Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 47

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 47
Benediktsson hóf að gefa út „Dagskrá“, er kom út 1896 til 1898 og flutti margar greinar um jafnaðarstefnuna, eins og Sverrir Kristjánsson rakti í grein sinni „Frá Dagskrár-árum Einars Benedikts- sonar“2. Og sömuleiðis eru 90 ár síðan Þorsteinn Erlingsson hóf ritstjórn sína á >,Bjarka“ á Seyðisfirði (1896 til 1900) og síðan á „Arnfirðingi“ (1901-1903) og þótt atvinnurekendur stæðu að þeim blöðum, þá fluttu þau margt um sósíal- isma. — Og „Sjá hin ungborna tíð“ Ein- ars Benediktssonar, — sem verður langa tíð söngur sósíalista — birtist 1897 í „Sögur og kvæði“ Einars sem nú er næsta sjaldgæf bók. En „Brautin“, hið fræga kvæði Porsteins, orti hann 1895 og birtist síðan sem upphafskvæði „Eimreiðarinn- ar“ 1896 og svo í fyrstu útgáfu „Þyrna“ 1897. Samvinnuhreyfingin byrjar og útgáfu sína um sömu mundir: „Tímarit kaupfé- laganna“ undir ritstjórn Péturs Jónssonar frá Gautlöndum byrjar 8. maí 1896. Er Skúli Thoroddsen einn af þeim fulltrúum, er saman koma og standa fyrir stofnun Þessa sambands og tímarits. Hann var fulltrúi Kaupfélags ísfirðinga. Um sjálfa verkalýðshreyfinguna skal vísað til rits Ólafs Rafns, en Bárufélögin, Prentarafélögin og fyrstu verkalýðsfélög- ln hefja göngu sína á síðasta áratug 19. uldarinnar. Benedikt á Auðnum byrjar og um þess- ar mundir í bréfum sínum og skrifum að boða samvinnustefnu og sósíalisma, svo undiraldan er all víðfeðm. Hefur Sveinn Skorri Höskuldsson gert góða grein fyrir starfi Benedikts í þessum efnum í út- vurpserindum sínum. Sjálft þjóðskáldið okkar Matthías Joch- umsson lýsir sig sem sósíalista í greininni, er hann ritar í „Stefni“ á Akureyri 10. des. 1896 við dauða William Morris. Er sú grein birt í „Rétti“ 1952 undir fyrir- sögninni „Skáldið William Morris“. Hin sterka undiralda sósíalismans nær á þessum árum til margs þess besta og göfug- asta, sem ísland á. Er 20. öldin hefst, færist æ meira líf í hina vaknandi sósíalistísku hreyfingu á íslandi. Árið 1904 hefur Þorvarður Þorvarðs- son, formaður og stofnandi „Hins ís- ienska prentarafélags“ útgáfu fyrsta tíma- ritsins, sem fyrst og fremst er helgað sós- íalismanum: „Nýja ísland“. Birtir það jafnt harðar ádeilur á ranglæti þjóðfélags- ins sem fræðandi greinar um sósíalismann erlendis. Porvarður var og formaður Verkamannasambands íslands, er það var stofnað 29. okt. 1907. Um þessar sömu mundir stóð Porvarð- ur og að útgáfu blaðsins „Reykjavík“, sem Jón Ólafsson var ritstjóri að. Varð það víðlesnasta blað landsins. Tók Jón þar máistað verkamannasamtakanna, er þau börðust fyrir kauphækkun og deildi hart á iandshöfðingja og yfirvöld, er þau sviftu Þorstein Erlinngsson þeim litla styrk, er hann hafði haft frá Aiþingi. Hef- ur Gils Guðmundsson gert góða grein fyr- ir þessum atburðum í ágætum útvarps- erindum sínum um Jón Ólafsson. Verkalýðshreyfingin eflist. Félög, er dáið höfðu út, rísa upp aftur og lifa og dafna þaðan af. 1907 mynda þau „Verka- 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.