Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 33. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Velduþaðbesta Gítarinn kær vinur Áttræður skemmtikraftur á Hrafnistu | Daglegt líf í febrúar Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Breyttur og rúmbetri RAV4  Ford Fiesta með hressilega takta  Alfa Romeo 159 kominn til landsins Íþróttir | Enduðum í 7. sæti á EM í Sviss  Íslandsmet Björns Margeirssonar „ÉG tel að það að við skulum fá hér fundi með stuttum fyrirvara með þessum ráðherrum, sé til marks um að Bandaríkjamönnum er ekkert síður en okkur full alvara með því að reyna að ljúka þessu máli, koma því í varanlegan búning og eyða þeirri óvissu sem hefur verið um þessi mál,“ sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra, í gærkvöldi, að afloknum fundum hans um framtíð varnarsam- starfsins með Condoleezzu Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Nicholas Burns aðstoð- arutanríkisráðherra í Washington. Geir segir að efnislegar viðræður um varnar- málin séu nú hafnar af fullum þunga og með þess- um ráðherrafundum sé verið að setja viðræður um varnarsamstarfið í gang á nýjan leik. Mjög skýr afstaða „Afstaðan er mjög skýr í öllum aðalatriðum af okkar hálfu. Við erum núna með tillögur um það með hvaða hætti við getum komið til móts við þeirra sjónarmið varðandi kostnað, þar sem við myndum taka að okkur stærri hluta af starfsem- inni á Keflavíkurflugvelli en verið hefur og er þá verið að tala um bæði rekstur flugvallarins sjálfs og eins leitar- og björgunarsveitina,“ segir Geir. Íslensk stjórnvöld leggja jafnframt áherslu á að hér verði áfram sýnilegar varnir. „Við viljum ekki taka áhættuna af því að hér séu ekki trúverðugar varnir,“ segir Geir. Samninganefndir ríkjanna hófu síðdegis framhaldsviðræður um varnarmálin og er gert ráð fyrir að þær haldi áfram í dag. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, er í för með íslensku sendinefndinni. – Leikur enginn vafi á því að Bandaríkjamenn vilji standa við skuldbindingar varnarsamnings- ins? „Þeir fullyrða það við okkur og við höfum aldrei dregið það í efa, að þeir ætli sér að standa við samninginn frá 1951. Þeir hafa hins vegar aðrar hugmyndir en við um hvernig hægt sé að gera það,“ segir Geir. Varnarviðræðurnar hafnar á ný eftir fund Geirs H. Haarde og Condoleezzu Rice AP FUNDIR sem Geir H. Haarde átti með Condo- leezzu Rice og tveimur aðstoðarráðherrum í Washington í gær voru ákveðnir með skömmum fyrirvara á fundi sem Geir átti með Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra í London sl. þriðjudag. Geir segir að Rice sé vel inni í viðræð- unum um framtíð varnarsamstarfsins og hafi gef- ið sér góðan tíma til að fara yfir málið. Áður en viðræður Geirs og Rice fóru fram í gær átti hann fund með Nicholas Burns, þar sem farið var ítarlega yfir allar hliðar málsins. Undir kvöld hélt Geir síðan í varnarmálaráðuneytið Pentagon til viðræðna við Eric S. Edelman, aðstoðarvarn- armálaráðherra. Að því búnu hélt Geir heim til Ís- lands og mun hann í dag gera ríkisstjórn og utan- ríkismálanefnd grein fyrir stöðu viðræðnanna. Ráðherrafundir ákveðnir með stuttum fyrirvara Íslendingar tilbúnir að taka að sér stærri hluta starfsemi á Keflavíkurflugvelli Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Báðum er full alvara að reyna að ljúka málinu Geir H. Haarde og Condoleezza Rice takast í hendur við upphaf fundar þeirra í Washington í gær. „ÉG og vinur minn höfðum fundið 25 lítra brúsa af þynni á bílastæð- inu við Naustabryggju og ætluðum að kveikja smábál,“ segir Bjarki Jó- hannsson, 14 ára, um örlagaríkan dag, 20. nóvember sl., þegar hann brenndist alvarlega í eldsvoða sem varð eftir ógætilega meðferð elds. „Við vorum inni í stóru álröri og helltum niður smáþynni til að kveikja í. Þegar bálið fór að minnka ætluðum við að hella meiri þynni á það en þá gekk eldurinn eftir bun- unni inn í brúsann og það kviknaði í öllu saman. Það kom ekki spreng- ing en maður heyrði samt hvernig eldurinn magnaðist. Ég komst út úr rörinu og hljóp um 100 metra beint út í sjó og slökkti í sjálfum mér.“ Bjarki hefur verið á sjúkrahúsi frá því slysið varð og hefur gengist undir húðflutningsaðgerðir enda hlaut hann 2. og 3. stigs bruna á 30% líkamans. Bruninn var verstur á fótum og andliti en Bjarki er á batavegi þótt enn sé hætta á sára- myndun. Hann þarf að hafa fæt- urna í láréttri stöðu til að forðast aukið blóðflæði niður í þá sem eyk- ur hættu á sáramyndun. Á kvöldin eru umbúðirnar teknar af og Bjarki sefur með svokallaðan bragga yfir fótunum, eins konar þak til að vernda fæturna gegn snertingu. „Ég var dálítið slæmur því alltaf þegar eitt sár greri þá kom annað,“ segir hann. „En núna nýlega var meðferðinni breytt og ég var látinn vera umbúðalaus í nokkra daga og þá þornuðu sárin og greru.“ Húð hefur verið tekin af maga, baki og úr hársverðinum til að græða brunasvæðin. | 6 „Ætluðum að kveikja smábál“ Morgunblaðið/ÞÖK Bruninn var verstur á fótum og andliti en Bjarki er á batavegi. Á batavegi eftir að hafa brennst alvarlega í nóvember Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is BRESKA ríkissjónvarpið, BBC, birti í gær fréttamyndir þar sem brugðið var stuttlega upp síðum fréttablaða með umdeildum skop- teikningum af Múhameð spámanni sem hafa vakið geysilega reiði margra múslíma. Samkvæmt reglum íslams má alls ekki gera myndir af Múhameð. Franska blaðið Le Monde birti eina teikninguna á forsíðu í gær. Skoðanir eru skiptar í Evrópu um það hvernig bregðast skuli við mál- inu en klerkar og ráðamenn í sumum múslímalöndum krefjast þess að höf- undum teikninganna verði refsað og sett lög sem banni fólki að hæðast að íslam. Einn ritstjóra franska blaðs- ins France-Soir var rekinn fyrir að birta nokkrar myndanna. Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra sagði í sjónvarpsviðtali að brottreksturinn væri mikið áfall. Sagðist hann frem- ur kjósa „öfgar í myndbirtingum en öfgar í ritskoðun“. Skiptar skoðanir í ESB Ursula Plassnik, utanríkisráð- herra Austurríkis, núverandi for- ysturíkis Evrópusambandsins, sagði í gær að leiðtogum sambandsins bæri skylda til að „fordæma með ótvíræðum hætti“ móðganir við öll trúarbrögð. Erkki Tuomioja, utan- ríkisráðherra Finnlands, lagði hins vegar áherslu á að öll aðildarríkin fordæmdu morðhótanir gegn Dön- um og öðrum Vesturlandabúum sem ofstækismenn hafa haft í frammi en þannig vilja þeir svara teikningun- um, sem fyrst birtust í danska blaðinu Jyllands-Posten. „Tjáning- arfrelsið er ekki eitthvað sem menn höndla með,“ sagði ráðherrann. Móðganir við trúar- brögð séu fordæmdar Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is  Óttast | 16 Vín. AP. | Sérfræðingar í Vín í Austurríki hafa rannsakað um 40 dauða söngfugla sem óttast var að hefðu drepist úr fuglaflensu. Það reyndist vera rangt, fuglarnir höfðu komist í gerjuð ber, flogið dauðadrukknir á rúður og hálsbrotnað. Lifrin í fuglunum reyndist vera svo illa farin að hún leit út fyrir að vera úr „ólæknandi alkóhólista“ að sögn Sonju Wehsley, talsmanns embættis yfirdýralæknis í Vín. Dauðadrukknir fuglar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.