Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 41

Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 41 MINNINGAR merkjum þeirra í þessum efnum og hringdi nær daglega í flesta fjöl- skyldumeðlimi til að fá fréttir og oftar en ekki til að segja fréttir. Vinnutími afa var oft langur því ekki einungis gegndi hann stöðu stöðvarstjóra Pósts og síma á Hellissandi í 40 ár heldur stundaði hann alla tíð útgerð meðfram störfum sínum á pósthúsinu auk þess að gegna mörgum trúnaðar- störfum fyrir sína heimabyggð. Hann starfaði mikið í Sjálfstæðisflokknum og var einn af stofnendum Sjálfstæð- isfélagsins á Hellissandi og á 60 ára afmæli þess var hann gerður að heið- ursfélaga Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ. Aldrei skorti hann þrek til að verja stefnu flokksins eða for- rystumenn hans, og gat hann enda- laust þrefað um pólitík. Ásta amma sá um að búa þeim glæsilegt heimili og stóð þétt að baki sínum manni. Samheldni þeirra var aðdáunarverð og er okkur til efs að þeim hafi nokkurn tímann orðið sundurorða í þeirra 60 ára sambúð. Það var afa mikið áfall að sjá á eftir ömmu eftir svo langa samveru en hann sýndi fádæma æðruleysi og tók því sem að höndum bar. Sama æðru- leysi sýndi hann síðustu dagana sem hann lifði þó svo að hann gerði sér fulla grein fyrir því að hverju stefndi. Hélt hann sinni andlegu reisn og léttu lund allt þar til yfir lauk. Sem dæmi um glettni hans má nefna að 4 dögum áður en hann dó komu þau Ásbjörn og Margrét í heimsókn til afa og höfðu meðferðis blóm. Þegar afi sá þau birtast með blómin spurði hann hvort þau væru mætt með blóm á gröfina. Síðustu níu árin dvaldi afi á dval- arheimili aldraðra í Stykkishólmi og naut þar mikillar hlýju og góðrar þjónustu, sem við viljum koma á framfæri þakklæti fyrir. Bjó hann í eigin íbúð allt þar til fyrir tæpu ári síðan er hann fluttist í herbergi. Eignaðist hann marga góða vini í Hólminum og mat hann vinskap þeirra mikils. Það er sjálfsagt ekki á neinn hallað þó að Bjarna Lárussyni sé sérstaklega þökkuð umhyggja hans og vinátta í garð afa. Afi var orðinn vegmóður og lúinn undir það allra síðasta og virtist mjög sáttur við að kveðjustundin nálgaðist. Það var jafnvel ekki laust við að nokkurrar tilhlökkunar gætti að fá að hitta Ástu ömmu við vistaskiptin. Við minnumst elskulegs afa með þakklæti og hlýju. Ásbjörn, Tryggvi Leifur og Júníana Björg Óttarsbörn. Af þessum heimi horfinn afi minn en hjartkær minning skín í huga mínum. um allt hið liðna, ást og kærleik þinn er ung ég hlaut í traustum faðmi þínum. Mig leiddi forðum ljúfa höndin þín á leiðir mínar ætíð gleði barstu. Og blessun vafðir bernsku sporin mín, á barnsins þarfir skilningsríkur varstu. Á hljóðri stund við hinsta beðinn þinn ég heitar þakkir færi þér að hjarta. Þín gæði aldrei gleymast, afi minn, ég geymi þína minning fagra og bjarta. Elsku afi, við þökkum allar stund- irnar sem við áttum með ykkur ömmu, þær eru ómetanlegar og eru styrkur á þessari stundu. Guð blessi minningu þína. Ástrós og Ásgerður Alda. Einn af mínum tryggu og góðu vin- um af Snæfellsnesi hefur kvatt þetta jarðlíf. Við Sveinbjörn Benediktsson á Sandi kynntumst fljótt eftir að ég flutti vestur. Við bundumst vináttu- böndum sem aldrei hafa brostið né bilað. Sveinbjörn var ungur valinn til forystu fyrir sitt bæjarfélag og aldrei verkefnalaus. Hann reyndist eftirsóttur til fé- lagsstarfa og traustur í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Við áttum langa samfylgd eftir að hann gerðist stöðvarstjóri Pósts og síma á Hellissandi og ég umdæmisstjóri símans við Breiðafjörð. Á milli heim- ila okkar myndaðist þráður vináttu og velvildar, tengsl sem styrktust með árunum. Sveinbjörn á Sandi var traustur í bindindismálum og þar stóðum við saman. Hann átti sérstaklega gott og al- úðlegt heimili sem stóð opið þegar vini bar að garði. Ásta, kona Svein- bjarnar, stóð fyrir þessu elskulega heimili og öllum leið vel í návist þeirra hjóna. Hjá þeim Sveinbirni og Ástu var alúðin hrein og heimsóknir til þeirra reyndust minnisverðar stundir. Ásta var eins og Sveinbjörn félagslynd og þau hjónin voru sam- valin til forystu í byggðarlaginu. Til- lögur þeirra og verk höfðu mannbæt- andi áhrif á allan hátt. Sveinbjörn var dugnaðarmaður. Fyrir utan starf sitt sem símstöðv- arstjóri var hann þátttakandi í at- vinnumálum Hellissands. Hann rak ásamt félögum sínum útgerð um langt skeið og var starfsemin farsæl í hans höndum og annarra. Þau hjónin Sveinbjörn og Ásta fluttu í Hólminn þegar dagsverki þeirra var lokið. Þau keyptu íbúð á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi og urðu samskipti okkar nánari enda stutt að skreppa. Því miður nutu þau þess ekki lengi að búa í þessari fal- legu íbúð því Ásta dó eftir stutta bú- setu í Hólminum. Sveinbjörn bjó áfram á dvalarheimilinu og var virkur þátttakandi í tómstundum fram á síð- asta dag. Ég vil þakka Sveinbirni fyrir langa og trausta vináttu. Eftir farsælt ævi- skeið hefur hann hitt konu sína að nýju því þau hjón voru samhuga um þá trú að eftir þetta líf tæki annað og betra við. Ég veit að sá sem öllu ræð- ur veitir þessum trúa og dygga þjóni sínum laun að verðleikum. Blessun guðs fylgi góðum vini á framtíðar- braut. Árni Helgason, Stykkishólmi. ✝ Þórdís NannaNikulásdóttir fæddist í Króktúni í Hvolhreppi 14. maí 1922. Hún lést á Dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Grund 27. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru María Þórðardóttir, f. 13.2. 1899, d. 18.9. 1978 og Nikulás Jónsson, f. 18.9. 1892, d. 8.10. 1930. Systkini Nönnu eru Nikulás Már, f. 8.8. 1923, Óskar, f. 25.8. 1926, d. 4.2. 2004, Helga, f. 16.4. 1929, d. 31.7. 1998, Sigþór, f. 15.3. 1938 og Gylfi, f. 8.8. 1940. Nanna giftist 15. september 1945 Lárusi Halldórssyni presti, f. 10.10. 1920. Foreldrar hans voru Kristín S. Hafliðadóttir, f. 31.7. 1873, d. 9.9. 1960 og Halldór Þ. Sveinsson, f. 16.2. 1880, d. 1.4. 1946. Börn Nönnu og Lár- usar eru: 1) Anna María, f. 1946, hún á þrjú börn, 2) María Kristín, f. 1948, maki Birgir Símonarson, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn, 3) Sigríður, f. 1950, maki Stig Henrik- sen, d. 2003, þau eiga eitt barn og tvö barnabörn, og 4) Halldór Nikulás, f. 1954, maki Árný Jóhannsdóttir, þau eiga eitt barn og fimm barna- börn. Útför Nönnu verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Í dag kveðjum við elskulega móð- ur okkar hinstu kveðju. Við þökkum Guði fyrir bestu mömmu í heimi, sem studdi okkur og leiðbeindi, kenndi okkur mun á réttu og röngu, bað fyr- ir okkur og bar hag okkar fyrir brjósti til hinstu stundar. Minning- arnar eru margar og ljúfar og sökn- uðurinn mikill. En fullvissan um að hún er nú gengin inn í dýrð Drottins, sem hún trúði á og fól líf sitt, er okk- ur styrkur í sorginni. Eftirfarandi ljóð Sumarliða Hall- dórssonar lýsir vel hugsunum okkar á þessum tímamótum. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd, bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín, bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best, hjartað blíða, heita – hjarta, er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson.) Þakka þér fyrir allt elsku mamma. Anna María, María Kristín, Sigríður og Halldór Ég varð að kveðja bestu tengda- mömmu í heimi sl. föstudag. Það var ekki auðvelt og skarðið er stórt sem hún skilur eftir sig. Það sem huggar mig í sorginni er að hún er komin á besta stað sem hægt er að hugsa sér og ég á eftir að hitta hana aftur þar. Heimili þeirra Nönnu og Lárusar tengdaforeldra minna var alltaf opið upp á gátt. Mikill gestagangur og gestrisnin alltaf hátt fyrir ofan með- allag. Þar var auðfundinn kærleikur, veitingar og umhyggja sem sóst var í. Þau voru vinamörg hjónin. Nanna elskaði Ísland og hún hlakkaði alltaf til að koma heim frá ferðalögum utanlands. Að ferðast með henni um landið okkar var un- un. Hún vissi yfirleitt hvað allt hét og hvar áttirnar voru og það var glampi í augum hennar þegar hún sagði frá. Ef hún vissi það ekki, þá vissi Lárus það. Hún fylgdist grannt með veðri og fréttum. Hún Nanna var bara alveg einstök og það var heiður að þekkja hana að ég tali nú ekki um að vera tengda- dóttir hennar. Alltaf fylgdist hún vel með manni, án þess þó nokkurn tím- ann að skipta sér af og hún studdi okkur í því sem við tókum okkur fyr- ir hendur jafnvel þótt hún væri ekki alltaf sammála öllu. Að syngja var henni yndi og nú syngur hún af öllu hjarta, huga og mætti í ríki Föðurins á himnum. Örugglega altrödd, það var hennar aðalsmerki í söng. Ég gæti fyllt þetta Morgunblað af hugsunum mínum og kynnum af henni Nönnu, en ég ætla að láta stað- ar numið hér, skoða myndir og lesa bréf sem ég á urmul af í fórum mín- um. Í minningabankanum mínum er mikið af yndislegum minningum um hana sem verður frábært að ylja sér við og reyna að fylla tómarúmið með. Það nefnilega getur enginn fyllt það skarð. Blessuð sé minning bestu tengda- mömmu í heimi, hún var mér sönn fyrirmynd. Árný Jóhanns. Ég get ekki látið hjá líða að minn- ast elskulegrar vinkonu minnar, allt frá æskudögum, Nönnu Nikulás- dóttur. Hún lést hinn 27. janúar sl., mér og öðrum mikill missir. Minningarnar hrannast upp um allar samverustundirnar á heimili hennar og manns hennar, sr. Lár- usar Halldórssonar, og á heimili mínu. Fari ég langt aftur í tímann er of- arlega í huganum dvölin í Flatey á Breiðafirði, en það var fyrsta presta- kall sr. Lárusar. Mér finnst hafa ver- ið sólskin, hvern dag sem ég dvaldi þar, og vart eru til orð yfir náttúru- fegurðinni, fjallahringnum og skín- andi hafinu. Eftir að þau fluttu suður var sr. Lárus lengst af prestur í Breiðholti. Nanna var frábær húsmóðir, myndarleg í öllum verkum. Ég held að prestskonur verði að taka á ýmsu, sem aðrar húsnæður þurfa ekki. Allt fórst henni vel. Fyrir um 15 árum fengu þau hjón- in sér hjólhýsi, sem var komið fyrir í Skriðufellslandi í Þjórsárdal. Þang- að vorum við Guðni, maðurinn minn, oft boðin. Þar var gott að vera, sama gestrisnin og í borginni, og oft sól- skin. Eftir að ég missti manninn minn, Guðna Árnason, gerðu þau hjónin oft sitthvað til að létta mér lífið. Það voru farnir bíltúrar í nærsveitir og þá einhvers staðar komið við og drukkið kaffi. Ég á eftir að syrgja og sakna Nönnu mikið. Lífið verður ekki það sama. Guð blessi minningu hennar. Agnes Steinadóttir. Þú komst í Flatey á kyrrlátu vori með kærleika, ást þína og trú. Þú söngst af gleði í sérhverju spori þó svefninn þig geymi nú. Við kveðjum þig Nanna, sem vorum þar vestra, já, vinirnir hverfa á braut. Ég orð þessi mæli fyrir munn okkar flestra, sem munum þig, far vel í drottins skaut. (Einar Steinþórsson.) Elsku Lárus, Anna María, María Kristín, Sigga, Halldór og aðrir ást- vinir Nönnu. Innilegar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Megi minn- ingin um yndislega konu verða ljós í lífi ykkar. Við erum þakklát fyrir að hafa átt hana að vini. Hjartans þakk- ir fyrir allt. Gréta og Einar, Stykkishólmi. ÞÓRDÍS NANNA NIKULÁSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.