Morgunblaðið - 03.02.2006, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Útsala
Klapparstíg 44 - sími 562 3614 • Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
Aukaafsláttur af útsöluvöru
föstudag og langan laugardag
Útsölulok
Föt
14.900 - 19.900 - 22.900
Allir jakkar
12.900
Allar buxur
4.500 - 5.900
SÍÐASTI ÚTSÖLUDAGUR LANGUR LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR
Ath. allar breytingar innifaldar
Laugavegi 47
S. 551 7575
Laugavegi 47
S. 552 9122
Stundum er erfitt að greina ámilli hvort tímarit þjónaþeim tilgangi að vera tímarit
eða minjasafn. Þetta kemur oft í
hugann þegar Skírni (ritstjórar
Sveinn Yngvi Egilsson og Svavar
Hrafn Svavarsson) er flett. Hér
verður drepið á nokkur atriði í rit-
inu, hausthefti 2005.
Fyrsta ritgerðin í Skírni að
þessu sinni er eftir Unni Birnu
Karlsdóttur og nefnist Gulls ígildi.
Gullfoss í umræðu um virkjanir.
Þetta er fróðleg grein og ítarleg.
Athygli vekur næsta ritgerð
Ímagismi og vortisismi, Stefnu-
yfirlýsingar í íslenskri þýðingu,
eftir Benedikt Hjartarson (og
fleiri) og fjallar um upphaf svo-
nefnds ímagisma í enskum bók-
menntum sem rekja má til ársins
1909. Greinar eftir Ezra Pound og
Wyndham Lewis sem fylgja eru
gagnlegar. Þetta er þörf upprifjun.
Bragi Halldórsson skrifar um
smásagnagerð Geirs Kristjáns-
sonar, Réttaður að viðstöddu miklu
fámenni, og tekst að varpa ljósi á
smásagnagerð Geirs og smásagna-
gerð eins og hún tíðkaðist á hans
tíma.
Katrín Axelsdóttir skrifar fræði-lega um Gunnlaug Leifsson
og Ambrósíus sögu.
Aðalgeir Kristjánsson tínir sam-
an mikinn og forvitnilegan fróðleik
um Fjónverja og íslensk fræði.
Þetta eru helstu ritgerðirnar í
Skírni en í Skírnismálum tengir
Baldur Hafstað m. a. Austfirð-
ingasögur og sögur af Vesturlandi
í „Tilgátu um aðferð“ og Magnús
Þorkell Bernharðsson fjallar um
málefni Mið-Austurlanda og er
ljóst af umfjöllun hans að þau
fræði eru öll vandasöm.
„Ritdómar“ eru nokkrir og má
sérstaklega nefna Ugla sat á kvisti
þar sem Valgerður Kr. Brynjólfs-
dóttir tekur fyrir sjálfsögur í
tveimur skáldsögum Gyrðis Elías-
sonar.
Skáld Skírnis er að þessu sinniVésteinn Lúðvíksson og er
hann kunnari fyrir skáldsögur sín-
ar en ljóð. Mér sýnist hann fara bil
beggja í þessum ljóðum, iðka ljóð-
rænu og vitsmunalegan skáldskap.
Æsa Sigurjónsdóttir veitir inn-
sýn í myndlist Haraldar Jónssonar,
Birtingarmyndir af líkamsástandi,
sem er myndlistarmaður Skírnis að
þessu sinni.
Frá ritstjórum greinir frá því að
nú verði skipt um ritstjóra og verð-
ur því ekki hafnað að þeir hafa
sinnt vestrænni menningarsögu í
víðum skilningi svo að gripið sé til
þeirra eigin orðalags en stundum
hefur ritið verið of fornfálegt að
mínu mati, skort tengsl við samtím-
ann. Á ég þá einkum við hið bók-
menntalega. Margt hefur þó verið
vel gert í tímaritinu.
Tímarit eða minjasafn?
’stundum hefur ritið verið of fornfálegt að
mínu mati, skort
tengsl við samtímann.‘
Svavar Hrafn
Svavarsson
johj@mbl.is
AF LISTUM
Eftir Jóhann Hjálmarsson
Sveinn Yngvi
Egilsson
Jón Kalman Stefánsson hlautí gær Íslensku bókmennta-verðlaunin 2005 í flokki fag-urbókmennta fyrir bókina
Sumarljós, og svo kemur nóttin,
sem Bjartur gaf út.
Í flokki fræðirita og bóka al-
menns efnis hlutu þau Kristín G.
Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur
C. Danto, Matthías Johannessen,
Silja Aðalsteinsdóttir og Eiríkur
Þorláksson verðlaunin fyrir verkið
Kjarval, sem Nesútgáfan gaf út.
Snæbjörn Arngrímsson, formað-
ur Félags íslenskra bókaútgefenda,
setti samkomuna og forseti Íslands
kynnti niðurstöðu dómnefndar og
afhenti verðlaunin. Verðlaunahöf-
undar ávörpuðu síðan gesti. Kristín
G. Guðnadóttir þakkaði fyrir sína
hönd og meðhöfunda sinna fyrir
verðlaunin.
Jón Kalman Stefánsson varpaði
fram þeirri spurningu í ávarpi sínu
til hvers höfundar skrifuðu. Hann
sagði nær að spyrja höfundana eins
og annað fólk til hvers þeir lifðu og
sagði að flestir höfundar glímdu
hver á sinn hátt við þessa spurn-
ingu.
Ekkert sjálfsagt
við það að lifa
Hann beindi síðan máli sínu að
þeirri hættu sem heiminum stafaði
af umhverfismengun og yfirgangi
bandarískra stjórnvalda á al-
þjóðavettvangi og sagði m.a.:
„Bandaríkin, þessi mikla þjóð sem
neitar að hlusta á rök vísinda-
manna, hið góða heimsveldi sem
skrifar ekki undir alþjóðasamninga
um verndun jarðar og flýgur síðan
með fólk á milli landa, pyndar það
fjarri Bandaríkjunum svo kvalaópin
trufli ekki svefn borgarans, trufli
ekki sjónvarpsdagskrána, uppfulla
af bíómyndum þar sem Bandaríkja-
menn bjarga heiminum.“ Jón Kal-
man hvatti síðan til þess að Íslend-
ingar sýndu sjálfstæði sitt
gagnvart Bandaríkjunum í verki
með því að mótmæla framferði
þeirra og hafa þannig áhrif á fram-
göngu íslenskra stjórnvalda. „Það
er nefnilega ekkert sjálfsagt við
það að lifa, vera til. Það er ábyrgð-
arhluti,“ sagði Jón Kalman Stef-
ánsson.
Þær Bryndís Halla Gylfadóttir
og Steinunn Birna Ragnarsdóttir
léku þrjú verk við athöfnina á selló
og píanó.
750 þúsund í verðlaunafé
í hverjum flokki
Þriggja manna lokadómnefnd,
skipuð þeim Hrefnu Haraldsdóttur,
Árna Bergmann og dr. Herdísi
Þorgeirsdóttur, sem var formaður,
valdi verkin úr tíu bókum sem til-
nefndar voru til verðlaunanna í
desember sl., fimm í flokki fag-
urbókmennta og fimm í flokki
fræðirita og bóka almenns efnis.
Tilnefndar fagurbókmenntir, til
viðbótar við Sumarljós, og svo kem-
ur nóttin, voru Hrafninn eftir Vil-
borgu Davíðsdóttur, Rokland eftir
Hallgrím Helgason, Sólskinshestur
eftir Steinunni Sigurðardóttur og
Tími nornarinnar eftir Árna Þór-
arinsson. Úr flokki fræðibóka voru
auk bókarinnar Kjarvals tilnefnd
verkin: Ég elska þig stormur eftir
Guðjón Friðriksson, Fuglar í nátt-
úru Íslands eftir Guðmund Pál
Ólafsson, Íslensk tunga I-III eftir
Guðrúnu Kvaran, Höskuld Þráins-
son og Kristján Árnason og Jarð-
hitabók eftir Guðmund Pálmason.
Bókmenntaverðlaunin nema 750
þúsund krónum í hvorum flokki,
auk þess sem afhent eru skrautrit-
uð verðlaunaskjöl og verðlauna-
gripir hannaðir af Jóni Snorra Sig-
urðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens
– opin bók á granítstöpli með nafni
verðlaunahöfundar og bókar hans.
Bókmenntir | Íslensku bókmennta-
verðlaunin afhent á Bessastöðum
Ábyrgðarhluti
að vera til
Morgunblaðið/Sverrir
Silja Aðalsteinsdóttir, Kristín G. Guðnadóttir, Jón Kalman Stefánsson og Ólafur Ragnar Grímsson.