Réttur


Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 26

Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 26
Þegar svo Dagsbrúnarfundur var boö- aður í apríllok, vissi ég að sumir hinna róttækustu í flokknum hvöttu verkfalls- verðina tii að koma á fundinn og fella samningana. Eðvarð hélt langa og svo sannfærandi ræðu á þessum afar fjöl- menna fundi að einróma að heita má var fallist á að semja um það, sem hér er frá skýrt og síðan samið 28. apríl. Eðvarð skilgreindi þessa mikilvægu baráttu alla í 1. maí ræðu sinni, sem prentuð er í „Rétti“ 1955, bls. 23-29, undir fyrirsögn- inni: „Sigurinn sem vannst“. Það var deilt hart um þessi mál á fundi Sósíalistafélagsins nokkrum dögum síðar. Ég man að ég svaraði þá hinum hörðustu og róttækustu félögum okkar, sem staðið höfðu vel á verkfallsvörslu og báru okkur nú undanlát og jafnvel svik á brýn, eitt- hvað á þessa leið: „Félagar, ef við biðum það lengi, að þið, harðasti kjarninn, væri farinn að segja: nú verðum við að semja, — þá væri slíkur uppgjafartónn sam- stundis kominn á vitorð atvinnurekenda og þeir sæju að nú væri um að gera að halda áfram: verkfallsmenn væru að gef- ast upp. Við verðum alltaf að semja þegar styrkur okkar pólitískt og andlega er mestur og brotalöm ekki til.“ Dagsbrúnarverkfallið 1955 var eitt- hvert hið sterkasta, sem Dagsbrún hefur háð — og það að knýja fram atvinnuleys- istryggingarnar, — sem nú eru orðnar 30 ára, -— var fordæmið um að verkalýður- inn gat sett lög, þó það sé hinsvegar ólíku ódýrara fyrir hann að gera slíkt með því að standa saman sem einn maður í kosn- ingum en að koma mannréttindum fram með fórnfrekum verkföllum. En su ríkisstjórn, sem ætlaöi sér að brjóta verkalýðshreyfinguna á bak aftur, brotnaði sjálf í sundur. 27. mars 1956 lagði forsætisráðherra hennar fram lausn- arbeiðni sína og Alþingiskosningar voru ákveðnar 24. júní og upp úr þeim mynd- uð vinstri stjorn. Verkfallið mikla hafði sýnt hvar sterkasta valdið í Iandinu var, ef alþýðan stóð saman. III. Auðvaldið bannfærði þá, — en Dagsbrún braut bannfæringuna samdægurs á bak aftur Hér birtist listinn með nöfnum þeirra Dagsbrúnarverkamanna, er auðvaldið bannfærði 23. júní 1942, — en varð að gefast upp fyrir samtakamætti verkalýðs- ins samdægurs. Nöfn þessara bardagahetja hins dag- lega lífs verkalýðsins skulu geymast: Agnar Guðmundss. Bjarnarst. 12 Agnar Guðmundss. Framnesv. 50 Ágúst Sigurbrandss. Framnesv. 30 Albert Sigtryggsson Eiríksgötu 25 Ari Magnússon Bragagötu 22 A Árni Árnason Baldursgötu 7 Árni Jóhannsson Lindargótu 43 A Árni Sigurðsson Grettisgötu 73 Ásgeir Torfason Garðastræti 45 Baldur Ársælsson Vesturgötu 35 Baldur Guðmundsson Njálsgötu 72 Baldur Hjartarson Óðinsgötu 11 Baldur Jónsson Ránargötu 31 Bang Ole Laugavegi 46 Benedikt Hanness. Hofsvallag. 18 Bencdikt Helgason Bencdikt Lárusson Hverfisg. 87 Bjarni Stefánsson Ingólfsstræti 6 Björgvin Ólafsson Laugav. 28 B Björgvin Steindórsson Bjarn. 6 Björn Björnsson Ásvallag. 39 i Björn Björnsson Hringbr. 214 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.