Morgunblaðið - 03.02.2006, Side 31

Morgunblaðið - 03.02.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 31 UMRÆÐAN KÓPAVOGUR er næst stærsti bær landsins og hefur hann stækk- að ört á síðustu árum. Íbúum í Kópavogi hefur fjölgað um 17,2% frá því á árinu 1999 eða um 2,9% á ári. Á sama tíma hefur íbú- um alls landsins fjölg- að um 4,6% eða 1,2% á ári og íbúum Reykjavíkur um 4,6% eða 0,8% á ári. Kópa- vogur sker sig úr að þessu leyti með ýms- um öðrum sveit- arfélögum, t.d. Hafn- arfirði þar sem fjölgunin hefur verið álíka og í Kópavogi. Verkefni sveit- arstjórnar á hverjum tíma er að skapa þau skilyrði að fólki finn- ist fýsilegt að búa og setjast að í bænum. Hluti af því er að skapa skilyrði fyrir atvinnulífið svo það vaxi og dafni og haldist í hendur við annars konar þróun í sveitarfélögum. Kópavogur hafði lengi á sér það nafn að vera svefn- bær. Fyrstu íbúar í Kópavogi sóttu auðvitað vinnu til Reykjavíkur á sínum tíma, en smám saman fór að þróast öflugt atvinnulíf í bænum og í dag eru mörg af stærstu fyr- irtækjum landsins, t.d. BYKO, Málning og Toyota o.fl. með höf- uðstöðvar sínar í Kópavogsbæ. Það má hins vegar ekki einblína um of á stærstu fyrirtækin, sköpun starfa, þróun, afleidd áhrif o.s.frv. tengjast ekki síður minni fyr- irtækjum. Markviss stefna í atvinnumálum skiptir miklu máli fyrir þróun bæj- ar eins og Kópavogs. Það þarf að vera algerlega ljóst fyrir alla hlut- aðeigandi hvaða stefnu bæjaryf- irvöld hafa, hvaða áherslur eru um ákveðnar greinar, gerð fyrirtækja, stærð þeirra o.s.frv. Þá er ekki síður mikilvægt að upplýsingar um þróun atvinnusvæða, lóða- framboð o.s.frv. liggi fyrir með aðgengileg- um hætti fyrir þá sem þess óska. Það er kannski dæmigert fyrir stjórn bæjarins síðustu ár að ekkert er að finna um atvinnumál eða at- vinnulíf á heimasíðu bæjarins. Hver sem er getur sannreynt þetta með því að slá t.d. orðin „atvinnu- mál“, „atvinnulíf“ eða „atvinnu- málanefnd“ inn í leitarglugga á heimasíðu bæjarins. Niðurstaðan er alltaf sú sama, þessi orð finnast ekki á heima- síðunni og það þýðir með öðrum orðum að lítið er hugað að þessum málum í þjónustu bæjarins, allavega form- lega séð. Kópavogur hefur á síðustu árum haft orð á sér fyrir klíkuskap af ýmsu tagi. Í sambandi við atvinnu- málin er sú spurning áleitin hvort þeim málum hafi ekki verið haldið allt of lengi í höndum ákveðinna fárra einstaklinga sem stjórna bænum. Það er t.d. augljóst að fólk eða fyrirtæki sem þurfa á þjónustu bæjarins að halda geta ekki gengið að skýrum og augljósum upplýs- ingum um þjónustu bæjarins á þessu sviði á heimasíðunni. Þessu þarf að breyta án tafar þannig að stefna bæjarins sé skýr og öllum ljós. Ég tel að það sé mikilvægt að stefna að flóru fjölbreytilegra fyr- irtækja í Kópavogi. Stærri fyr- irtækin eru auðvitað mikilvæg og hafa skapað sér góða stöðu. Ég tel hins vegar að mikilvægt að hlúa að stöðu smærri fyrirtækja með betri þjónustu af hálfu bæjaryfirvalda. Mikið hefur verið rætt um Vís- indagarða eða þekkingarþorp fyrir hátækni- og sprotafyrirtæki. Fyrir nokkrum árum voru þrjú svæði einkum í umræðunni hvað þekk- ingarþorpin varðar; Vatnsmýrin, Lundur í Kópavogi og Urriðaholt í Garðabæ. Minna hefur verið um aðgerðir og efndir í sambandi við uppbyggingu á þessum stöðum en um var rætt á sínum tíma. Lundur er algerlega úr sögunni hvað þetta varðar og hin verkefnin tvö virðast hafa verið sett á ís. Það er því lag fyrir bæ eins og Kópavog að bjóða upp á svæði fyrir starfsemi af þessu tagi þar sem stefnt yrði að samþjöppun hátæknifyrirtækja og markvissri og góðri þjónustu af hálfu bæjarins, t.d. húsnæði á góð- um kjörum, hvatningu o.s.frv. Flóra fjölbreytilegra fyrirtækja í Kópavog Eftir Jón Júlíusson ’Ég tel að það sémikilvægt að stefna að flóru fjölbreytilegra fyrirtækja í Kópavogi.‘ Jón Júlíusson Höfundur er íþróttafulltrúi Kópavogs og gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi. Prófkjör Kópavogur NÚ ER liðinn meira en mánuður síðan bæjarfélög ákváðu álagningu fasteigna- gjalda í tengslum við afgreiðslu fjárhags- áætlunar 2006, en all- an janúarmánuð hafa samt ýmis sveitar- félög verið að lækka álagningarforsendur. Hér í Kópavogi hafa liðs- menn Samfylking- arinnar haft hátt og full- yrt að fasteignagjöld séu hæst í Kópavogi. Til að glöggva sig á þessu öllu hef ég tekið saman fast- eignagjöld á höfuðborg- arsvæðinu, samanber meðfylgjandi töflu. Þar kemur í ljós að Seltjarn- arnes og Kópavogsbær eru með lægstu fast- eignagjöldin en aðrir eru hærri. Það er skrýtin pólitík vinstri- manna í Kópavogi að reyna að út- hrópa sitt eigið sveitarfélag alls- staðar sem mögulegt er, vitandi vits að það er farið með rangt mál. Um fasteignagjöld Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson svarar grein Haf- steins Karlssonar Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. ’… Seltjarnarnes ogKópavogsbær eru með lægstu fasteignagjöld- in …‘ STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ritar grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann finnur ráðstefnunni Orkulindin Ís- land allt til foráttu. Skal hér brugðist við nokkrum atriðum sem fram koma í grein formannsins, en þar er vægast sagt af mörgu að taka. Um könnun Gallup Fyrst ber að nefna umfjöllun formannsins um könnun sem IMG Gallup gerði að beiðni Samtaka at- vinnulífsins um afstöðu til virkj- ana, áliðnaðar og um- hverfismála. Könnunina er hægt að skoða í heild á vef SA, sa.is. Spurt var tólf spurninga og kýs formaðurinn að ein- blína á eina sem sker sig nokkuð úr, en þegar spurt er hvort svarendur séu hlynntir eða andvígir frekari uppbyggingu áliðnaðar hér á landi segjast 47,5% vera hlynnt, 37% andvíg en 15,5% taka ekki af- stöðu. Formaðurinn segir þetta sýna að þjóðin sé þverklofin í afstöðu sinni. Athygl- isvert er að bera þessa niðurstöðu saman við svörin þar sem upp- bygging áliðnaðar er tengd virkjun endurnýjanlegra orkuauðlinda. Þegar spurt er hvort svarendur séu jákvæðir eða neikvæðir gagnvart frekari upp- byggingu áliðnaðar sem byggir á gufuaflsorku segjast 58,6% vera jákvæð, 25,6% neikvæð og 15,7% taka ekki afstöðu. Ef spurt er á sama hátt um vatnsorku og áliðn- að eru 52,6% jákvæð, 33,7% nei- kvæð en 13,7% taka ekki afstöðu. Stuðningur við áframhaldandi uppbyggingu áliðnaðar mælist sem sagt mun meiri þegar sú upp- bygging er tengd virkjun orkuauð- lindanna. 10% andvíg frekari virkjun gufuafls Með virkjun fallvatna eða há- hitasvæða til raforkuframleiðslu og sölu til orkufrekra iðnfyr- irtækja er orkuauðlindum Íslands umbreytt í útflutningstekjur. Óhjákvæmilegt er að fjalla um uppbyggingu virkjana og stóriðju saman því frekari uppbygging ál- iðnaðar án þess að virkjað sé er ekki möguleg. Mikil neikvæð um- ræða um virkjanir og áliðnað virð- ist hins vegar hafa meiri áhrif á afstöðu fólks til áliðnaðarins held- ur en til orkuiðnaðarins. Erfitt er að fullyrða um ástæður þess, en þess má þó geta að þótt 72% svar- enda telji álfyrirtæki á Íslandi standa sig vel í umhverfismálum (en 16% illa) þá eru það vissulega álverin fremur en virkjanirnar sem valda mengun. Álver sem byggja á kolabrennslu valda þó 5–6 sinnum meiri mengun en álver sem byggja á endurnýjanlegum orkulindum, líkt og hér á landi. Ál verður áfram framleitt í heiminum og við notum öll hluti og þjónustu sem byggir á áli. Ekki verður lokið við þessa um- fjöllun um könnun IMG Gallup án þess að rifja upp að 57% svarenda eru hlynnt frekari virkjun vatns- afls hér á landi, 28% andvíg, og að 77% svarenda eru hlynnt frekari virkjun gufuafls hér á landi, 10% andvíg. Í umræðunni er spjót- unum gjarnan beint gegn frekari virkjunarframkvæmdum sökum áhrifa þeirra á náttúru landsins. En eru þessar mælingar vitn- isburður um að þjóðin sé þver- klofin í afstöðu sinni til virkjana? Áhrifin á aðrar útflutningsgreinar Formaðurinn lýsir furðu sinni á því að Samtök atvinnulífsins komi að ráðstefnuhaldi þar sem m.a. er vakin athygli á ýmsum jákvæðum áhrifum ál- og orkuframleiðslu á íslenskt samfélag. Spyr hann m.a. hvort samtökin séu ekki jafnframt samtök annarra útflutnings- og samkeppnisgreina, sem hann segir nú sem óðast „rutt úr vegi í þágu álvæðing- arinnar“. Þess ber hér fyrst að geta að hátt gengi íslensku krón- unnar verður ekki nema að hluta rakið til mikilla virkjana- og álversframkvæmda, en kerfisbreytingar á fjármálamarkaði og mikil eignaaukning í kjölfarið vega þar þyngra. Hitt veit for- maðurinn mætavel, að Samtök atvinnu- lífsins (og Samtök iðnaðarins sem fá sömu gagnrýni for- mannsins) hafa ítrek- að og árum saman haldið fram nauðsyn öflugra mótvægis- aðgerða í fjármálum hins opin- bera, einmitt til þess að forðast svonefnd ruðningsáhrif af stór- framkvæmdum á sviði orku- og ál- iðnaðar. Samtökin hafa árum sam- an gagnrýnt ríki og sveitarfélög fyrir að standa sig ekki nægilega vel í þessum efnum. „Þrælabúðir“ Að lokum er rétt að gera hér at- hugasemd við þær köldu kveðjur sem formaðurinn sendir því fólki sem starfar að framkvæmdunum við Kárahnjúkavirkjun. Þarna vinna þúsundir karla og kvenna á grundvelli sérstaks kjarasamn- ings, svonefnds virkjunarsamn- ings, sem ákvarðað hefur lág- markskjör við allar virkjunar- framkvæmdir frá því á 8. áratug síðustu aldar og felur m.a. í sér hærri launataxta en í gildi eru fyr- ir sambærileg störf utan virkj- unarsvæða. Á þessum þenslutím- um hefur ekki gengið vel að manna þessi hálendisstörf Íslend- ingum enda mikil umframeft- irspurn eftir starfsfólki. Engu að síður hafa hundruð Íslendinga kosið að starfa við þessar fram- kvæmdir á hálendinu, flestir hjá íslenskum undirverktökum að- alverktakans en þó hefur hann haft umtalsverðan fjölda Íslend- inga í vinnu, þótt stór meirihluti sé af erlendu bergi brotinn. Að- búnaður og aðstæður við byggingu Kárahnjúkavirkjunar eru á allan hátt sambærileg við fyrri virkj- unarframkvæmdir á hálendinu og eftirlitsstofnanir og verkalýðs- hreyfing fylgjast náið með því að farið sé eftir þeim reglum sem um framkvæmdirnar gilda. Það er því ekki sæmandi af formanninum að nota orðaleppinn „þrælabúðir“ um þennan vinnustað. Formanni svarað Gústaf Adolf Skúlason svarar Steingrími J. Sigfússyni Gústaf Adolf Skúlason ’77% svarendaeru hlynnt frek- ari virkjun gufu- afls hér á landi, 10% andvíg.‘ Höfundur er forstöðumaður stefnu- mótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum atvinnulífsins. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.