Réttur


Réttur - 01.04.1975, Qupperneq 53

Réttur - 01.04.1975, Qupperneq 53
hirm brauðið og vagaana, en Elisaveta slapp í gegn og átti m.a. tal við Rósu Luxemburg í janúarbyrjun í Berlín nokkru áður en hún var myrt. A árinu 1918 er hún m.a. ritari Swerdlows, forsætisráðherra Sovétríkjanna og 1919 er hún skæruliði í frægri skæruliðasveit, sem kennd var við leiðtoga hennar Kamo, — Simon Ter-Petrossian, hét hann réttu nafni. Elisaveta átti síðar meir eftir að rita ákaf- lega fjöruga frásögn, þrungna eldmóði bylt- ingarmannsins, frá öllum þessum atburðum. En það gerðist undir sérstökum kringum- stæðum: Þegar ofsóknaröldurnar gegn gömlum bolshevikkum ganga yfir í Sovétríkjunum 1936—38 er Elisaveta Drabkina tekin föst og hátt á annan áramg er hún í fangabúðum í Síbiríu. Hún kemur úr þeim eftir dauða Stalíns og tekur eftir 20. flokksþingið 1956 að rita endurminningar frá þessum tíma og lýkur við þær fyrir 22. flokksþingið 1961. Þær eru síðar þýddar á þýsku og gefnar út 1962 undir nafninu „Schwarzer Zwieback" (Svartar tvíbökur). Það er næstum ótrúlegt af hvílíkum æskuþrótti þessi kona, — eftir allt sem hún hefur þolað, — hefur getað skrifað um þessa löngu liðnu daga. Hjálpar henni þar frábært minni og ágætur frásagn- arstíll. Síðar kemur hver bókin á fætur annarri: um John Reed, um bolshevikkakynslóð Len- ins, um Lenin 1968. Hét sú bók „Ut úr vetr- inum'' og í frásögn, sem Morgunblaðið birti eftir Sunday Times 21. ianúar 1969, er sú bók talin besta bók, sem út kom í Sovét- ríkjunum á árinu 1968. Elisaveta Drabkina getur þess með miklum fögnuði í „Svörtum tvíbökum" að 20. flokks- þingið hafi bundið enda á skelfingar þær, er svo margir góðir kommúnistar urðu að þola og endurreist heiður þeirra, er látist Elisaveta sést hér á þessari mynd milli Lenins og Swerdlows þann 6. nóv. 1918. höfðu. En hún minnist hvergi á það hvað hún hafi sjálf orðið að þola. Þessi kona kom jafngóður kommúnisti út úr þeirri eldskírn og hún fór inn í hana. Henni var ljóst að hér var verið að misnota nafn sósíalismans til að fremja verk andstæð hans eðli. Og hin- ar ágæm bækur, sem hún reit um árdaga byltingarinnar hjálpa áreiðanlega til að end- urvekja þann hugsunarhátt, eldmóð og um- burðarlyndi í senn, er þá ríkti og vinna þann- ig bug að lokum á þeirri ægilegu misnotkun ríkisvaldsins, sem blett hefur sett á skjöld sósíalismans og valdið verstu harmleikjum byltingarinnar allt frá dómsmorðinu á Buc- harin og félögum hans til Dubcek-ofsókn- anna á síðusta áratug. 133
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.