Réttur - 01.04.1975, Page 21
Grænlendingar við vinnu í námum.
lendingar hafðir útundan. Máske veldur hér
viðkvæmni danskra stjórnvalda, en eftir það
hvernig danskir valdhafar brutu gegn sam-
heldni Norðurlanda með því að tæla dönsku
þjóðina inn í EB, þá er rétt að sækja allfast
slíkt mál sem sjálfstjórn eða sjálfstæði Græn-
lands, hvað sem danskir afturhaldsmenn
kunna að segja.
Þetta er ekki síst nauðsynlegt nú, þegar
sýnt er að frelsisbarátta Grænlendinga er að
harðna. „Morgunblaðið" segir frá því 22.
mars að ungir Grænlendingar hafi nú hafið
fjársöfnun til þess að berjast gegn yfirdrottn-
un Dana. Eru þeir einkum reiðir því að dönsk
þingnefnd veitti 21 olíufélagi leyfi til að
bora eftir olíu við Grænlandsstrendur. Höfðu
um 150 ungir Grænlendingar áður farið í
kröfugöngu til Grænlandsmálaráðuneytisins
og lagt þá undir sig húsakynni þess. Þessir
ungu menn mótmæla því að land þeirra sé
selt framandi fvrirtækjum í smápörtum. Þess-
ir ungu menn sjá hrægammana, sem voka
yfir ættjörð sinni — og þeir eiga hjálp skilið
til að bjarga henni úr klóm þeirra.
Það reynir á manndóm Islendinga, að
standa drengilega við hlið næsta nágranna
vors, ef hann í neyð sinni og smæð verst
árásum illfygla á land hans og þjóð.
191