Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 21
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
SUÐURNES
Úthluta lóðum í Helguvík | Atvinnu- og
hafnarráð Reykjanesbæjar úthlutaði
nokkrum lóðum á athafnasvæðinu við
Helguvík á fundi sínum fyrir skömmu.
Almenna byggðafélagið ehf. sótti um og
fékk loforð fyrir lóðum við Fuglavík og
sömu afgreiðslu fékk umsókn frá Hýsi eign-
arhaldsfélagi ehf. Mest ehf. sótti um nokkr-
ar lóðir. Ráðið samþykkti að úthluta því lóð-
um við Fuglavík undir verslun. Jafnframt
samþykkti það að úthluta Mest lóð við
Hólmsbergsbraut með möguleika á stækk-
un í vestur.
Enga fiskþurrkun | Atvinnu- og hafn-
arráð Reykjanesbæjar vill ekki fá fisk-
þurrkun í bæinn. Á fundi ráðsins var lögð
fram umsókn frá J.H.S. ehf. um lóð fyrir
iðnaðarhús á hafnarsvæði fyrir rekstur
fiskþurrkunar. Ráðið hafnaði erindinu, þar
sem ekkert iðnaðarsvæði í Reykjanesbæ
hæfði slíkri starfsemi.
Grindavík | „Þetta styrkir okkur og gerir
okkur kleift að horfa lengra fram í tímann
eins og allir vilja geta gert,“ segir Heimir
Heimisson, framkvæmdastjóri verktakafyrir-
tækisins Heimis og Þorgeirs ehf. Grindavík-
urbær hefur gengið frá viljayfirlýsingu við
tvö verktakafyrirtæki, Heimi og Þorgeir og
Grindina ehf., um samvinnu um uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis í bæn-
um.
Hvort fyrirtæki fyrir sig tekur ákveðin
svæði á nýju byggingasvæði norðan Hóps-
brautar í alverktöku. Þau sjá um alla upp-
byggingu í hverfinu, svo sem gatnagerð,
lagningu gangstétta, malbikun, lýsingu og
fleira, auk þess að byggja og selja íbúðir og
atvinnuhúsnæði.
Á vegum bæjarins er verið að deiliskipu-
leggja þetta hverfi en Ólafur Örn Ólafsson
bæjarstjóri segir að á svæðinu sem fyrirtæk-
in taka að sér verði á annað hundrað lóðir
með á þriðja hundrað íbúðum, í einbýlis-
húsum, parhúsum, raðhúsum og fjölbýlishús-
um sem og atvinnuhúsnæði.
Þetta er nýjung í uppbyggingarstarfi í
Grindavík og segir Ólafur Örn að tilgang-
urinn sé að hraða uppbyggingu bæjarins.
Gatnagerð og annar undirbúningur er alfarið
á vegum fyrirtækjanna sjálfra sem í staðinn
sleppa við að greiða gatnagerðargjöld til
bæjarins.
Jafnframt leggur bæjarstjórinn áherslu á
að áfram verði nægilegt framboð af lóðum til
einstaklinga og annarra verktaka.
Heimir Heimisson hjá Heimi og Þorgeir
ehf. segir að 70 til 100 íbúðir verði byggðar á
því svæði í Grindavík sem það fyrirtæki fær
úthlutað, auk atvinnuhúsnæðis. Hann segir
áformað að hefja framkvæmdir næsta vetur
og hafa hverfið fullbyggt árið 2011. „Við eig-
um eftir að kanna nánar hvar þörfin er mest,
áður en við göngum frá endanlegu skipulagi
og hönnum byggingarnar, hvers konar íbúðir
mest þörf er fyrir,“ segir Heimir en tekur
fram að fyrirtækið hafi augastað á að byggja
fyrir ungt fólk.
Spennandi verkefni
„Ég sé fyrir mér að við munum sækja inn
á þann markað. Þetta hverfi er góður kostur
fyrir ungt fjölskyldufólk, meðal annars vegna
öflugs íþróttastarfs í nágrenninu, auk góðrar
þjónustu á öðrum sviðum. Ég tel að þetta sé
orðið valkostur fyrir ungt fólk af höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir hann.
„Það er nóg að gera, sem betur fer, og
verður áfram.
En þetta er líka spennandi og skemmtilegt
verkefni,“ segir Heimir. Fyrirtæki hans hef-
ur unnið mikið að gatnagerð fyrir Grindavík-
urbæ á undanförnum árum og er einnig að
byggja og selja íbúðarhús þar og víðar. Það
er með verkefni víða í gangi. Stærsta ein-
staka verkefnið um þessar mundir er gatna-
gerð á vegum Reykjavíkurborgar í nýju
hverfi við Úlfarsfell.
„Jú, það er gaman að taka þátt í uppbygg-
ingunni í Grindavík, enda margir spennandi
hlutir að gerast þar,“ segir Heimir.
Uppbyggingu flýtt í Grindavík með úthlutun hverfa til tveggja byggingaverktaka
Getum horft lengra fram í tímann
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Uppbygging Grindavíkurbær reynir að hraða
uppbyggingu nýs hverfis með því að úthluta
hluta þess til tveggja byggingaverktaka.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Valaskjálf Fosshótel | Hótelrými
Valaskjálfar á Egilsstöðum verður
rekið undir merkjum Fosshótela
næstu tíu ár, skv. nýju samkomulagi
þar um. Á að opna hótelið næsta
miðvikudag og hafa opið árið um
kring. 39 herbergi verða á hótelinu
og verður farið í nokkrar end-
urbætur, auk þess sem til stendur að
opna ítalskan veitingastað í húsinu
með vorinu. Samkomusalur hússins
er í eigu annarra aðila og tengist
ekki hótelrekstrinum. Kári Hlíðar
Jósefsson hefur verið ráðinn hót-
elstjóri Valaskjálfar. Fosshótel hafa
afráðið að ljúka samstarfi við hótel á
Reyðarfirði sem starfað hefur sem
Fosshótel undanfarin ár.
Seyðisfjörður | Umhverfisráðherra
hefur úrskurðað að ákvörðun
Skipulagsstofnunar frá 2005 um að
virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði skuli
ekki háð mati á umhverfisáhrifum
skuli standa óhögguð.
Ráðuneytinu bárust fimm stjórn-
sýslukærur í september sl. Segir í
úrskurðinum að fyrirhuguð fram-
kvæmd við virkjun Fjarðarár í
Seyðisfirði feli í sér stækkun miðl-
unarlóns í Heiðarvatni, að gert
verði nýtt lón við Þverá, auk jöfn-
unarlóns og minni inntakslóna. Í
hinni kærðu ákvörðun er vísað til
umsagnar Umhverfisstofnunar um
að ekki sé líklegt að framkvæmdin
hafi umtalsverð áhrif á gróður. Á
áhrifasvæði fyrirhugaðrar virkj-
unar séu fossar sem njóta sér-
stakrar verndar. Ráðuneytið telji
að tilhögun framkvæmdaraðila á
framkvæmdinni sé til þess fallin að
draga úr sjónrænum áhrifum á
fossa. Fossar í Fjarðará séu ekki á
náttúruminjaskrá eða náttúru-
verndaráætlun.Telji ráðuneytið því
ekki líklegt að fyrirhugað fram-
kvæmd muni hafa umtalsverð um-
hverfisáhrif.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gufufoss í Stöfum Einn af nokkrum fossum ofan Seyðisfjarðar sem eiga
að geta haldist nokkurn veginn óbreyttir þrátt fyrir virkjun Fjarðarár.
Virkjun Fjarðarár
ekki í umhverfismat
Neskaupstaður | Árlegt komma-
blót var haldið í fertugasta sinn
um liðna helgi, en það er annað af
tveimur þorrablótum sem haldin
eru í Neskaupstað.
Það voru þeir fóstbræður Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri í
Fjarðabyggð, og Smári Geirsson,
forseti bæjarstjórnar í Fjarða-
byggð, sem sömdu og fluttu ann-
álinn ásamt aðstoðarfólki, líkt og
verið hefur til fjölda ára. Við-
fangsefni annálsins voru af marg-
víslegum toga. M.a. var fráfarandi
forstjóri Síldarvinnslunnar, Björg-
ólfur Jóhannsson, svo gott sem
jarðsunginn í mikilli kveðjuræðu
og forstöðulæknir fjórðungs-
sjúkrahússins setti bæjarstjórann
í nýja sneiðmyndatækið til að
komast að hans innstu þrám. Í
ljós kom að bæjarstjórinn þráði
ekkert heitara en að vera danski
mjólkurtæknifræðingurinn Jeff
Clemmensen.
Blótið var vel sótt, en hátt í 300
manns hlógu sig máttlausa að
hnyttnum og skemmtilegum atrið-
um þetta árið.
Kommablótið í fertugasta skiptið
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sneiðmyndataka undirbúin Jón Björn Hákonarson ræðir við Guðmund
Bjarnason bæjarstjóra. Við hlið hans stendur Smári Geirsson, forseti bæj-
arstjórnar Fjarðabyggðar, í hlutverki Björns Magnússonar læknis.
Seyðisfjörður | Í vikunni bauð
Seyðisfjarðarskóli til uppskeruhá-
tíðar í félagsheimilinu Herðubreið í
lok færeyskrar þemaviku, þar sem
allir 60 nemendur skólans hafa unn-
ið saman að ýmsum verkefnum.
Nemendum var skipt í blandaða
hópa; heimasíðusmiðju, tónlistar-
smiðju, fjölmiðlasmiðju, listasmiðju,
smíðasmiðju, kynningarsmiðju og
eldhússmiðju.Afrakstur færeysku
vikunnar er m.a. heimasíðan http://
seydisfjardarskoli.sfk.is/Færeyar,
viðtal við færeyskan Seyðfirðing,
ýmiskonar plaköt og myndræn
framsetning á fróðleik um Færeyj-
ar, eftirgerðir af hvalvopnum og
líkön af fólki í færeyskum þjóðbún-
ingum, færeyskir réttir og nem-
endur fluttu færeysk sönglög.
Þrír kennaranemar frá Færeyj-
um komu í Seyðisfjarðarskóla og
kynntust nemendum og unnu með
þeim; þau Rúni Mortensen, Finn-
björn Vang og Eygló Björg Jó-
hannsdóttir og sögðust krakkarnir
hafa lært mikið af þeim. Þá var tek-
inn saman íslensk/færeyskur orða-
listi og kennir þar margra grasa.
M.a. sést þar að íslenska orðið nem-
andi er næmingur á færeysku.
Skólastjóri Seyðisfjarðarskóla er
Þorsteinn Arason.
Litið til frændþjóðar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Unnið saman Erling Arnar Erlingsson sýnir skólasystkinum haganlega
eftirgerð af hvalvopni sem hann smíðaði í tilefni færeyskrar þemaviku.
Njarðvík | Allar lóðir í Ásahverfi í Njarð-
vík runnu út á fáeinum dögum. Í hverfinu
eru 130 lóðir.
Reykjanesbær auglýsti lóðirnar á
þriðjudaginn í síðustu viku og var það fyr-
irkomulag viðhaft að þeir sem fyrstir
sóttu um gátu valið sér bestu lóðirnar. Í
ljós kom að mikill áhugi var á lóðunum og
runnu þær út á nokkrum dögum. Það var
því slegið hraðamet í lóðaúthlutunum hjá
umhverfis- og skipulagssviði bæjarins, að
því er fram kemur á vef Reykjanesbæjar.
Hraðamet í úthlutun lóða