Réttur - 01.04.1975, Blaðsíða 14
ur honum nærri? Enginn þeirra úr röðum
verkalýðshreyfingarinnar sem hér hafa verið
nefndir með nafni nýtur góðs af þessum
þjófnaði. Það skyldi nú ekki vera að þeir
skuggalegu kumpánar sem dyljast undir hin-
um óræðu stöfum x, y og 2 maki krókinn?
Víst er um það að jafnan sjást þeir skjótast
þar sem von er á rekstri, eign og viðskiptum.
Er ekki kominn tími til þess fyrir ABDE
að sameinast um það að knésetja xyz í eitt
skipti fyrir öll? Þeir gera svo lítið til þarfa
þessir litlu ljótu kallar og það eru alltaf ein-
hver ráð með góðviljaða menn til að vinna
verkin.
25/3 1975.
LEIÐRÉTTING VIÐ MYNDRIT
í 3ja hefti Réttar 1974 eru birt þrjú myndrit um
kjaraþróun launafólks. Smávegis skekkjur slædd-
LEIÐRÉTTING
I fyrirlestri Brynjólfs Bjarnasonar í síðasta hefti
var ein meinleg prentvilla sem þarf að leiðrétta:
Á bls. 55 I fremri dólki neðst stendur „okkur í
dag“ I staðinn fyrir „okkur I hag".
ust inn í útreikninga til grundvallar súluriti I um
kaupmátt launa fyrir hafnarvinnu varðandi fyrra
misseri 1974 (bls. 155 I heftinu). I reynd var kaup-
mátturinn þá nokkru hærri en reiknað var með,
súlan átti að ná lengra upp en hún gerði á mynd-
inni.
Réttar tölur fyrir fyrra misseri 1974 eru þessar:
Meðal tímakaup 196,24 kr. eða 221,1. Meðal vísitala
270,1 stig eða 175,5. Súlan fer enn uppávið og
sest á 126,0.
VIÐBÆTIR
Tölur fyrir síðara misseri 1974: Meðal tímakaup
221,90 kr. eða 250,0. Meðal vísitala 326,5 stig eða
212,2. Súlan fer n.'ður I 117.8.
Staða I maí 1975: Tímakaup 264,40 kr. eða 297,9.
Vísitala 426 stig eða 276,8. Hæð súlunnar 107,6.
HEIMILDIR
að tölum sem eru notaðar við útreikningana eru eins
og áður sóttar til Hagstofu og Kjararannsóknar-
nefndar, í rit þeirra. H. K.
94