Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 37 MINNINGAR ✝ Hjörtur Frið-berg Jónsson fæddist í Melshúsum á Seltjarnarnesi 10. september 1920. Hann lést á heimili sínu, Fornastekk 11 í Reykjavík, 23. jan- úar síðastliðinn. Hjörtur var lengst af fulltrúi hjá Vega- gerð ríkisins. For- eldrar hans voru Jón Gíslason, stein- smiður og múrara- meistari, f. 24.3. 1885, d. af slysförum 5.5. 1942, og Sigurveig Jónsdóttir, f. 20.10. 1889, d. 13.6. 1977. Hjörtur ólst upp hjá föður sínum og eiginkonu hans Mörtu Sigríði Jónsdóttur, f. 26.7. 1872, d. 24.7 1953. Hálfsystk- ini samfeðra voru tvö, stúlka sem dó við fæðingu árið 1910 og Stef- án Ágúst, f. 7.6. 1911, d. 6.10. 1929. Þá á Hjörtur fleiri hálfsystk- ini sammæðra. Hjörtur kvæntist 14. sept. 1946 Vigdísi Einarsdóttur frá Neðri- Hundadal, f. 10.9. 1921. Þau eiga fjóra syni, þeir eru: 1) Jón Frið- berg Hjartarson, f. 29.7. 1947, kvæntur Elísabetu Kemp Stefáns- dóttur. Börn þeirra eru Hjörtur, f. Jónsson, f. 3.9. 1977, Áslaug Birna Jónsdóttir, f. 5.12. 1978, og stjúp- sonur Stefán Kemp, f. 12.11. 1963, kvæntur Gunnlaugu Hartmanns- dóttur, f. 4.10. 1964. Dætur þeirra eru Elísabet, f. 1.2. 1988, Marín, f. 11.5. 1995, og Katrín Kemp, f. 9.10. 1997. 2) Einar Friðberg Hjartarson, f. 20.6. 1949, kvæntur Kristínu Þorgeirs- dóttur, f. 13.9. 1959. Sonur þeirra er Kristinn Friðberg, f. 24.5. 1985. Með fyrrv. sambýliskonu sinni, Sigríði Stef- ánsdóttur, á Einar tvær dætur, a) Vigdísi, f. 3.5. 1977, unnusti Þor- steinn Guðni Berghreinsson, f. 18.3. 1972, þau eiga stúlku, f. 13.12. 2005, og b) Ásdísi, f. 20.6. 1978, sambýlismaður Þorgeir Haraldsson, f. 3.3. 1980. 3) Stefán Friðberg Hjartarson, f. 3.7. 1956, kvæntur Áslaugu Guðmundsdótt- ur, f. 10.5. 1957. Kjörsonur þeirra er Stefán Friðberg, f. 25.3. 1990. 4) Ævar Sigmar Hjartarson, f. 25.12. 1960. Hann kvæntist Jó- hönnu Rannveigu Skaftadóttur, f. 25.4. 1962, d. 5.6. 2002. Þau skildu. Börn þeirra eru Lára Guð- rún, f. 14.10. 1983, Vigdís Hlíf, f. 8.5. 1992, og Jón Sigmar, f. 10.12. 1994. Hjörtur verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Tengdafaðir minn lést 23. janúar sl. á heimili sínu. Vigdís og Stefán sonur hans voru við hlið hans þegar hann lést og það hefur honum líkað. Ég kynntist honum fyrir um það bil 23 árum þegar ég kom inn í fjöl- skylduna. Hann tók mér fálega í fyrstu, vildi vera viss um að ég væri sú rétta fyrir son hans áður en hann opnaði faðminn, eftir það reyndist hann mér yndislegur tengafaðir. Hann var ákaflega hjálpsamur, allt sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af mikilli kostgæfni, hvort sem hann klippti sjálfan sig eða drengina sína, bólstraði, gerði við bílana, allt lék í höndum hans. Hann hafði af- burða rithönd og skrautskriftin hans var óaðfinnanleg. Tengdafaðir minn var bundinn hjólastól frá 1994 eftir áfall sem hann fékk þá. Seiglan og eljan í hon- um var ótrúleg, hann vildi sem minnstu hjálp fá. Kallið kom óvænt, þvílíkt reiðar- slag þó svo að maður ætti alveg eins von á þessu þá er maður aldrei tilbú- inn þegar dauðinn ber að dyrum. Ég þakka tengdaföður mínum fyr- ir samfylgdina. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Ég votta tengdamóður minni og fjölskyldu hennar mína dýpstu sam- úð og bið Guð almáttugan að styrkja þau í sorginni. Kristín. Sumarið 1930 kom ungur drengur að Fellsenda í Dalasýslu, hann var þá níu ára – f. 10. sept. 1920 – og fór nú í fyrsta sinn að heiman. Það var á þessum árum þörf fyrir unglinga til sveita til margvíslegra snúninga og ýmissa léttra starfa. Þetta var líka þroskandi fyrir þéttbýlisbörnin að kynnast ýmsu nýju í sveitinni. Það var oftast góður skóli. Á þessum bæ var Hjörtur Friðberg Jónsson í mörg sumur og lærði margt og þroskaðist vel, enda allt fólkið á bænum vandað og gott á alla lund. Frá þessum tíma hófust kynni okkar Hjartar, þau hafa verið öll á eina leið og engan skugga þar á borið í þessi rúm 70 ár. Hann var prúður drengur og orðvar, hjálpsamur og velviljaður. Þannig var hans fyrsta gerð sem þroskaðist síðan með aldri og árum og allri lífsreynslu. Hann var einn af mörgum sem bjuggu yfir eigin hag- leik sem nýttist vel við mörg störf sem til féllu. Hann var sjálfmennt- aður vélamaður og ökukennari um tíma og kenndi mörgum á bíl. Hans tilsögn var markviss og skilaði nem- endum mikilli fræðslu um bíl og vél og annað er til aksturs heyrði, því hann vildi vanda til allra verka sem mest hann mátti. Hann ók leigubíl um tíma og margt fleira kom til hans kasta. Sumarið 1947 unnum við saman á jarðýtu við jarðrækt og um mánað- artíma við vegagerð hjá Vegagerð ríkisins. Hann var alltaf hinn trausti og góði félagi sem alltaf mátti treysta á og aldrei brást nokkru sinni. Um nokkurn tíma var hann lagermaður hjá Vegagerð ríkisins og afgreiddi varahluti í bíla og vélar þeirrar útgerðar og var þar „á réttri hillu“, því hann var glöggur á allt sem viðkom bílum og vélum. Árið 1946 gekk hann að eiga syst- ur mína Vigdísi og eignuðust þau fjóra syni sem þau komu öllum til mennta. Allir eru þeir vel gerðir myndarmenn. Svo nú að leiðarlokum get ég sagt af eigin reynslu: Hér fór vandaður maður til orðs og æðis, vel gerður og velgetinn maður. Mætti Ísland eignast sem flesta honum líka. Eitt af því dýrmætasta á lífsleið okkar mannanna er að kynnast góðu fólki og að eignast góða vini og það er svo sannarlega þakkarvert. Það er því með þökk í huga til látins vin- ar, Hjartar Friðbergs Jónssonar, að ég enda þessi kveðjuorð, því öll hans vinátta var svo sönn og heil. Þegar kærir vinir falla frá verður skarð í vinahópinn og söknuður fyllir hug- ann. En kristna trúin gefur von og síðar vissu um að við eigum vin sem treysta má á sem aldrei mun bregð- ast þeim sem trúa og treysta á hann. Við eigum árnaðarmann hjá Föðurn- um, Jesúm Krist hinn réttláta. Með samúðarkveðju til vina og ættingja. Blessuð sé minning Hjartar Frið- bergs Jónssonar. Hjörtur Einarsson. Elskulegur frændi minn kvaddi þessa jarðvist okkar mánudaginn 23. janúar sl. á 86. aldursári. Mín fyrsta minning er frá þeim tíma er mér var komið fyrir í nokkr- ar vikur á heimili móður hans. Bjuggu þau þá tvö saman mæðginin, þar sem faðir hans var látinn nokkru áður. Þessar vikur eru sæluvikur í minningunni þar sem mér var hamp- að eins og prinsessu. Marta mín sat með mig löngum stundum í kjöltunni og strauk mér um vanga. Ekki reyndist Hjörtur síðri. Á þessum tíma var hann í tilhugalífinu, vann fullan vinnudag, kom heim í kvöld- mat og var svo horfinn á vit ástarinn- ar sinnar, en ekki gleymdi hann litlu frænku sinni. Á leiðinni heim úr vinnunni kom hann oftast við í búð til að kaupa smá nammi í munninn handa krílinu sem heima var. Þá voru sætindin afgreidd í litla brúna bréfpoka sem stungið var undir koddann, því ekki mátti borða allt í einu. Örlög Hjartar og Vigdísar hafa sennilega verið ráðin frá barnæsku. Oft sagði hún mér frá prúða sæta piltinum sem var kominn til sumar- dvalar í Dalina. Þar hafa hjörtun, að öllum líkindum, byrjað að tifa í takt þótt hraði takturinn hafi ekki komið fyrr en síðar. Ekki var ég ánægð með þennan ráðahag því mér fannst Vigdís vera að taka frænda minn frá mér. Fannst mér hún bæði falleg og góð, þótt ég viðurkenndi það ekki fyrr en síðar, þegar ég sá að ég gat líka átt Hjört þótt á annan hátt væri. Fjóra syni eignuðust þau hjónin, sem allir hafa erft þetta blíða viðmót foreldra sinna. Undanfarin ár höfum við hjónin ætíð komið til þeirra um jólaleytið. Eins var það fyrir síðustu jól og átt- um við yndislega stund saman yfir kaffibolla og góðgæti. Þessi dagur er dýrmætur í okkar huga, þar sem þetta var okkar síðasta samveru- stund. Við borðsendann sat Hjörtur í hjólastólnum sínum, rennisléttur á vangann, eins og unglamb með bros á vör og glettni í augum. Það var ljóst að honum leið vel og var sáttur við allt og alla. Mér þótti óskaplega vænt um Hjört alla tíð og leyndi sér ekki að það var gagnkvæmt. Er ég var fjög- urra ára árið 1944 smíðaði hann sveinsstykkið sitt og gaf mér, var þetta lítill dúkkudívan, sem var að öllu leyti eins og þeir dívanar sem sofið var á hér áður fyrr. Þessi mubla er enn mitt uppáhald. Hjörtur hafði einstaklega góða nærveru, hægur, rólegur og blíð- máll, aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Yfirgaf hann okkur á sama hátt, sveif rólega inn í nýtt líf. Guð blessi þennan góða mann, konu hans og fjölskyldu alla. Jóhanna G. Halldórsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að kveðja Hjört í Fornastekknum. Kynni okkar hófust fyrir 30 árum þegar ég og Ævar sonur Hjartar og Vigdísar sátum saman í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti, þá 16 ára gamlir. Upp frá þeim degi er ég kom fyrst í Fornastekkinn var hús þeirra hjóna alltaf opið fyrir mér og var mitt annað heimili. Ég tel mig hafa verið gæfumann, þá unglingspiltur kominn til Reykjavíkur norðan úr Vatnsdal, að kynnast þeim yndislegu hjónum. Nú er Hjörtur horfinn héð- an og þakka ég honum af miklum hlýhug allar ánægjustundir og allt sem hann kenndi mér. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hjarta mitt af harmi stynur, horfinn ertu sjónum mér. Þú varst trúr og tryggur vinur, tál var ekki í huga þér. (Bjarkey Gunnlaugsdóttir.) Ég votta þér elsku Vigdís mín og fjölskyldunni allri mína dýpstu sam- úð og langar að enda þetta á ljóði eft- ir þig. Ástin er eldinn kveikir innst í hverri sál ylur sem alla vermir ástar tendrar bál æskunnar yndisreitir elskendanna mál. Ástin hún andann nærir aflið sem hjartað knýr gefur þær glæstu vonir þar göfgi hugans býr fegurstu listanna lindir lífsins ævintýr. (Vigdís Einarsdóttir.) Blessuð sé minning Hjartar. Sveinn Eggert Jónsson. Við kveðjum í dag eiginmann So- roptimistasystur okkar Vigdísar Einarsdóttur. Um margra ára bil hefur hann verið tengdur starfi okkar í Soropt- imistaklúbbi Bakka og Selja í Reykjavík. Vigdís er mjög hagmælt kona og hafa Soroptimistakonur sungið ljóðin hennar við ýmis tæki- færi. Oftar en ekki höfum við þá haft í höndum ljóðin hennar fagurlega rit- uð af Hirti. Á síðasta ári fórum við fram á það við Vigdísi að fá að gefa ljóðin henn- ar út. Það leyfi var fúslega veitt og daginn fyrir síðasta gamlársdag heimsóttum við ritnefndarkonur ásamt formanni okkar þau hjón og afhentum Vigdísi fyrstu eintökin. Við munum seint gleyma þeirri gleðistund og þeirri ljúfmennsku sem ætíð mætti okkur er við komum á heimili þeirra. Við vitum að Hjört- ur gladdist yfir bókinni og var sáttur við hana. Vigdísi og fjölskyldu hennar send- um við okkar einlægustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim Guðs bless- unar. Fyrir hönd Soroptimistaklúbbs Bakka og Selja. Sigríður Sveinsdóttir. HJÖRTUR F. JÓNSSON Bróðir okkar og frændi, JÓHANNES JÓNSSON, Húsanesi, lést á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtu- daginn 26. janúar. Jarðsett verður frá Búðakirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 13.00. Systkini hins látna og fjölskyldur. Ástkær frænka okkar og systir, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Engjavegi 43, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minning- arsjóð hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi. Fyrir hönd aðstandenda, Hansína Ásta Björgvinsdóttir, Ingibjörg Ingvadóttir, Anna Sólveig Ingvadóttir, Björgvin Ingvason, Margrét Jónsdóttir og Stefán Jónsson. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, EYJÓLFUR GUÐMUNDUR ÓLAFSSON, Hlíðarvegi 45, Ísafirði, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þriðju- daginn 31. janúar, verður jarðsunginn frá Ísa- fjarðarkirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Föðurbróðir minn, GÍSLI VIGFÚSSON frá Skálmarbæ, Álftaveri, lést á dvalarheimilinu Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri, aðfaranótt þriðjudagsins 31. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd ættingja, Kolbrún Gestsdóttir og fjölskylda, Hjálmar Gunnarsson og fjölskylda. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA SVANLAUG JÓNSDÓTTIR, Villingaholti í Flóa, sem lést laugardaginn 28. janúar, verður jarðsung- in frá Villingaholtskirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 13:30. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.