Morgunblaðið - 03.02.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 47
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga
kl. 14. Söngstund við píanóið eftir
kaffihléið kl. 15. Fótsnyrting og hár-
greiðsla alla daga frá 9-16.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna
kl. 9-12. Smíði/útskurður kl. 9-16.30.
Barðstrendingafélagið og Borgfirð-
ingafélagið | Félagsvist í Konnakoti á
morgun, laugardag, kl. 14.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaaðgerð,
frjálst að spila í sal.
Dalbraut 18 - 20 | Alltaf eitthvað um
að vera. Tungubrjótar upplestur/
framsögn á mánud., félagsvist á
þriðjud., leikfimi á mánud., söngur á
fimmtud., postulín á föstud. o.s. frv.
Núna stendur til boða myndlist-
arnámskeið á þriðjud. kl. 9-12. Þorra-
blótið hefst kl. 17 á föstudag. Uppl. í
síma 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, kl. 13-16,
föstudag. Námskeið I í postulínsmálun,
leiðbeinandi Sigurbjörg Sigurjóns-
dóttir. Næsta námskeið byrjar föstu-
dag 10. febrúar. Kaffiveitingar að hætti
FEBÁ. Auður og Lindi annast akstur,
sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í félagsheimilinu
Gjábakka kl. 20.30 í kvöld.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Sælu-
dagar á Hótel Örk vikuna 26.-31. mars
n.k. Skráning er hafin á skrifstofu fé-
lagsins. Námskeið í framsögn og upp-
lestri hefst 7. febrúar, leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson. Skráning og uppl. í
síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.30
boccia, kl. 10 spænska - framh., kl. 11
spænska - byrjendur, kl. 13.15 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, leikfimi kl. 10.45. Gleðigjaf-
arnir syngja kl. 14-15 27. jan og 10. og
24. febr. Bingó kl. 14 20. jan., 3. og 17.
febr.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Opið
í Garðabergi kl. 12.30-16.30. Búta-
saumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli. Slök-
unarjóga og teygjur kl. 12 í Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband og
fjölbreytt föndurgerð. Kl. 10.30 létt
ganga um nágrennið. Frá hádegi spila-
salur opinn. Mánud. 6. mars er þorra-
hlaðborð í hádeginu í Kaffi Berg. Uppl.
á staðnum og í s. 575 7720. Strætó
S4 og 12 stansa við Gerðuberg.
www.gerduberg.is
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun, smíðar og út-
skurður. Kl. 14.15 kemur Aðalheiður
Þorsteinsdóttir og leikur á píanóið
undir fjöldasöng fram að kaffi. Rjóma-
pönnukökur með kaffinu.
Glæsibær | Þorrablót SÁÁ verður
haldið í Glæsibæ laugardaginn 4. febr-
úar. Lúdó sextett leikur fyrir dansi,
fjölbreytt skemmtiatriði, veislustjóri
séra Gunnar Sigurjónsson. Húsið opn-
að kl. 19. Borðhald hefst kl. 20. Fé-
lagsstarf SÁÁ.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag-
blöðin. Almenn handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaaðgerð (annan hvern
föstudag), hárgreiðsla. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 14.45 bókabíll. Kl. 15 kaffi.
Kl. 14 bingó.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi kl. 11.30. Glerskurður kl. 13.30.
Brids kl. 13. Boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu kl. 9-12, postu-
línsmálning. Böðun fyrir hádegi. Fóta-
aðgerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005. Þorrablót, húsið opnað kl.
18, góður matur, söngur og dans.
Hæðargarður 31 | Alltaf eitthvað um
að vera. Fjölbreytt handverk í Lista-
smiðju alla daga. Brids á föstudögum,
„Skapandi skrif“ á mánudögum, fram-
sögn á þríðjudögum, tölvunámskeið á
laugardögum o.s.frv. Kíktu við í kaffi
og kynntu þér dagskrána eða hringu í
síma 568 3132 og fáðu hana senda
heim í pósti eða á netinu.
Norðurbrún 1, | Smiði kl. 9, myndlist
kl. 9-12, ganga kl.10, opin hárgreiðslu-
stofa kl. 9, sími 588 1288, leikfimi kl.
14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9.
Leirmótun kl 9. Hárgreiðsla kl. 9.
Morgunstund kl. 9.30, fótaaðgerð-
arstofa kl. 9.30, leikfimi kl. 10. Bingó kl.
13.30, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur
málsverður í Safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl.
16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. For-
eldramorgunn kl. 10-12. Kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja | Starf með eldri
borgurum alla þriðjudaga og föstu-
daga kl. 11-14. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Munið sam-
veru næsta laugardag 4. febr. kl. 11.15-
12 í Víkurskóla. Brúðuleikhús, söngur
og sögur, gleði og gaman. Verið dugleg
að mæta. Hittumst hress og kát.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstöddum.
Einnig tekið við bænarefnum. Kaffi-
sopi að lokinni athöfninni.
UM helgina verður Vagn Foldbo í heim-
sókn í Færeyska sjómannaheimilinu. Í til-
efni þess verður kvöldvaka á laugardaginn
kl. 20.30 og samkoma á sunnudag kl.
20.30. Kaffi á eftir. Allir eru velkomnir.
Heimsókn frá
Færeyjum
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Belladonna.
Norður
♠8
♥Á10 A/Enginn
♦ÁKG74
♣KG1042
Vestur Austur
♠K1097654 ♠D32
♥G842 ♥965
♦-- ♦D32
♣83 ♣ÁD65
Suður
♠ÁG
♥KD73
♦109865
♣97
Spilið að ofan er frá úrslitaleik Ítala
og Bandaríkjamanna á HM 1979.
Fimm tíglar voru spilaðir á báðum
borðum eftir sömu sagnir - hindrun
vesturs í spaða og láglitasögn norðurs:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- Pass Pass
3 spaðar 4 grönd * Pass 5 tíglar
Pass Pass Pass
Útspilið var líka hið sama í báðum
sölum - lítið hjarta.
Bandaríski sagnhafinn stakk upp ás
og það reyndist afdrifaríkt. Þegar
tromplegan kom í ljós í öðrum slag, var
ekki um annað að ræða en treysta á
hagstæða lauflegu, en hún var ekki til
staðar og austur fékk á ÁD.
Hinum megin var Belladonna við
stýrið. Hann lét hjartatíu úr borði í
byrjun (enda ástæðulaust annað) og
hún átti slaginn. Eftir tvo efstu í tígli,
tók Belladonna hjartaás, fór heim á
spaðaás og lagði niður hjartakóng.
Nú gerði vestur þau fínlegu mistök
að henda EKKI hjartagosa undir -
spilið sem sagnhafi vissi að hann ætti.
Þar með beið Belladonna með fjórða
hjartað, trompaði spaða og sendi aust-
ur inn á tíguldrottningu. Austur var í
vonlausri stöðu og valdi að spila spaða í
tvöfalda eyðu, en þá henti Belladonna
laufi heima.
Þessi leið stóð sagnhafa ekki til boða
á hinu borðinu eftir hjartaásinn í fyrsta
slag. Jafnvel þótt hann sendi austur
inn á réttum tímapunkti, situr hann
uppi með tapspil í hjarta í lokin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
LAUGARDAGINN 4. febrúar kl. 16
opnar Sigríður Ólafsdóttir sýningu
í sýningarrýminu Suðsuðvestur í
Reykjanesbæ.
Sýninguna nefnir Sigríður „Mál-
aðar myndir af fólki“. Með þeim
titli vísar hún til hefðbundins upp-
runa myndanna í portrett-
málverkum. Fyrirmyndirnar eru
fólk úr nánasta umhverfi lista-
mannsins; fjölskyldan, vinir og ann-
að fólk sem Sigríður hefur sam-
skipti við. Hún vinnur úr hverju
viðfangsefni til þrautar og málar
hverja fyrirmynd hvað eftir annað
til að ná fram ákveðnu ferli þar sem
nánd viðfangsefnisins víkur smám
saman fyrir yfirborðinu, þeim
formum og litum sem fyrirmyndin
framkallaði. Við það opnast nýjar
víddir og möguleikar í túlkun og
framsetningu. Hver mynd leiðir til
annarrar, hvert verk sprettur úr
öðru. Með þessu móti losar lista-
maðurinn sig frá fyrirmyndinni og
upp kemur spurningin hvort verkið
komist frá uppruna sínum, mann-
eskjunni sjálfri.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafn-
argötu 22 í Reykjanesbæ. Þar er
opið á fimmtud. og föstud. frá 16 til
18 og um helgar frá 14 til 17. Hægt
er að fá nánari upplýsingar á
www.sudsudvestur.is.
Sýnir í SSV
Útsala
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi
sími 554 4433
sem markmiðið er að fanga ákveðna
stemmningu fremur en ákveðna staði.
Skotið er nýr sýningakostur hjá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og er myndum
varpað á vegg úr myndvarpa.
Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á sýn-
ingum stendur yfir. Ný grunnsýning opnuð
1. maí nk.
Veiðisafnið Stokkseyri | Starfsár Veiði-
safnsins 2006 hefst með árlegri byssusýn-
ingu sem haldin verður laugardaginn 4. og
sunnudaginn 5. febrúar kl. 11–18. Allar nán-
ari upplýsingar á
www.hunting.is.
Þjóðmenningarhúsið | Fræðist um efni á
sýningunum Handritin, Þjóðminjasafnið –
svona var það, Fyrirheitna landið og Moz-
art-óperan á Íslandi. Njótið myndlistar og
ljúfra veitinga í veitingastofunni. Leiðsögn í
boði fyrir hópa.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á
fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Í kvöld spilar Evróvisjónhöf-
undurinn Hörður G. Ólafsson.
Classic Rock | Idol sýnt á stórum skjám.
Hljómsveitin Kvarts spilar.
Mannfagnaður
Kaffi Hljómalind | Dagskrá næsta Spuna-
kvölds: Amigo, Svimi og Úð. Í hléi verður
opnað fyrir skráningu atriða á stuttum
fundi. Spuni er öllum opinn og gjaldfrjáls.
Nánari upplýsingar og skráning á póstlista
er að finna á http://spuni.org
Fyrirlestrar og fundir
Kraftur | Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks
sem greinist með krabbamein og aðstand-
enda, heldur félagsfund í húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8, 4. hæð, 7.
febr. kl. 20. Jóhann Ingi Gunnarsson sál-
fræðingur flytur fyrirlestur og bókin: „Með
lífið að láni“ verður til sölu á kr. 2000.
Sögufélag | Nafnfræðifélagið efnir til
fræðslufundar 4. febrúar kl. 13.30, í húsi
Sögufélags í Fischersundi. Tryggvi Gísla-
son, fyrrv. skólameistari, talar um norsk ör-
nefni á Íslandi og undarleg örnefni í Eyja-
firði, örnefni sem borist hafa með norskum
landnámsmönnum til Íslands.
Útivist og íþróttir
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykja-
vík | Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík efnir til klukkutíma gönguferðar
fyrsta laugardag hvers mánaðar. Næsta
ganga verður farin frá Fella- og Hólakirkju
4. febrúar nk. kl 10.30. Allir velkomnir.
... og mundu eftir ostinum!