Réttur - 01.01.1986, Síða 25
Agúsl F. Jónsson, járnsmiður, Björn Itjarnason, form. Iðju, Guönuindiir J. Guðmundsson, Cyrus Hjartarson,
Kristján Jóhannsson, Jón Ásgeirsson.
mörku, Noregi, Svíþjóð og Sovétríkjun-
um sýndu með fjárstyrkjum í verkfalls-
sjóðinn, varð brátt sýnt er á 6. verkfalls-
vikuna leið að athuga yrði um samninga
áður en það yrði um seinan. Ég man eftir
að við Brynjólfur fórum á fund Eðvarðs
og ráðlögðum honum að fara að athuga
samningaleiðina. Ebbi svaraði þá fyrst að
við yrðum að brjóta okkar harðasta lið í
Dagsbrún á bak aftur, ef nú ætti að
semja. En nokkrum dögum síðar kvaðst
Eðvarð vera þeirrar skoðunar að nú bæri
að semja, það væri hægt að knýja fram
þaö sem samsvaraði 16% kauphækkun:
þ.e. 12% beina kauphækkun og 4%, er
ríki, bæir og atvinnurekendur legðu í
atvinnuleysistryggingasjóð, er væri eign
verkalýðsfélaganna og væru sett lög um
það á Alþingi. En Brynjólfur Bjarnason
hafði þá í 14 ár flutt frumvarp um atvinnu-
leysistryggingar án þess að geta fengið
það samþykkt.
En við vissum að það yrði samt erfitt að
fá þetta fram á Dagsbrúnarfundi, því
margir verkfallsvarðanna okkar voru svo
harðir í horn að taka að þeir álitu slíka
samninga undanslátt.
25