Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 20

Réttur - 01.01.1986, Page 20
furður vorra daga. Til að mynda, að sá stjórnmálaflokkur, sem ræður mestu um stefnu ríkisstjórnar okkar, skuli vera svona vinsæll samkvæmt skoðanakönnun- um, enda þótt maður hitti varla mann, sem ekki barmar sér yfir illri stjórn og hraklegri afkomu, lágum launum og óbærilegum skuldabyrðum. Og að fólk skuli sætta sig við hersetuna og vígbúnað- inn í landi voru, þótt það sé mesta ógnin, sem steðjað hefur að þjóðinni síðan land byggðist. Ef menn leiddu hugann að eigin stöðu, held ég að margir gætu tekið undir með Þorsteini Valciimarssyni skáldi, þeg- ar hann segir: Þung eins og þekja moldar er þögnin, sem aldrei ég rýf og varnar mér máls þó ég viti þó ég viti, að hún kostar mitt líf. Stundum virðist manni að flytjendum og hlustendum sé jafn ósjálfrátt. í Hyde Park í London hefur það lengi verið siður, að hver og einn getur stigið í stólinn og létt á hjarta sínu. Þetta hafa ótalmargir sérvitringar Bretlands notfært sér, sjálfum sér til sálubótar. En fáir taka mark á þeim og stjórnvöldum stafar engin hætta af þeim. Þátturinn um daginn og veginn er svipuð stofnun. í honum getur hver og einn fengið útrás, án þess að nokkr- um stafi hætta af. Þetta er vel til fundið. Pað styrkir þá ímyndun, að í okkar þjóð- félagi sé hver maður í raun sinna eigin skoðana smiður og að allir hafi jöfn tæki- færi til þess að hafa áhrif á skoðanir ann- arra. Og sú ímyndun er einmitt einn veigamesti þátturinn í fjöldaframleiðslu þeirra skoðana, sem valdhafarnir kjósa okkur til handa. Sovétmenn ættu endi- lega að koma sér upp svona stofnunum fyrir sérvitringa sína og andófsmenn. Það væri gott fyrir allan heirriinn, ég tala nú ekki um, ef það gæti svipt Bandaríkin þó ekki sé nema einu af undanbrögðunum í umræðunum um kjarnorkuafvopnun. Vill ekki einhver góður maður koma þessari til- lögu á framfæri við valdamenn þar eystra? Hvernig menn bregðast við váboðum Ég minntist áðan á nokkur þau efni, sem menn hafa fyrr og síðar rætt um, þeg- ar talað er um daginn og veginn. En stundum gerast atburðir, sem allir tala um. Nú eigum við von á Halley-hala- stjörnunni í heimsókn enn einu sinni. Nú verður tekið á móti henni með miklum virktum. Stórveldin keppast við að senda boðbera á fund hennar til þess að fá af henni fréttir utan úr geimnum. Enginn óttast hana lengur. Pegar hún kom síðast, var ég barn að aldri. Og þá höfðu menn illan bifur á gestinum. Talin var nokkur hætta á, að jörðin færi gegnum halann og menn óttuðust, að einhverjar skelfingar mundu dynja yfir. Ég heyrði sögur um ofsahræðslu fólks úti í löndum og brugð- ust menn misjafnlega við. Sumir kepptust við að eyða eigum sínum í allskonar svall og munað meðan enn var griðastund. Aðrir gáfu allar eigur sínar sér til sálu- hjálpar. Enn aðrir frömdu sjálfsmorð í örvæntingu. En gamall og gildur bóndi í nágrenni mínu kunni ráð. Hann átti gott hús með kjallara undir. Kvað hann hvern mann öruggan í kjallara sínum, verst hvað hann rúmaði fáa. Oft dettur mér þessi saga í hug, þegar ég heyri fólk tala um það öryggi, sem felst í því, að hafa Keflavíkurstöðina okkur til verndar. Enginn trúði gamla bóndanum. En ára- tugum saman hafa menn hlustað með 20

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.