en ég bogra svo mikið við hellurnar. Sé þar af leiðandi meir af skóm sem fram hjá mér fara, en andlitum sem þó máski þykjast ráða ferðinni. Tala hispurslaust segirðu — hvern fjandann heldurðu að það þýði svo sem. Ræð ég þá til að mynda nokkrum sköpuðum hlut með þessar stéttir nema rétt aðeins yfirborðinu og illa það. Trúlega eru þín áhrif ekki mikil heldur, síst á Spáni eða Portúgal og varla færð þú eða aðrir hér námslaun. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.