Réttur


Réttur - 01.01.1986, Page 33

Réttur - 01.01.1986, Page 33
JÓN HELGASON: Skáldið og föðurlandsvinurinn advarar þjóð sína hertekna, er fíokkar þeir, sem mcirihluti þjóðarinnar fylgir, láta tæla sig og niðurlægja með blekkingum, lygum og hótunum til að gerast þý erlends valds, er kemur sér upp auðugustu yfírstétt, sem á íslandi hefur lifað, og bindur sér hana hinum „gullnu þrælaböndum“. „Sú þjóð sem löngum átti ekki í sig brauð, en einatt bar þó reisn í fátækt sinni, skal efnum búin orðin þvílíkt gauð, er öðrum bjóði sig að fótaskinni. Sú þjóð sem horuð ærið afhroð galt af ofurheitri trú á frelsið dýra, hún býður lostug sama frelsi falt með fitustokkinn belg og galtarsvíra. Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark en aurasníkjur, sukk og fleðulæti, mun hljóta notuð herra sinna spark og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti. Sú þjóð sem dottar, dáðlaus, viljasljó og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja, skal fyrr en varir hremmd í harða kló. Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja.“

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.