Réttur


Réttur - 01.04.1975, Blaðsíða 2

Réttur - 01.04.1975, Blaðsíða 2
Það er einskis svifist svo þetta ómenska kerfi fái staðist bröskurunum til gróða: Tvær gengislækkanir eru þegar framkvæmdar á einu misseri og ekki verður skirst við að halda svo áfram, meðan alþýðan ekki tekur í taum- ana, stjórnartaumana. Með þessari stórþjófnaðarstefnu eru miljarðar króna fluttir frá alþýðunni sem eigendum sjóða til braskaranna og frá launafólki í lækkuðu raunkaupi til atvinnurekenda. Það er jafnframt verið að reyna með þessu háttalagi að gera þá stétt gervikapítalista, sem þjóðfélagið veitir 100% lán til „kaupa" á framleiðslutækjum að raunverulegum eigendum þeirra á kostnað alþýðu. Og jafnframt er kappkostað að fá inn hingað er- lenda auðhringa á kostnað almennings. Þar sem sannað var af Alþýðu- bandalaginu í tíð vinstri stjórnar að hægt væri að beygja slíka hringa til að lúta íslenskum hagsmunum og sætta sig við fsland sem hálaunaland, ef á annað borð væri nauðsynlegt að semja við þá, þá lýtur núverandi stjórn í duftið fyrir þeim, semur við þá eftir að allar forsendur orkumála eru gerbreyttar vegna olíuhækkunarinnar og reynir nú að gera ísland að lág- launasvæði sem fyrri nýlendur eru gerðar nú í heiminum, til þess að gera landið girnilegra í augum auðdrottna. Allri spillingu, óreiðu og vitleysu í atvinnu- og fjármálalífi er við haldið, meðan verkalýðurinn rís ekki upp gegn því pólitískt og eigi aðeins ,,fag- lega", með verkföllum og kaupgjaldsbaráttu. Hin pólitisku og faglegu samtök verkafólks og launafólks alls þurfa að taka höndum saman eigi aðeins í varnarbaráttunni gegn árásum afturhalds, — eins og gerðist nú svo myndarlega í baráttunni gegn bráðabirgðalögunum, — heldur og í sókn til þess að stjórna landinu í þágu hins vinnandi fólks. ★ Hinir stórfenglegustu viðburðir hafa gerst á heimsmælikvarða síðan síðasta ,,Réttar"-hefti kom: uppgjöf Bandaríkjanna og leppa þeirra í Vietnam. Er þetta hefti því mikið helgað alþjóðlegum viðburðum og íhugunum útaf þeim. ☆ ★ ☆ Síðan áskriftarverð Réttar var hækkað síðast hefur allur kostnaður enn aukist stórum, svo hætta er á beinum halla á rekstri ,,Réttar" í ár. Hann heitir því á velunnara sína að vinna vel að útbreiðslu hans. Það er líka hægt að gera þannig að senda vinum eða kunningjum, sem ekki kaupa hann, ,,Rétt" og greiða ársáskrift fyrir þá, svo þeir kynnist ritinu. Og eins er heitið á þá, sem enn skulda fyrri árganga að gera nú full skil, því oft var þörf en nú er nauðsyn. Eins og þjóðfélagsástandið er þarf Réttur frekar að stækka en dragast saman — og alveg sérstaklega að útbreiðast meir. Að vísu gengur allt í rétta átt hvað það snertir en mætti ganga hraðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.