Morgunblaðið - 03.02.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
Minnst 60% afsláttur
Tilboðsslár
Lagersala
1.-11. febrúar
40-70%
afslátturHverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
ZANO topparnir frá komnir
Flottir litir
Höfum opnað nýja snyrtistofu á
Tryggvagötu 28, 101 Reykjavík
Snyrtistofan tengist nýja Radisson SAS 1919 hótelinu, (gamla Eimskipafélagshúsinu)
Snyrtistofan Jóna býður Birnu Maríu og Lindu
velkomnar til starfa á Snyrtistofuna Jónu
Linda Björk
Júlíusdóttir
fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur.
Linda hefur margra ára
reynslu af snyrtingu og
fótaaðgerðum.
Birna María
Einarsdóttir
snyrtifræðingur
Snyrtistofan Jóna er núna á tveimur stöðum
Birna María og Linda
bjóða gamla og nýja
viðskiptavini velkomna á
nýju snyrtistofuna í
Tryggvagötu 28
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
SPENNANDI VIÐSKIPTATÆKIFÆRI FYRIR
FJÁRFESTA OG BYGGINGAVERKTAKA
Hef sérhæft mig í ráðgjöf og sölu byggingaréttar til
fjárfesta og byggingaraðila.
Fjölmörg spennandi viðskiptatækifæri og
áhugaverð verkefni af ýmsum stærðum í boði.
PANTAÐU TÍMA SEM ÞÉR HENTAR
Á skrifstofu Gimli kynni ég þér
kosti án skuldbindinga af þinni hálfu
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
heimilaði í gær verjendum sakborn-
inganna í Baugsmálinu að leggja
fram greinargerð endurskoðunar-
stofunnar PricewaterhouseCoopers
hf. ásamt fylgigögnum, en settur rík-
issaksóknari, Sigurður Tómas
Magnússon, hafði mótmælt fram-
lagningu gagnanna.
Í úrskurði héraðsdóms um þetta
atriði er vísað í bókun saksóknara
frá 27. janúar um mótmælin. Að mati
saksóknarans hafði Pricewater-
houseCoopers verið falið skv. verk-
beiðni að kveða á um hvort ákærðu
Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson hafi
gerst sekir um þá háttsemi sem þeim
er gefið að sök skv. ákæruliðum 33–
36. Líta yrði á greinargerðina sem
sérfræðiskýrslu um lagalega túlkun
á þeim ákvæðum sem til álita koma
að þessu leyti.
Verjendurnir sögðu á hinn bóginn
að sérfræðiskýrslur frá Deloitte end-
urskoðun hf., sem ákæruvaldið hefði
lagt fram sem ákærugrundvöll,
hefðu verið villandi og rangar og
hefði því verið leitað álits óháðra sér-
fræðinga á sama sérfræðisviði.
Skýrslurnar hefðu ótvírætt gildi við
mat á því hverjar staðreyndir máls-
ins væru og væri það brot gegn rétt-
indum sakborninga og jafnræði
málsaðila ef ekki væri heimilt að
leggja þær fram.
Í úrskurði segir að sönnunarmat
sé dómara frjálst í íslensku réttar-
fari og dómendur þessa máls gætu
óbundnir og ótruflaðir metið öll þau
málsatriði sem sérfræðingar málsað-
ilanna fjölluðu um í greinargerðum
sínum og skýrslum. Önnur megin-
regla íslensks réttarfars væri regla
um jafnræði málsaðila og væri það
andstætt þeirri reglu að synja
ákærðu um það að gögnin yrðu lögð
fram. Bar því að heimila framlagn-
inguna.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp úrskurðinn.
Héraðsdómur fellst á beiðni verjenda
Heimilt að leggja
fram greinargerð
RÁÐGJAFAR Seltjarnarnesbæjar
munu á næstunni leggja fram til-
lögu að deiliskipulagi fyrir Hrólfs-
skálamel í skipulagsnefnd bæj-
arins þar sem tekið er tillit til
sjónarmiða í nágrenni bygging-
arreitsins. Þetta segir Jónmundur
Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarn-
arnesbæjar. Formenn húsfélaga
allra húsa við Austurströnd höfðu
sent inn athugasemdir við fyr-
irhugað skipulag á svæðinu.
„Í kjölfar niðurstöðu kosninga
um deiliskipulag Hrólfsskálamels
og Suðurstrandar í sumar hafa
ráðgjafar bæjarins unnið að frek-
ari útfærslu deildiskipulags á
Hrólfsskálamel. Mér er kunnugt
um að þeir munu á næstu vikum
leggja fyrir skipulagsnefnd deili-
skipulag af svæðinu þar sem tekið
hefur verið mið af sjónarmiðum
íbúa í næsta nágrenni bygging-
arreitsins annars vegar um að
byggingamassinn á svæðinu verði
færður til þannig að ekki verði um
að ræða sex hæða byggingar á
svæðinu, en áður var ráðgerð sex
hæða bygging á horni Suður-
strandar og Nesvegar. Hins vegar
munu menn leggja til nýjar lausnir
að umferðarmálum á svæðinu til
þess að vinna gegn því að öll um-
ferð til og frá byggðinni fari um
Nesveg. Þannig má gera ráð fyrir
opnun tengingar út á Suðurströnd
sem létti á umferð upp Nesveg.“
Að sögn Jónmundar er vonast
til þess að tillagan með umrædd-
um breytingum geti farið í auglýs-
ingu um deiliskipulag á allra
næstu vikum að lokinni umfjöllun
skipulagsnefndar og að fram-
kvæmdir á svæðinu geti hafist síð-
ar á árinu.
Tillaga að deiliskipulagi á Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Ómar
Húsið sem hýsir Bónus verður rifið og þar á horninu stóð til að reisa 6 hæða byggingu. Nú hefur verið hætt við þau
áform, eftir að íbúar í húsunum við Austurströnd, sem eru gegnt Bónus við Nesveg, mótmæltu svo hárri byggingu.
Hætt við sex hæða byggingu
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sagði á fræðaþingi land-
búnaðarins sem hófst í gær að það
væri mikilvægt að greina rétt hina
alþjóðlegu þróun sem ætti sér stað í
landbúnaðinum, sjá tækifærin sem
hún skapaði, taka með bjartsýni og
sóknarhug á verkefnum sem hún
færði í stað þess að fara í varn-
arstöðu.
Ólafur Ragnar sagði að umræðan
um nýsköpun landbúnaðar og fram-
tíðarstefnu væri á margan hátt
tengd vegferð þjóðarinnar, um-
ræðum um þróunina á öðrum svið-
um.
„Stefnumótun þarf að taka mið af
fjölþættri arfleifð og líka alþjóðleg-
um áhrifaþáttum, straumunum sem
móta veröldina. Við erum ekki leng-
ur eyland fjarri kviku breytinganna
heldur hluti meginlands. Það sem
setur svip á aðra mun fyrr eða síð-
ar, frekar fyrr vegna vaxandi
tengsla, gera sig gildandi hér hjá
okkur. Kröfur og smekkur, viðhorf
og lífsstíll sem móta með öðru dag-
legt líf og valkosti í markaðsmálum
munu berast hratt til okkar.
Það er mikilvægt að greina rétt
hina alþjóðlegu þróun, sjá tækifær-
in sem hún skapar, taka með bjart-
sýni og sóknarhug á verkefnum sem
hún færir – fara ekki í varnarstöðu
því þessi þróun getur skapað ís-
lenskum landbúnaði fjölmörg ný
tækifæri; jafnvel er hægt að taka
djúpt í árinni og spá því að ef við
höldum rétt á spilum eigi íslenskur
landbúnaður í vændum bjarta sókn-
artíð, vaxtarskeið sem fært getur
bændum og þjóðinni allri fjölþætta
ávinninga.“
Ólafur Ragnar sagðist vera sann-
færður um að skyrið myndi á næst-
unni „slá í gegn“. Hann talaði enn-
fremur með afar jákvæðum hætti
um það markaðsstarf sem unnið
hefði verið í Whole Foods-búðunum
í Bandaríkjunum.
Mikilvægt að greina rétt
hina alþjóðlegu þróun
Morgunblaðið/Ómar
Forseti Íslands var einn framsögumanna á fræðaþingi landbúnaðarins.