Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 31

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 31
mýkt náttúru lands vors viö sögu og minningar hennar, harmleikir hennar og reisn, á einhverjum tilfinningaríkasta og rismestu táknmáli tungu vorrar. Frá honum berast oss „Úr landsuðri“ einhver heitustu, dýpstu og hjartnæmustu Ijóð tungunnar, — ákall gests á framandi strönd til þjóðar í andlegum nauðum, — rödd útlagans, sent yfirstétt hataði og hrasddist, af því hann elskaði það land svo heitt sem hún vildi selja og fórna. •lón Helgason var einn af þeim, sem gerði reisn íslands á þessari öld slíka um áratugi, að land vort varð „stórveldi andans“ á jörð þessari, er valdagirnd auðjöfra hótar að tortíma. En samtímis taka þau lítilmenni völd hér, sem eru að ofurselja fósturjörðina í æ ríkara mæli í helgreipar Mammonsríkis Ameríku og feyna að smækka þjóðina svo hún sætti s'g, þýlynd orðin, við þjónshlutverk hermangarans. Jóni Helgasyni sveið að hugsa til þess hlutskiptis, er þjóð vorri þá væri ætlað, ef sú aðför að anda hennar og sál tækist. (Sjá bls. 33). Og hann húðstýkir jafn- hliða þjóðsvikunum trúhræsnina, sem vex 1 réttu hlutfalli við Mammonsdýrkunina °g andkristilegt stjórnarfar með þessum °rðum: „Ef allt þetta fólk fær í gullsölum himnanna gist sem gerir sér mat úr að nugga sér utan í Krist, þá hlýtur sú spurning að vakna hvort mikils sé misst ef maður að síðustu lendir í annari vist.“ Jón Helgason er kominn heim úr ævi- langri útlegð. Jötuninn við Lómagnúp hefur kallað anda hans heim til fósturjarðarinanr, inn í hið helga fell íslensks skáldskapar, ís- lenskra erfða. Þar munu eigi aðeins fagna honum „hans liðnir afar“, heldur mun og hljóma þaðan til íslensku þjóðarinnar kuldaleg rödd hans og djúp, ilja komandi kynslóðum — gefa þeim þrótt og þor, áminna þær um að gæta arfs síns og lífs, þegar „helkuldi myrkrar grafar“ ógnar þeim herteknum frá auðsins þrælum. En ljóðin hafa áður leyst þjóð vora úr fjötrum. Ljóð Jóns Helgasonar munu eigi aðeins ilja komandi kynslóðum um hjartaræt- urnar, heldur og hjálpa til að bjarga anda þeirra og veita þeim að nýju íslenska reisn, — ef þýjum auðsins tekst ekki að tortíma þessari þjóð vorri, sem hingað til hefur lifað af allar ógnir elds og ísa, arð- rán og spillingu erlendra drottna. „Jötuninn stendur með járnstaf í hendi jafnan við Lómagnúp“ og kallar oss alla með röddu Jóns Helgasonar til að duga sem menn, sem íslendingar til að frelsa landið, sem hann unni og helgaði allt líf sitt og starf. E.O. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.