Réttur


Réttur - 01.04.1975, Síða 39

Réttur - 01.04.1975, Síða 39
Einar Olgeirsson SJÖUNDA HEIMSÞINGIÐ —og sigurinn yfir fasismanum Fyrir íjörutíu árum, dagana 25. júlí 1935 til 21. ágúst, var háð heimsþing Alþjóðasam- bands kommúnista (Komintern) í Moskvu, hið sjöunda í röðinni — og hið síðasta og á margan máta hið merkilegasta og lærdómsríkasta þeirra allra. Nasisminn, ógnarstjórn auðvaldsins, hafði 1933 náð völdunum í Þýskalandi, ættjörð Marx og Engels; þýska verkalýðshreyfingin, er verið hafði brautryðjandinn um ára- tugi og sterkust allra, lá í fjötrum, jafnvel í rústum. Hrægammar auðvaldsins hlökkuðu um allan heim og hugðu nú gott til glóðarinnar að brjóta allan sósíalisma á bak aft- ur og byrja nýtt gróðastríð, til að kveða niður kreppuna. Þetta þing markaði stefnu marxískra flokka um heim allan um einbeitingu baráttunnar gegn fasismanum: samfylkingu og þjóðfylkingu allra andfasistiskra afla, — stefnu sem enn má margt og mikið af læra. Hugleiðingar um vandamál þessa þings eiga því enn erindi til allra sósíalista. Fyrir 30 árum, 8.—9. maí 1945, var þýski fasisminn loks felldur — með víðfeðmari ,,þjóðafylkingu“ en nokkurn hafði órað fyrir 1935, — endi bundinn á heimsstríð það, sem nasistastjórn þýska auðvaldsins hóf. Það hafði kostað heilt heimsstríð og ægi- iegar fórnir að kveða þann nasisma niður, er völdin tók 1933. Svo dýr varð sú ófreskja mannkyninu. Ýmsir nútímamenn dæma hart þaö andvara- leysi, sem sósíalistar, einkum’ þýskir úr báöum höfuðfylkingum verkalýðshreyfingarinnar, komm- únista og sósíaldemókráta, sýndu gagnvart hætt- unni á sigri fasismans í Þýskalandi 1933. Það er að vísu skiljanlegt að menn dæmi hart, — cn þó skyldu þcir hinir sömu stinga hcndi i eigin barm og athuga hvcrnig mcnn brcgðast nú við cnn ægi- lcgri hættum. En þar um síöar. Sósíalistar voru haldnir þeirri bjartsýni 19. ald- armanna að öruggt væri að þróunin héldi áfram, spurningin væri aðeins hve hratt. Eins og auð- valdsskipulag tók við af lénskipulagi, svo hlyti sósíalisminn að taka við af kapítalisma, — spum- ingin væri aðeins um hve fljótt. Þeir höfðu gleymt viðvörun Marx og Engels í upphafi Kommúnistaávarpsins, er þeir lýsa úrslitum stéttabaráttunnar: „Þessari baráttu hefur jafnan lokið á þá lund, að þjóðfélagið hefur tekið hámskiptum í byltingu eða báðar stéttir liðið undir lok.“ Þegar heimskreppan er skollin yfir Evrópu af 119

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.