Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 15

Réttur - 01.01.1986, Page 15
ert nema menn græði á því sagði Davíð í blaðaviðtali. Forstöðumanni Borgarskipu- lagsins. Guðrúnu Jónsdóttur, sem hafði starfað með vinstri meirihlutanum að því að skapa fyrst og fremst gott og notalegt umhverfi fyrir fólkið, ýtti Davíð úr starfi. Allt kjörtímabilið hafa skipulagsaðgerðir Davíðs sætt harðri gagnrýni í borgar- stjórn, hjá fagmönnum utan borgar- stjórnar og almenningi. Varðveisla þeirra menningarverðmæta sem felast í gönrlum húsum var stefna vinstri meirihlutans, en nú ræður niður- rifsstefnan ríkjum. Ahugamenn, vinstri meirihlutinn og Alþýðubandalagsmenn í ríkisstjórn björguðu Bernhöftstorfunni og opnuðu þar með augu alls almennings fyrir gildi gömlu húsanna. í kjölfarið fylgdi endurnýjun fjölmargra bygginga, en nú er engu gömlu húsi hlíft, geti ein- hver grætt á að rífa það. Vinstri meirihlutin var búinn að ganga frá friðlýsingu Elliðaárdalsins en Davíð lét hætta við þá friðlýsingu. Rökin voru óljós, helst skildist manni að borgin kynni að skaðast fjárhagslega á friðlýsingunni en Kópavogur hugsanlega græða. í gömlum og nýjum bæjarhlutum bíður margt lagfæringar. Frágangur útivistar- svæða hefur löngum viljað sitja á hakan- um, en nú er það ekki síst gamli bærinn sem mætir afgangi. Ekkert hefur verið gert til að endurnýja leikvelli og leiksvæði í eldri hverfum. Við lögðum til að gömlu hverfin fengju 2 milljónir í þessu skyni á þessu ári. Meirihlutanum fannst 1 milljón alveg nóg. Vonandi verður hún notuð. Að lokum Þetta yfirlit um borgarmál í fjögur ár er að sjálfsögðu aðeins ágrip. Mér þótti nauðsynlegt að setja það saman til að draga upp mynd af stjórnarháttum sjálf- stæðismeirihlutans og baráttu borgarfull- trúa Alþýðubandalagsins. Fundargerðir borgarstjórnar og nefnda hennar eru í fárra höndum og ekki margorðar um það sem gert er. Það hefur einnig rekið á eftir mér að Þjóðviljinn er ekki jafngóð heimild um störf borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins á þessu kjörtímabili og jafnan áður. í FEBRÚAR 1986 15

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.