Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Síðustu 20 árin hefur Corolla verið mest keypti bíllinn. Íslendingar treysta Corolla og bera til bílsins tilfinningar sem gera það að verkum að þeir kaupa hann aftur og aftur. Kannski er svarið við spurningunni, af hverju Corolla, sú að Corolla er einstaklega ódýr bíll í rekstri, öruggur, þjónustan við eigendur er frábær – og svo er auðvitað gott að keyra hann. Kannski er svarið flóknara. Kannski eru það hinir óendanlegu möguleikar. Því þótt þú veljir Corolla þá er valið fjölþættara. Hvaða gerð af Corolla viltu, hvaða búnað, hvaða lit, hvaða skiptingu? Spurningarnar eru fleiri. Corolla er bíllinn þinn, þú ræður hvernig hann er. Á endanum velur þú Corolla. Corolla tilfinningin er góð ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 30 78 1 12 /2 00 5 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyotasalurinn Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421-4888 Toyotasalurinn Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Á endanum velur þú Corolla STEFÁN Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir að hann fái þær upplýsingar í grunnskólum borgarinnar að það sé ekki efna- hagur fólks sem geri það að verk- um að fólk nýti sér ekki skóla- máltíðir í skólum, en í Morgun- blaðinu í gær kemur fram að foreldrar þriðj- ungs barna kaupi ekki skólamáltíðir fyrir börn sín. Stefán Jón sagðist hafa fylgst mjög vel með því hvernig þessi þjón- usta, skólamáltíðir, sé nýtt og rætt það ítarlega við matráða í grunnskól- um og kennara og skólastjórnendur, hvort með skólamáltíðum sé verið að búa til þjónustu sem ekki nýtist efna- minni börnum. Svörin séu öll á einn veg að fólk verði í mjög litlum mæli vart við það, enda sé maturinn í skólamötuneytunum svo ódýr að það sé vandséð hvernig heimilin geti gef- ið börnunum að borða fyrir minna fé. „Ég fæ þau skilaboð í skólaum- hverfinu að þetta sé ekki stórt vandamál að börn hafi ekki efni á að borða í skólamötuneytunum. Þau hins vegar, sérstaklega unglingarn- ir, hafa ekki vanist því að borða heit- an mat í hádeginu í skóla og þau hafa greinilega verið sein að tileinka sér þetta,“ sagði Stefán Jón. Yngri börnin hafa vanist skólamáltíðum Hann benti á að yngri börn noti skólamáltíðirnar miklu frekar en unglingarnir. Þau hafi alist upp við þetta, en þau sem eldri eru hafi ekki lært að tileinka sér það að fá að borða í skólanum, auk þess sem ým- islegt annað komi til, eins og sér- viska, matarofnæmi og fleira. Þegar málið sé skoðað nánar komi í ljós að hlutfallið sé dálítið misjafnt eftir skólum og sér sýnist að eftir því sem skólar hafi lengur boðið upp á þjón- ustuna þeim mun betra sé hlutfallið. Stefán Jón sagðist hafa verið í heimsókn í grunnskóla í gærmorgun og spurt fólk þar út í umfjöllun Morgunblaðsins og hvort það væri efnahagur fólks sem stæði í vegi fyr- ir að fólk notfærði sér þessa þjónustu í skólunum. Svarið hefði verið af- dráttarlaust neitandi. Það væri ekki rétt að hafa skólamáltíðir ókeypis, því börnin yrðu að fá tilfinningu fyrir því að um verðmæti væri að ræða. Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Ekki efnahagur sem ræður Stefán Jón Hafstein SAMKVÆMT þjóðarpúlsi Gallup myndi Sjálfstæðisflokkurinn fá hreinan meirihluta í borgarstjórn ef kosið væri í sveitarstjórnarkosning- um í dag, eða um 55,1% atkvæða. Er það lítil breyting frá síðasta þjóðar- púlsi sem framkvæmdur var í des- ember en þá mældist Sjálfstæðis- flokkurinn með 56% fylgi. Staðan hjá öðrum flokkum hefur breyst lítið en Samfylkingin mældist með 30,1% fylgi, sem er aukning um 2% frá síðasta mánuði, Vinstri-græn- ir mælast með 8,5%, sem er minnkun um 1%, fylgi Framsóknarflokksins eykst frá 3% uppí 4,4% og Frjáls- lyndir fengju 1,5%, svipað og þeir hafa fengið í síðustu þjóðarpúlsum. Samkvæmt þessum niðurstöðum myndi Sjálfstæðisflokkurinn fá níu menn í borgarstjórn, Samfylkingin fimm og Vinstri-grænir einn. Fylgi flokkanna er breytilegt eftir kyni og myndu fleiri karlar kjósa Framsóknarflokkinn, Sjálfstæðis- flokkinn og Frjálslynda, en fleiri konur kysu Samfylkinguna og Vinstri-græna. Könnunin var gerð 3.–30. janúar síðastliðinn og var svarhlutfall 60% af 2.517 manna úrtaki. Litlar breytingar á landsvísu Einnig var kannað fylgi flokkanna á landsvísu og er lítil breyting á milli mánaða. Sjálfstæðisflokkurinn eyk- ur fylgi sitt um 1% og er nú með 42,6% fylgi, Samfylkingin stendur í stað með 27,0%, Vinstri-grænir halda sig á svipuðum slóðum og fengju 17,6%, Framsóknarflokkur- inn tapar um 1% og er nú með 10,5% og Frjálslyndir fengju 2,1%, svipað og í síðustu könnun. Könnunin var gerð á milli 28. des- ember 2005 og 30. janúar 2006 og var svarhlutfall 62% af 5.969 manna úr- taki. Sjálfstæðisflokkurinn fengi níu menn LEIKSKÓLAR í Reykjavík verða gjaldfrjálsir í allt að 7 klukkustundir á dag fyrir öll börn frá haustinu 2008 samkvæmt frumvarpi að þriggja ára áætlun um rekstur, fjárfestingar og fjármál Reykjavíkurborgar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg- arstjóri lagði fram á fundi borgar- ráðs í gær. Áfram er stefnt að niðurgreiðslu skulda borgarinnar næstu árin, en nýgerðir kjarasamningar og sam- dráttur í fjárfestingu setja einkum mark sitt á áætlanir borgaryfirvalda fyrir rekstur borgarsjóðs næstu ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá borgarstjóra. Gert er ráð fyrir já- kvæðri rekstrarniðurstöðu allt tíma- bilið, um 295 milljónum árið 2007, 598 milljónum árið 2008 og 345 millj- ónum árið 2009. Gert er ráð fyrir að afgangur verði af rekstri borgar- sjóðs öll árin og að hreinar skuldir lækki um 928 milljónir og verði í lok tímabilsins 3.929 milljónir. Frumvarpinu var vísað til borgar- stjórnar þar sem fyrri umræða um það fer fram næsta þriðjudag. Gjaldfrjálsir leikskólar haustið 2008 Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.