Réttur - 01.01.1986, Blaðsíða 14
„Unga fólkið í borginni þarf að fá að
njóta sín betur, það þarf að geta haft
meiri áhrif á mótun sinnar borgar.
Unga fólkinu verður að treysta betur,
fela því meiri ábyrgð á eigin lífi sem og
sínu umhverfi. Stöðugt verður að leita
nýrra leiða í skólamálum og ai-
mennum uppeldismálum.“
Meirihlutinn í borgarstjórn hefur snúið
þessum fyrirheitum upp í hreina öfug-
mælavísu. í haust á ári æskunnar fékk
unga fólkið reyndar borgarstjórnarsalinn
lánaðan litla stunnd, og þar hélt unga
fólkið sköruglegan og vel undirbúinn
fund. Aðeins örfáir úr hópi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins létu sjá sig og meðal
þeirra, sem hundsuðu unga fólkið, var
borgarstjórinn. Ekkert af því sem unga
fólkið lagði til hefur verið tekið til greina.
Þó er ef til vill ekki öll nótt úti enn. Við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar lögðum við
fulltrúar Alþýðubandalagsins fram eftir-
farandi tilögu:
Borgarstjórnarfundur œskunnar var
haldinn hinn 24. október s.l. Par komu
unglingar úr félagsmiðstöðvum í borginni
fram með ýmsar athyglisverðar til’ögur
um það, sem betur má fara.
Par sem sjálfsagt er að skoða þœr til-
lögur nánar, er lagt til að skipuð verði við-
ræðunefnd við fulltrúa frá unglingum,
sem að borgarstjórnarfundinum stóðu.
Nefndin hafi það hlutverk að fjalla um
tómstunda- og félagsstarf unglinga og
komi með tillögur um úrbætur. T.d. má
kanna hvort ekki sé œskilegt að halda ung-
lingadansleiki í Laugardalshöll mun oftar
en nú er. Sérstök áhersla skal lögð á
endurskoðun á starfsemi vinnuskólans.
Til að standa straum af kostnaði við
framkvœmd þeirra tillagna, sem nefndin
setur fram, áœtlast kr. 1.500.000.
Sjálfstæðismenn lögðu ekki í að fella
þessa tillögu, heldur var henni vísað til
æskulýðsráðs. Þó var tekið fram að þessi
eina og hálfa milljón ætti ekki að fljóta
þar með.
Meðal þess sem unga fólkið nefndi var,
að nú væru strætisvagnafargjöld þungur
baggi á framhaldsskólanemum, sem
þyrftu að nota strætisvagna daglega og
þá oft a.m.k. tvisvar á dag. Strætisvagna-
fargjöldin hafa hækkað ótæpilega síðan
núverandi meirihluti tók við. Guðrún
Ágústsdóttir hefur fyrir okkar hönd oftar
en einu sinni lagt fram tillögur um afslátt-
arkort fyrir nemendur og unglingarnir
stutt þá tillögu með því að senda borgar-
stjórn undirskriftalista með 1200 nöfnum.
Okkur hefur hins vegar ekki tekist að fá
Sjálfstæðismenn til að fallast á þessa
hugmynd.
Skipulag — Umhverfí
Það varð mikil breyting til verri vegar
vorið 1982 í meðferð skipulagsmála og
viðhorfum til þess umhverfis sem menn
lifa og hrærast í.
Allt skipulag byggðar á nú að vinna í
sem mestum flýti og fagleg vinnubrögð
eru látin lönd og leið. Það þurfti að skipu-
leggja Grafarvoginn með ógnar hraða til
þess að stóri draumurinn um nóg af lóð-
um fyrir alla mætti rætast. Síðan var farið
að skipuleggja við Skúlagötu og raunar
Skuggahverfið allt. Þá var leiðarljósið
það eitt að stóru lóðareigendurnir, Völ-
undur og Eimskip, Garðar Gíslason og Slát-
urfélagið gætu grætt á því aö byggja sem
allramest á lóðum sínum. Það gerist ekk-
14