Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÓLGAN meðal múslíma vegna teikninganna í Jyllands-Posten og mörgum öðrum dagblöðum í Evrópu og víðar um heim heldur áfram og margir óttast, að sums staðar kunni að sjóða upp úr eftir föstudagsbænir í dag. Þó eru þess farin að sjást merki, að múslímum sjálfum og rík- isstjórnum í löndum þeirra sé farið að finnast nóg komið. Hafa þær sum- ar mildað nokkuð tóninn í þessu máli og í Danmörku eru hófsamir múslím- ar farnir að óttast afleiðingarnar og þeir krefjast þess, að íslamskir klerkar í Danmörku gangi fram fyrir skjöldu í því að lægja öldurnar. Per Stig Møller, utanríkisráð- herra Danmerkur, segir, að það geti oltið á föstudagsbænum múslíma í dag hvort æsingarnar haldi áfram og vindi enn upp á sig eða hvort það fari að sjá fyrir endann á þeim. Segir hann, að birting teikninganna í öðr- um evrópsku fjölmiðlum þurfi ekki að vera góðs viti, heldur þvert á móti. Hætta sé á, að múslímar túlki það sem beina ögrun hinnar kristnu Evr- ópu við þá og trú þeirra. Fjölmiðlar í löndum múslíma hafa fordæmt teikningar og til dæmis sagði Samir Ragab, ritstjóri Al- Gomhurriya, eins af þremur stærstu ríkisblöðunum í Egyptalandi, að „heimsbyggðin verður að átta sig á því, að árásar á spámanninn verður ekki látið óhegnt“. Sagði hann, að skoðana- og tjáningarfrelsi skiptu hér engu máli, heldur væri um að ræða „samsæri gegn íslam og músl- ímum, sem hefur verið að gerjast ár- um saman og mun eflast verði ekki gripið í taumana“. Hefði hjálpað að drepa Rushdie! Nazem al-Masbah, háttsettur klerkur í Kúveit, hefur gefið út eins konar trúarlega tilskipun um, að allir þeir, sem gerðu teikningarnar í Jyl- lands-Posten, skuli drepnir. „Þeir, sem móðga spámanninn skulu drepnir,“ sagði klerkurinn að því er fram kom á sjónvarpsstöðinni al- Arabiya en ýmsir aðrir trúarleiðtog- ar í Kúveit vara við yfirlýsingu al- Masbah og segja hana munu skaða ímynd íslams. Hassan Nasrallah, yfirmaður Hezbollah-hreyfingar sjíta í Líb- anon, segir, að það hefði hjálpað að drepa breska og múslímska rithöf- undinn Salman Rushdie en hann vakti reiði trúbræðra sinna með bók- inni „Söngvum Satans“. Khomeini, erkiklerkur í Íran, dæmdi hann á sínum tíma til dauða fyrir guðlast og enn eru Íranar reiðubúnir að greiða hverjum þeim, sem myrðir Rushdie, 175 millj. ísl. kr. „Ef einhver múslími hefði orðið til að drepa trúvillinginn, hefði enginn maður í Danmörku, Noregi eða Frakklandi þorað að feta í fótspor hans,“ sagði Nasrallah. „Ég er viss um, að milljónir múslíma eru tilbún- ar að fórna lífinu til að verja heiður spámannsins og við verðum að búa okkur undir það.“ Einn af ritstjórum France Soir rekinn Jacques Lefranc, einn af ritstjór- um franska dagblaðsins France Soir, sem birti teikningarnar í Jyllands- Posten, var í gær rekinn úr starfi og var það ákvörðun eigandans, Ray- mond Lakah, sem er egypskur. Seg- ir hann myndbirtinguna óviðunandi en blaðið, sem berst í bökkum fjár- hagslega, hefur nú verið bannað í Marokkó og Túnis. Athygli vekur hins vegar, að aðalritstjóri blaðsins, Serge Faubert, er enn í sínum stól en hann segist aldrei munu biðjast af- sökunar á teikningunum. Sagði hann í blaðinu í gær, að kominn væri tími til að slá skjaldborg um hið lýðræð- islega samfélag og verja það árásum ritskoðunar og trúarofstækis. Afstaða frönsku stjórnarinnar er sú, að France Soir beri alla ábyrgð á birtingu teikninganna en franskir sósíalistar hafa mótmælt brott- rekstri Lefranc og lýst yfir stuðningi við blaðamenn, sem nú liggja undir hótunum. Segja þeir, að „tjáningar- frelsið og frelsi fjölmiðla sé trygging fyrir framtíð okkar og frelsi“. Teikningarnar í jórdönsku blaði Teikningarnar umdeildu af spá- manninum birtast í æ fleiri blöðum og nú hefur meira að segja íslamskt vikublað, Al-Shihan í Jórdaníu, birt þær. „Múslímar um allan heim, sýnið stillingu,“ segir ritstjórinn í grein með teikningunum en á einni þeirra er Múhameð sýndur með túrban í sprengjulíki. „Hvort er verra fyrir íslam, þessar skopmyndir eða mynd- ir af gíslatökumönnum að skera fólk á háls, af mönnum, sem sprengja sig upp í brúðkaupi í Amman?“ segir rit- stjórinn og bætir við, að myndirnar birti hann til að fólk viti hverju það sé að mótmæla. Í Svíþjóð hefur lítill stjórnmála- flokkur, hinn hægri- og þjóðernis- sinnaði Sverigedemokraterna, hvatt lesendur málgagnsins, SD-Kuriren, til að senda inn teikningar af spá- manninum og hafa samtök múslíma brugðist við því með hótunum um að fá ríki íslams til setja viðskiptabann á sænskar vörur. Danir reiðir og óttast hryðjuverk Mikil reiði ríkir meðal Dana vegna þessa máls og þeirra hótana, sem þeim berast daglega um morð og önnur hryðjuverk. Enginn fer í graf- götur um, að líkurnar á slíkum at- burðum hafa aukist og sumir eru farnir að forðast samgöngumiðstöðv- ar eins og járnbrautastöðvar. Þeir, sem fara með lestum eða strætis- vögnum, hafa mikinn vara á sér og það er almenn afstaða, að um sé að ræða árás á tjáningarfrelsið og grundvallarréttindi þegnanna í lýð- ræðislegu samfélagi. Dönsku blaðamannasamtökin lýstu í gær yfir eindregnum stuðn- ingi við tjáningarfrelsið og vöruðu við tilraunum til að klekkja á því. Þögn þeirra fram að þessu hefur hins vegar vakið furðu og þau létu ekki í sér heyra fyrr en talsmenn allra helstu fjölmiðla í Danmörku lýstu því yfir í viðtali við Jyllands-Posten, að þeir myndu í engu láta árásir músl- íma hafa áhrif á sig. Skerist í leikinn eða … Hófsömum múslímum í Dan- mörku er raunar hætt að lítast á blikuna og einn þeirra, þingmaður- inn Naser Khader og varaformaður í dansk-palestínska vinafélaginu, sagði í fyrradag, að nú yrðu múslím- aklerkar í landinu, sem bæru mikla ábyrgð á deilunni, að skerast í leik- inn. Það yrðu þeir að gera fyrir föstudagsbænirnar í dag, að öðrum kosti gæti málið vaxið enn og haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir múslíma og alla aðra. Óttast að upp úr sjóði eftir bænahald í dag AP Nokkur hópur múslíma baðst fyrir á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn í gær en þeir höfðu haft veður af því, að þar ætlaði fólk að koma saman til að brenna Kóraninn og palestínska fánann. Var lögreglan hins vegar við öllu búin. Ofstækið og upp- námið meðal múslíma vegna teikninganna af Múhameð valda vaxandi áhyggjum             &    $%   '      () #      * '  ' '  "    +#  "      #       *, %-          !"#!$%&&' (/,64 7 1>## ./ / %%7 # /.01 3&74H .23 9/7 # 3/&,7 # 4.51 (/&40/  #;!/%.4 A(77 # .13 ./$%%7 # .43 9, 7H 4.23 -$ 0,0//H%$ .41 -H:?M= NB% 7 # 2. $##7 #  O P  P  Q $ '   I " &$7 /H56 "?!7 J 2 "  #% 57 =$= *D77 #< (,&# 5$/,$/ %(1< ,&$%#$#4 /# /  &#$ &// / ;67H; 7 # %- /, -$= ,?M/#  #;&/%0/ 2$ 6 37 =$= 5$=, "!%0# / 24$ 6 37 =$= "R/ 1/&#4?0 M,0# 46 /!#% :B% (4 1R#% 57!= &#0/5$/, ,&$%#$#4 /# / 7 ' 8    ' %- 9 :  ;   B/7&#$#4 / (4 >$< / 5 / %!770=0 &#$ &// H# H  #;!/%0 &$; <=     '   "  # )$%!     %- ' '   '    #% / -!/0/ #$=4&#4# / -H= H $=<0,0/7!#0; DEILAN um teikningarnar af Múhameð spá- manni þykja sýna vel þann mikla mun, sem er á skoðunum vestrænna manna á lýðræði og tján- ingarfrelsi og á skoðunum múslíma, einkanlega í trúarlegum efnum. Hefur hún einnig kynt und- ir vangaveltum um, að fyrr eða síðar muni koma til mikils árekstrar með þessum ólíku menning- arheimum, hins kristna og hins íslamska. Sumar íslamskar öfgahreyfingar hafa hótað þegnum þeirra landa, þar sem teikningarnar hafa birst, dauða og tortímingu og ritstjórar viðkomandi fjölmiðla hafa harmað, að þær skuli hafa móðgað múslíma. Þeir leggja samt um leið áherslu á, að þeir hafi í krafti tjáningarfrelsisins fullan rétt til að birta skopmyndir af þessu tagi. „Þetta mál snýst ekki bara um teikningarnar, heldur um grundvallarreglur og gildi í lýðræð- islegu samfélagi,“ sagði Fleming Rose, blaða- maður á Jyllands-Posten, þar sem teikningarnar birtust fyrst. Þessi rök falla hins vegar ekki í frjóan jarðveg í íslömskum löndum þar sem trú- in er oftar en ekki æðri lögunum. Múslímar skilja ekki hvers vegna danska stjórnin hefur ekki refsað Jyllands-Posten og túlka það sem samsæri gegn íslam. Skoðanir danskra múslíma um málið eru raunar mjög skiptar og til dæmis hafa tveir klerkar þeirra komið til varnar dönsku sam- félagi og gildum þess í viðtali við sádi-arabískt dagblað. Segja þeir, að Jyllands-Posten hafi beðist afsökunar með fullnægjandi hætti og nú eigi að gleyma þessu máli. Hvað yrði um frelsið? Fréttaskýrendur á Vesturlöndum sögðu í gær, að múslímar yrðu að læra að umbera skop- myndir af guðdómnum á sama hátt og kristnir menn og gyðingar, það væri óhjákvæmilegur hluti af opnu og frjálsu samfélagi. „Getum við ímyndað okkur fjölmenningarlegt samfélag, sem reyndi að laga sig að öllum boð- um og bönnum ólíkra trúarbragða? Hvað yrði þá um frelsið til að hugsa, tala, já, um sjálft ferðafrelsið?“ var spurt í leiðara franska blaðs- ins France Soir í gær en það segir, að tími sé kominn til að slá skjaldborg um hið lýðræð- islega samfélag, jafnvel þótt einn af ritstjórum þess hafi verið rekinn fyrir að birta teikning- arnar umdeildu. Átök milli ólíkra menningarheima? AP Nokkur hundruð manna létu í gær ófriðlega við sendiráð Dana í Damaskus í Sýrlandi. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Calsíum og magnesíum FRÁ A ll ta f ó d ýr ir Nr. 1 í Ameríku APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa - Gulli betri fyrir bein, tennur og liðamót H á g æ ð a fra m le ið sla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.