Morgunblaðið - 03.02.2006, Page 10

Morgunblaðið - 03.02.2006, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞINGMENN úr öllum flokkum fögnuðu á Alþingi í gær samkomu- lagi menntamálaráðherra og Kenn- arasambands Íslands um áform um breytta námskipan til stúdents- prófs. „Ég vil óska hæstvirtum menntamálaráðherra til hamingju með að hafa hlustað á rödd skyn- seminnar og að hafa tekið ákvörðun um að falla frá tillögum sínum um skerðingu stúdentsprófsins,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og málshefjandi umræðunnar um styttingu náms til stúdentsprófs. Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fjallaði í stuttu máli um samkomulagið, en hún hafði skýrt frá því á blaða- mannafundi fyrr um daginn, eins og fram kemur annars staðar í blaðinu í dag. Hún kvaðst taka undir með Björgvini um að breytingar á nám- skipan yrði að gera í sátt og sam- vinnu við skólasamfélagið. „Ég tel að samkomulag það sem ég undirrit- aði fyrr í dag, ásamt formanni Kennarasambands Íslands, um tíu skrefa sókn í skólamálum í tengslum við áform um breytta námskipan til stúdentsprófs, vera afar mikilvægt skref í þeim efnum,“ sagði hún. Björgvin sagði m.a. í framsögu sinni að fyrri tillögur ráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs hefðu fyrst og fremst virst vera póli- tísk ákvörðun um sparnað og nið- urskurð í menntamálum, til að mæta stórum árgöngum og aukinni sókn í framhaldsskóla. Síðar sagði hann: „Ég óska skólasamfélaginu til ham- ingju með þann sigur sem felst í yf- irlýsingu ráðherrans. Samkomulag hennar og Kennarasambandsins byggir á því að fallið verði frá fyrri tillögum um styttingu náms til stúd- entsprófs.“ Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kvaðst einnig fagna sam- komulaginu. „Það gefur okkur vonir um að þau hræðilegu mistök sem hæstvirtur menntamálaráðherra var nærri búinn að leiða okkur inn í, verði afstýrt.“ Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, óskaði ráðherra einnig til hamingju með samkomu- lagið og það sama gerði Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylk- ingarinnar. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, fagnaði sömuleiðis samkomulaginu og sagði að með breytingum á fram- haldsskólanum þyrfti að taka tillit til þeirra skólastiga sem væru fyrir ofan og neðan. Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks og formað- ur menntamálanefndar þingsins, sagði að Samfylkingin væri skrýtinn stjórnmálaflokkur, því hún hefði einn stjórnmálaflokka á Íslandi haft það á stefnuskrá sinni á árunum 1999 til 2003 að stytta námstíma til stúdentsprófs. Nú hefði hún hins vegar breytt um skoðun. Björgvin G. Sigurðsson svaraði því hins vegar til síðar í umræðunni að breytt nám- skipan fælist ekki í því að nám yrði skert. Hlynur Hallsson, varaþingmaður Vinstri grænna, sagði gott að ráð- herra skyldi taka upp samvinnu við kennara; það hefðu Vinstri grænir viljað allan tímann. Hann kvaðst þó vona að ráðherra myndi falla algjör- lega frá málinu. Undir lok umræð- unnar sagði Hjálmar Árnason, þing- flokksformaður Framsóknarflokksins, að það væri ánægjulegt að sjá hversu margir hefðu tekið gleði sína á þessum fal- lega degi. Fagna samkomulagi ráð- herra og kennaraforystunnar FRAMBJÓÐENDUR í prófkjöriSamfylkingarinnar í Kópavogi, semfram fer á morgun, eru 21. Samfylk- ingin fékk þrjá bæjarfulltrúa í Kópa- vogi í síðustu kosningum. Flosi Ei- ríksson, sem hefur verið oddviti flokksins, stefnir á fjórða sæti listans, en Guðríður Arnardóttir og Jón Júlíusson stefna á fyrsta sætið. Kosið er í Hamraborg 11, 3. hæð í Kópavogi, en kosningin fer fram frá kl. 10.00 til kl. 20.00. Kosningaréttur miðast við félaga í Samfylkingunni í Kópavogi og tengdum félögum og í félagi Ungra jafnaðarmanna í Kópa- vogi sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag, með lögheimili í Kópavogi. Hægt er að ganga í Samfylkinguna í Kópavogi alla daga og einnig á kjör- dag. Þátttakendur í prófkjörinu eru Arnþór Sigurðsson, Bjarni Gaukur Þórmundsson, Björk Óttarsdóttir, Flosi Eiríksson, Guðmundur Örn Jónsson, Guðríður Arnardóttir, Haf- steinn Karlsson, Hreiðar Oddsson, Hulda Björg Sigurðardóttir, Ingi- björg Hinriksdóttir, Jens Sigurðs- son, Jóhann Guðmundsson, Jón Júl- íusson, Kristín Pétursdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ragn- hildur Helgadóttir, Rut Krist- insdóttir, Sigurður M. Grétarsson, Tjörvi Dýrfjörð, Þorsteinn Ingi- marsson og Þór Ásgeirsson. Prófkjör Samfylkingar í Kópavogi FJÓRTÁN taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarn- arnesi sem fram fer á morgun, níu karlar og fimm konur. Í framboði eru Ásgerður Hall- dórsdóttir, Bjarni Torfi Álfþórsson, Gunnar Lúðvíksson, Helga Jóns- dóttir, Helgi Þórðarson, Jónmund- ur Guðmarsson, Lárus B. Lárusson, Magnús Örn Guðmundsson, Oddný Halldórsdóttir, Ólafur Egilsson, Ragnar Jónsson, Sigrún Edda Jóns- dóttir, Sólveig Pálsdóttir og Þór Sigurgeirsson. Prófkjörið verður haldið í sal sjálfstæðisfélaganna á Austur- strönd 3, og verður kosið frá kl. 9.00 til 18.00. Í prófkjörinu eiga kjósendur að velja sjö frambjóðendur með því að merkja við nöfn þeirra sem kjósa skal með tölustöfum 1 til 7. Kjörið er bindandi ef frambjóðandi hlýtur a.m.k. 50% atkvæða samanlagt. Á kjörskrá eru allir félagsmenn sjálf- stæðisfélaganna á Seltjarnarnesi og þeir sem ganga í félögin í síðasta lagi þegar kosið er. Tveir frambjóðendur, Jónmund- ur Guðmarsson bæjarstjóri og Bjarni Torfi Álfþórsson, sækjast eftir að leiða listann. Sjálfstæð- ismenn hafa nú fjóra bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi. Prófkjör sjálfstæðismanna á Nesinu Morgunblaðið/Ásdís Stjórnarþingmenn ræða málin EKKERT dæmi er þekkt um áratugaskeið um jafnjákvæða afkomu ríkissjóðs og raun varð á í fyrra. Uppgjör fjármálaráðuneytisins fyrir nýlið- ið ár liggur nú fyrir og samkvæmt því varð breyt- ing á handbæru fé frá rekstri jákvæð um 32 millj- arða króna á árinu 2005. Þetta er jafnframt 32 milljörðum kr. betri útkoma en á árinu á undan. Í uppgjörinu kemur fram að heildartekjur rík- issjóðs voru rúmlega 90 milljörðum kr. hærri en greidd gjöld ríkissjóðs á síðasta ári. Yfirlit yfir greiðsluafkomu ríkissjóðs í fyrra leiðir í ljós að svonefndur hreinn lánsfjárjöfnuður var jákvæður um 82 milljarða kr. samanborið við 22 milljarða á árinu 2004. Mismunurinn er að mestu skýrður af 56,8 milljarða kr. söluhagnaði vegna Landssímans hf. svo og 5,6 milljarða króna fjármagnstekjuskatti vegna sölunnar. Alls greiddi ríkið 62,3 milljarða í afborganir af lánum í fyrra. Tekjur ríkisins jukust verulega í fyrra og námu alls tæpum 400 milljörðum kr. Hækkuðu þær um 118,6 milljarða frá árinu á undan, eða um 42,2% og er það í samræmi við áætlanir, skv. upplýs- ingum fjármálaráðuneytisins. Skatttekjur ríkissjóðs voru 314,8 milljarðar og hækkuðu um 20,7% frá fyrra ári. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 4%, þannig að skatttekjur hækkuðu að raungildi um 16,1% á árinu 2005. Sé eingöngu litið á skatta á tekjur og hagnað kemur í ljós að tekjur af þeim námu samtals 102,2 milljörðum kr. í fyrra og jukust um tæplega 18,9 milljarða frá fyrra ári. Þar munar mest um tæp- lega 8 milljarða kr. aukna innheimtu tekna af fjármagnstekjuskatti, sem að mestu skýrist með sölu Landssímans. Útgjöld ríkisins voru rúmir 308 milljarðar kr. á síðasta ári og hækkuðu um 28 milljarða frá fyrra ári, en þar af skýrast 5,6 milljarðar kr. af gjald- færslu fjármagnstekjuskatts af söluhagnaði Sím- ans og 4,6 milljarðar kr. af hækkun vaxta- greiðslna þar sem stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í apríl. Að þessum tveimur lið- um frátöldum hækkuðu gjöldin um 17,8 milljarða eða 6,7% milli ára. Vega útgjöld til félagsmála langþyngst, þ.e. vegna almannatrygginga, fræðslu- og heilbrigðismála, eða 195,7 milljörðum kr. Besta útkoma ríkissjóðs í áratugi Heildartekjur tæplega 400 milljarðar og 62 milljarðar fóru í afborganir af lánum Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is VALNEFND í Laugarnespresta- kalli ákvað á fundi sínum nýlega að leggja til að Hildi Eir Bolla- dóttur guðfræðingi verði veitt embætti prests í Laugarnes- prestakalli í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra. Umsóknarfrestur rann út 15. janúar sl. og embættið veitist frá 1. mars nk. Fimm um- sækjendur voru um embættið. Um er að ræða 50% starf og greiðist starfið af Laugarnessöfn- uði. Í auglýsingu vegna þess var lögð áhersla á reynslu af að sinna barna- og æskulýðsstarfi kirkj- unnar, ásamt hefðbundinni prestsþjónustu. Biskup Íslands skipar í emb- ættið til fimm ára að fenginni nið- urstöðu valnefndar. Valnefnd skipuðu fimm fulltrúar úr presta- kallinu auk vígslubiskupsins í Skálholti. Nýr prestur í Laugarnes- prestakalli SAMNINGURINN um líffræðilega fjölbreytni hefur haft mikil áhrif á stefnumótun og aðgerðir íslenskra stjórnvalda á sviði umhverfismála og fleiri málaflokka, sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráð- herra á Alþingi í gær. Hún sagði að samningurinn væri einn mikilvæg- asti alþjóðasamningurinn á sviði um- hverfismála og að hann veitti leið- sögn um verndun og sjálfbæra nýtingu lífríkisins. Kolrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, var málshefjandi umræðunnar um samninginn á Al- þingi í gær. Hún sagði að hann hefði verið í gildi síðan í desember 1994 og að enn hefði ekki verið gerð um það áætlun hvernig bæri að framfylgja honum. Ráðherra sagði m.a. að það dygði ekki að horfa einungis á tilvísanir til samningsins í lagatextum „heldur liggja þær hugmyndir, gildi og til- mæli sem í honum er að finna víða til grundvallar í íslenskri löggjöf og stefnumótun stjórnvalda,“ sagði hún. „Samningnum og markmiðum hans er m.a. gert hátt undir höfði í stefnumörkun Íslands um sjálfbæra þróun, velferð til framtíðar og stefnumörkun stjórnvalda um mál- efni hafsins.“ Hafi áhrif á stefnu- mótun á sviði um- hverfismála ÞINGMENN stjórnarandstöðu- flokka í Suðurkjördæmi hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar sem skorað er á ríkisstjórn að sjá til þess að á árunum 2006–2010 verði lokið við að byggja upp fjögurra ak- Upplýstur vegur til Selfoss reina upplýstan veg á milli Reykja- víkur og Selfoss. Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingar, er fyrsti flutn- ingsmaður tillögunnar. Í greinar- gerð segir að umferð um veginn á milli Selfoss og Reykjavíkur hafi aukist gríðarlega á undanförnum ár- um, eða um allt að 80% árin 1992– 2004, og að samkvæmt nýfengnum upplýsingum frá Vegagerðinni hafi þessi þróun haldið áfram árið 2005.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.