Morgunblaðið - 03.02.2006, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
SALKA VALKA
Fi 16/2 kl. 20 AUKASÝNING.
WOYZECK
AUKASÝNINGAR
Lau 11/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20
Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
SÝNINGAR UM HELGINA, UPPSELT.
SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA!
CARMEN
Í kvöld kl. 20 Lau 4/2 kl. 20
Fö 10/2 kl. 20 Su 19/2 kl. 20
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Fö 3/3 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 11/2 kl. 14 FORSÝNING UPPSELT
Su 12/2 kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 18/2 kl. 14 Su 19/2 kl. 14
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Í kvöld kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS.
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 4/2 kl. 20 UPPS. Su 5/2 kl. 20 UPPS.
Fi 9/2 kl. 20 UPPS. Fö 10/2 kl. 20 UPPS.
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Lau 18/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 Fi 23/2 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Su 12/2 kl. 20 Mi 1/3 kl. 20
NAGLINN
Í kvöld kl. 20 UPPS. Lau 4/2 kl. 20 UPPS.
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Su 12/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 UPPS. Lau 25/2 kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup
Fös. 3. feb. kl. 20 UPPSELT
Lau. 4. feb. kl. 19 UPPSELT
Lau. 4. feb. kl. 22 AUKASÝNING
Fös. 10. feb.kl. 20 Nokkur sæti laus
Lau. 11. feb.kl. 19 UPPSELT
Lau. 11. feb.kl. 22 AUKASÝNING
Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT
Lau. 18. feb kl. 22 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
Miðasala opin
allan sólarhringinn
á netinu.
Síðustu
sýningar!
Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum.
FÖS. 3. FEB. kl. 20
LAU. 4. FEB. kl. 20
FÖS. 10. FEB. kl. 20
LAU. 11. FEB. kl. 20
MIND CAMP
eftir Jón Atla Jónasson
FIM. 2. FEB.
SUN. 5. FEB.
EF
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
VESTMANNAEYJAR
ÞRI. 21. FEB KL. 9 - UPPSELT
KL. 11 - UPPSELT
KL. 18 - UPPSELT
Námsmenn og vörðufélagar frá miðann
á 1000 kr. í boði Landsbankans
TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI
! "
!" # $% # $ # % & # $ #
' $ # % ( # $ #
)))
*
& ' (( )!""
! "# $ %& '& ( )
* &)+,)+- & ! # #)
www.kringlukrain.is sími 568 0878
STUÐBANDALAGIÐ
FRÁ BORGARNESI
Leikhúsgestir! Munið glæsilega matseðilinn
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 3. febrúar - Örfá sæti
Laugardagur 4. febrúar - Örfá sæti
Sunnudagur 5. febrúar - Uppselt
Fimmtudagur 9. febrúar - Örfá sæti
Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og í síma: 575 1550
TVÆR ungar söngkonur, Steinunn
Soffía Skjernested og Dóra Stein-
unn Ármannsdóttir, hlutu í gær
styrk úr Styrktarsjóði Halldórs
Hansen. Hvor um sig hlaut 500.000
krónur í styrk.
Þetta er í annað sinn sem veitt er
úr sjóðnum, sem starfar undir væng
Listaháskóla Íslands. Meginmark-
mið hans er að styrkja uppbygg-
ingu og styðja við tónlistarsafn
skólans. Auk þess veitir sjóðurinn
árlega styrki til tónlistarnema sem
hafa náð framúrskarandi árangri að
mati sjóðsstjórnar. Er gert ráð fyr-
ir að styrkþegar hafi lokið námi á
háskólastigi.
Heiður og hvatning
Dóra Steinunn og Steinunn Soffía
sögðust báðar afar þakklátar fyrir
styrkinn í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta er mikill heiður
fyrir mig, og hvatning,“ segir Stein-
unn Soffía, en hún hóf mastersnám
við Síbelíusarakademíuna í Helsinki
í haust, þar sem kennari hennar er
Sirkku Wahlroos-Kaitila.
Þar sem Steinunn þarf ekki að
greiða skólagjöld við akademíuna
mun styrkurinn ekki fara í að
greiða þau. Hún fullyrðir þó að
hann muni koma sér afar vel. „Mað-
ur getur til dæmis notað hann til að
athuga með góða söngkennara í
sumar, eða óperustúdíó. Hann mun
að minnsta kosti koma sér vel.“
Í sama streng tók Dóra Steinunn.
„Það er nú búið að vera dálítið erfitt
að þegja yfir þessu, af því að maður
er svo stoltur af þessu sjálfur,“
sagði hún í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „En ég get ekki
sagt annað en að ég sé himinlif-
andi.“
Dóra Steinunn segist munu nýta
styrkinn í skólagjöld, en hún stund-
ar nú nám við óperudeild Tónlist-
arháskólans í Vínarborg. „En það
verður samt eitthvað eftir, enda er
þetta hár styrkur. Þetta kemur sér
mjög vel, því annars hefði ég þurft
að taka bankalán – enda fæ ég ekki
lán fyrir skólagjöldunum hjá LÍN.
Þannig að þetta er bara æðislegt.“
Að mati Hjálmars H. Ragn-
arssonar, rektors Listaháskólans,
er styrktarsjóður Halldórs Hansen
skólanum og nemendum hans afar
mikilvægur. „Það sem gefur sjóðn-
um fyrst og fremst gildi er að hann
er tengdur nafni Halldórs, þessa
manns sem var svo þýðingarmikill í
íslenskri sönglist,“ segir hann. „Í
öðru lagi skiptir það alla þjóðina
máli að tónlistarsafn við skólann sé
byggt upp. Bókasafn skólans hefur
byggst hratt upp fyrir tilstilli sjóðs-
ins. Síðast en ekki síst eru þessar
styrkveitingar mikilvægar nemend-
unum – það að styðja og hvetja fólk
á þessu stigi námsins getur skipt af-
ar miklu máli.“
Hann segir að valið sé úr stórum
og glæsilegum hópi nemenda. „Ég
er sannfærður um, að það að hljóta
styrk úr þessum sjóði er þeim nem-
endum sem hann hljóta mikil hvatn-
ing, og liðkun á þeirra frama.“
Færanlegur salur
Sjóðsúthlutunin fór fram í nýjum
tónlistarsal Listaháskólans við Sölv-
hólsgötu 13. Nýlega var einnig tek-
inn í notkun danssalur á sama stað,
og verða þeir báðir formlega vígðir
eftir viku. Salirnir eru sérstakir að
því leyti að hægt verður að taka þá
niður og setja upp á nýjum stað,
komi til þess að Listaháskólinn
flytji í annað húsnæði á næstunni.
„Þetta er ný lausn á vandamál-
unum,“ segir Hjálmar. „En okkur
sýnist að þessir salir eigi eftir að
koma mjög vel út, bæði hvað hljóm-
burð varðar og aðstaðan. Neyðin
kennir naktri, og svo framvegis, en
þetta kemur enn betur út en við
þorðum að vona.“
Salurinn er í kaupleigu hjá
Listaháskólanum hjá verktökum á
Selfossi, sem hafa byggt húsið með
þeim hætti að hægt verði að taka
það í sundur og setja það upp á ný.
„Ég veit ekki til þess að þetta hafi
verið reynt með svo stórtækum
hætti áður,“ segir Hjálmar að síð-
ustu.
Tónlist | Tvær ungar söngkonur hljóta styrk
Himinlifandi og stoltar
Morgunblaðið/ÞÖK
Dóra Steinunn Ármannsdóttir og Steinunn Soffía Skjernested.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700