Morgunblaðið - 03.02.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 11
FRÉTTIR
Fjárfestum
í fegurð
á morgun
„ … við byggjum ný hús
og leggjum nýja vegi:
það er skipulagslítil útþensla.
Slík borg er misskilningur.“
LANDSBANKINN kynnti í gær
Raunveruleikinn, gagnvirkan hermi-
leik sem fram fer á netinu, en í leikn-
um stjórna nemendur persónu við
tvítugsaldur og stýra henni áfram í
gegnum lífið.
Lífsskeiðið í Raunveruleiknum er
um 30 vikur eða eitt skólaár og á
þessum tíma munu nemendur þurfa
að taka ákvarðanir fyrir persónur
sínar, ákvarðanir á borð við hvernig
þau vilja borða, hvernig þau mennta
sig og hvar þau vilja sækja um
vinnu. Auk þess munu nemendur fá
verkefni í hverri viku og munu verk-
efni ganga út á að nota gagnaveitur
og reiknivélar á netinu.
Fyrst um sinn mun leikurinn vera
ætlaður sem samfélags- og fjármála-
kennsla í lífsleiknitímum 10. bekkja
grunnskólanna en aðgangsorð að
leiknum munu verða send öllum 10.
bekkjum á landinu og verða veitt
verðlaun fyrir þátttöku í leiknum. Í
hverjum mánuði mun sá bekkur og
einstaklingur sem bestum árangri
nær verða verðlaunaður.
Hugmyndin að sýna nemendum
hvað foreldrar eru að fást við
Ómar Örn Magnússon, kennari og
höfundur leiksins, sagði að leikurinn
hefði einungis verið Excel töflu-
reiknisskjal í upphafi og hafi hann
nýtt hann í lífsleiknikennslu sinni í
Hagaskóla. Fyrir fjórum árum hefði
hann hafið samstarf við Landsbank-
ann um þróun leiksins og sagði Óm-
ar að það hefði verið stórt skref enda
fjársterkur samstarfsaðili með öfl-
ugt upplýsingatækniteymi. Ómar
sagði að hugmyndin með leiknum
væri að sýna nemendum hvað for-
eldrar þeirra væru að fást við á degi
hverjum og kynna fyrir þeim hvað
biði þeirra í framtíðinni. Með því að
setja þessa kennslu upp í keppn-
isform hefði hann náð að höfða til
nemenda enn betur.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra skráði sig inn
sem fyrsti þátttakandinn í leiknum
við hátíðlega athöfn í gær. Við það
tækifæri benti hún á að leikurinn
sýndi hversu kennarar eru virkir í
nýsköpun á sviði menntunar og
fræðslu. Leikurinn væri einnig gott
tæki til að hvetja börn til að sýna
umhverfi sínu áhuga og þróa ímynd
sína og lífsstíl.
Raunveruleikurinn kynntur
Morgunblaðið/Sverrir
Björgólfur Guðmundsson, Ómar Örn Magnússon og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir opna Raunveruleikinn.
BORGARRÁÐ samþykkti sam-
hljóða í gær að óska eftir því við
Landsvirkjun að stofnun sölufyr-
irtækis Rarik, Orkubús Vestfjarða
og Landsvirkjunar verði frestað á
meðan fram fari skoðun á heimild
stjórnar Landsvirkjunar til að ráð-
stafa Laxárvirkjun fyrir rúmlega
einn milljarð kr. til sölufyrirtæk-
isins án samþykkis eigenda Lands-
virkjunar.
„Það kom borgarfulltrúum í
Reykjavík almennt á óvart að frétta
af því að stjórn Landsvirkjunar
væri búin að ákveða að ein af virkj-
unum Landsvirkjunar, Laxárvirkj-
un, hefði verið tekin út úr fyrirtæk-
inu og sett inn í þetta nýja
sölufélag, án þess að einn eig-
endanna, þ.e.a.s. Reykjavíkurborg
sem 45% eignaraðili í Landsvirkj-
un, væri spurð að því,“ segir Alfreð
Þorsteinsson, forseti borgarstjórn-
ar.
Hann segir verðmatið á Laxár-
virkjun einnig undarlega lágt og
mönnum þyki einkennilegt að Lax-
árstöðin sé í það lélegu ásigkomu-
lagi að hún sé ekki metin hærra en
á einn milljarð kr.
Nývirði virkjunarinnar
virðist vera 4 til 6 milljarðar
Í greinargerð með tillögu borg-
arráðsfulltrúa Reykjavíkurlistans,
sem samþykkt var í gær, segir að
það sé skoðun borgarráðs að eðli-
legt sé að óháðir
aðilar annist
verðmat á Laxár-
virkjun en ný-
virði hennar virð-
ist vera á bilinu
fjórir til sex
milljarðar.
,,Óskiljanlegt er
að ástand virkj-
unarinnar sé svo
lélegt, að einung-
is fáist ¼ –1/6 af nývirði,“ segir þar.
„Reykjavíkurborg hefur nokkr-
um sinnum leitað eftir því við ríkið
að fá Sogsvirkjanir til baka til
borgarinnar en því hefur ávallt ver-
ið hafnað af hinum stóreigandanum
í Landsvirkjun sem er ríkið,“ segir
Alfreð. ,,Það hlýtur alveg með sama
hætti að þurfa að spyrja okkur
hvernig okkur lítist á þegar Lax-
árstöðin er tekin með þessum hætti
út úr fyrirtækinu en það er ekki
gert.
Einnig er það athyglisvert að
nýja sölufyrirtækið verður ekki
dótturfélag Landsvirkjunar og ekki
hluti af samstæðu Landsvirkjunar.
Það er sýnilega verið að rýra efna-
hag Landsvirkjunar og auka
ábyrgðir núverandi eigenda. Sú
spurning vaknar hvort stjórn fé-
lagsins geti tekið eignir út úr félag-
inu og fært yfir í önnur félög án
lagaheimildar eða samþykkis eig-
enda. Spyrja mætti hvort stjórn
Landsvirkjunar geti þá næst tekið
einhverjar aðrar virkjanir, t.d. Búr-
fell eða Hrauneyjafoss, í einu lagi
eða hlutum út úr Landsvirkjun og
sett inn í sérstök félög,“ segir Al-
freð Þorsteinsson.
Hann bendir einnig á að talið hafi
verið nauðsynlegt að afla lagaheim-
ildar til að flytja eignir frá RARIK
inn í nýja sölufyrirtækið en eig-
endur Orkubús Vestfjarða hafi aft-
ur móti að því er virðist samþykkt
stofnun félagsins og tilfærslu eigna,
vegna þess Orkubúið er hlutafélag.
„Stjórn Landsvirkjunar getur því
ekki að mínu mati og mati borg-
arfulltrúa meirihlutans tekið þær
eignir sem eigendur hafa lagt til fé-
lagsins með eigendasamningum og
fært yfir í önnur félög. Afla þarf
samþykkis eigenda til slíkra meiri
háttar ráðstafana, að mínu mati.
Mér finnst þetta því mjög hæpið
lagalega séð, siðlaust og tilgang-
urinn virðist fyrst og fremst vera,
vegna þeirrar samkeppni sem er
smám saman að komast á, að
styrkja stöðu Landsvirkjunar á
kostnað Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja,“ segir Al-
freð.
Að sögn hans gerðu tveir af
þremur fulltrúum Reykjavíkur-
borgar í stjórn Landsvirkjunar at-
hugasemdir við þessa ráðstöfun
Laxárvirkjunar og sátu hjá við af-
greiðslu málsins en Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna, hafi greitt atkvæði með því.
„Mér finnst að það hafi ekki verið
skynsamlegt af honum að vinna
þannig gegn hagsmunum Reykvík-
inga í þessu máli,“ segir Alfreð.
Borgarráð vill að Landsvirkjun fresti stofnun sölufyrirtækis
Segja verðmat Laxár-
virkjunar undarlega lágt
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Alfreð
Þorsteinsson
JÓHANNES
Geir Sigur-
geirsson, stjórn-
arformaður
Landsvirkjunar,
sagði í samtali
við Morgun-
blaðið að hann
vildi sem minnst
tjá sig um þetta
mál þar sem
hann væri er-
lendis í fríi og hefði ekki getað
kynnt sér málið til hlítar.
Hann sagði þó að óháð verðmat
hafi farið fram og að stjórn Lands-
virkjunar hefði samþykkt þessa
ráðagerð mótatkvæðalaust.
„Stjórnin tók þessa ákvörðun
vegna þess að hún taldi að með
þessu væri hagsmunum fyrirtæk-
isins best borgið.“
Jóhannes vísaði á bug þeirri
gagnrýni að einn stærsti eigandi
Landsvirkjunar, Reykjavíkurborg,
hafi ekki verið látinn vita um
þennan ráðahag „Stjórnin er skip-
uð af eigendunum og stjórn-
armenn hafa áskilið sér eðlilegan
rétt til að ræða málefni fyrirtæk-
isins við sína umbjóðendur sem
þeir sitja fyrir. Þetta mál var rætt
á tveimur fundum og þar gafst
tóm á milli til að skoða málið
þannig að stjórnarmenn höfðu öll
tækifæri til þess.“
Auk þess sagði Jóhannes að
stjórn fyrirtækisins væri búin að
taka þessa ákvörðun og stjórnin
væri sjálfstæð sem lyti ekki boð-
valdi eigendanna, hvorki ríkis né
Reykjavíkurborgar.
Ef einhver eigandi vill taka upp
þetta mál aftur þá þyrfti hann að
gera það í samráði við meðeig-
endur sína.
Hafnar gagnrýni
borgarinnar
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Mývatnssveit | Fundarmenn á aðal-
fundi Veiðifélags Mývatns voru sam-
mála um að bleikjustofninn væri enn
í mjög djúpri lægð og þyrfti tíma til
að jafna sig. Góð samstaða náðist um
að takmarka vetrarveiði.
Aðeins verður leyft að vera með
net í vatninu frá 1. til 31. mars. Dorg-
veiði er heimil frá 1. febrúar en segja
má að hún hafi nú lagst af vegna
veiðileysis. Ákvörðun um sumarveiði
eða frekari friðun verður tekin á vor-
fundi. Á aðalfundinum sem haldinn
var um síðustu helgi var stjórn fé-
lagsins endurkjörin. Kári Þorgríms-
son í Garði er formaður.
Myndin er frá Slútnesi en þar eins
og víðar eru nú vakir í ísinn, vegna
hlýindanna undanfarna daga.
Bleikjustofninn
enn í djúpri lægð
Morgunblaðið/BFH