Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Munich kl. 5:50 og 9 B.i. 16 ára
Caché - Falinn kl. 5:30 - 8 og 10:30 B.i. 16 ára
Pride & Predjudice kl 5:30 - 8 og 10:30
The Chronicles of Narnia kl. 5:30
Rumor Has It kl. 8:15 og 10:15
Harry Potter og Eldbikarinn kl. 6 B.i. 10 ára
KING KONG kl. 9 B.i. 12 ára
SAMBÍÓ AKUREYRI
DERAILED kl. 8 - 10:10
THE CHRONICLES OF NARNIA
kl. 5
FUN WITH DICK AND JANE
kl. 6 - 8 - 10
SAMBÍÓ KEFLAVÍK
Allur heimurinn fylgdist með árið 1972 þegar 11 ísraelskir
íþróttamenn voru myrtir á ólympíuleikunum í munchen
þetta er sagan af því sem gerðist næst
„Munich er tímabært
stórvirki sem á
erindi við alla.“
*****
S.V. Mbl.
mynd eftir
steven spielberg
DERAILED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
OLIVER TWIST kl.. 5:40
MARCH OF THE PENGUINS kl. 6
MUNICH kl. 8 B.i. 16 ára
eeeM.M.J. kvikmyndir.com eeeS.K. DV eeeeL.I.N. topp5.is
Frá framleiðendum
„Bridget Jones Diary“
eeeeH.J. Mbl.
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. fyrir tæknibrellur4
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley),
bestu listrænu leikstjórn og tónlist.4
FREISTINGAR
GETA REYNST
DÝRKEYPTAR
Spennuþruma ársins er komin með
hinni einu sönnu Jennifer
Aniston og hinum vinasæla Clive O
wen (“Closer”).
VINSÆLASTA MYND FRANSKRAR HÁTÍÐAR OG BESTA
MYND EVRÓPU SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA.
eeee
„Ógleymanleg og óvenju
frumleg upplifun!“
- S.V., Mbl
*****
L.I.B. Topp5.is
****
G.E. NFS/Fréttavaktin
****
S.U.S. XFM 91,9
****
kvikmyndir.is
****
Ó.Ö. DV
Hvað segirðu gott?
Ég segi bara allt gott.
Hverjum spáirðu sigri á HM í fótbolta í sumar? (Spurning frá síðustu að-
alskonu, Þórunni Lárusdóttur.)
Ef við vinnum Spán, Danmörku og Norður-Íra í undankeppninni og kom-
umst þar með í fyrsta skipti á HM spái ég því að við förum alla leið! Annar
kostur er að finna leið til að klóna Eið Smára og búa til svona 4–5, þá ættum
við ágætis séns! Ef ekki þá taka Brassarnir þetta!
Kanntu þjóðsönginn?
Söngröddina hef ég ekki og þótt ég kynni þjóðsönginn og væri að raula hann
myndi fólk samt sem áður spyrja: „Hvað ertu að syngja?“
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Fór til Bandaríkjanna síðasta sumar, frábær skemmtun! Bjóst nú við öllu
slæmu, byssum og ránum, en svo er þetta hinn besti staður!
Uppáhaldsmaturinn?
Steiktur fiskur með lauk, kartöflum og kokkteilsósu.
Bragðbesti skyndibitinn?
Allt í einu, Breiðholti, engin spurning!
Besti barinn?
Ari í Ögri, ég fíla að slappa af og hlusta á lifandi tónlist!
Hvaða bók lastu síðast?
Hef nú ekki lesið bók í þó nokkurn tíma, held samt að það hafi verið einhver
barnabók fyrir litla frænda minn!
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég fór á gríndávaldinn Sailesh, þar sem það er umdeilt hvort þetta er leikið
eða ekki kalla ég þetta leikrit. Annars góð skemmtun!
En kvikmynd?
Fór á Fun with Dick and Jane, engin súpermynd! Hún fær 2,5 stjörnur af 5!
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Í spilaranum núna er hljómsveitin Hundur í óskilum, grátlega góðir!
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Það fer alveg eftir því í hvaða „fíling“ ég er! Maður er nú alæta á tónlist fyrir
utan auðvitað þungarokkið og djass, er ekki alveg að fíla það! Ætli maður sé
ekki einn af þessum flökkurum, flakka á milli þangað til ég finn gott lag!
Besti sjónvarpsþátturinn?
Lost eru frábærir þættir, þeir eru að vísu farnir að lengja þættina of mikið!
Prison Break eru líka hrikalega spennandi! Svo má ekki gleyma Boston Leg-
al … Denny Crane!
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveruleikaþætti í sjónvarpi?
Já, ég hugsa að ég myndi taka þátt í Survivor ef tækifæri gæfist, ekkert að
því að keppa um að vinna 60 milljónir!
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Klárlega G-strengur.
Helstu kostir þínir?
Held það sé best að láta þá sem mig þekkja dæma um kostina!
En gallar?
Ég er með eindæmum þrjóskur á tímum og keppnisskapið getur stundum
farið með mig!
Besta líkamsræktin?
World Class er eina líkamsræktarstöðin sem kemur til greina!
Hvaða ilmvatn notarðu?
Kannski ekki ilmvatn en rakspíra, Boss & Armani eru sterkir þar!
Ertu með bloggsíðu?
Pass.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Er frekar týpan sem stekkur út í búð og kaupir vöruna þótt hún sé dýrari
heldur en að bíða eftir henni í nokkrar vikur. Annars er auðvitað gott mál að
panta af netinu ef það er á Íslandi!
Flugvöllinn burt?
Já, fáránlegt að hann skuli ekki löngu vera farinn.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Er Michael Jackson svartur eða hvítur?
Íslenskur aðall | Jón Gunnlaugur Viggósson
Hvað ertu að syngja?
Aðalsmaður vikunnar tók við krúnunni af herra
Íslandi þegar forveri hans var sviptur titlinum.
Hann er jafnframt sonur Viggós Sigurðssonar,
landsliðsþjálfara í handbolta.
Morgunblaðið/Kristinn
„Steiktur fiskur með lauk, kartöflum og kokkteilsósu.“
Fimm hljómsveitir hafa bæst viðlistann yfir þær sveitir sem
munu spila á Hróarskeldu 2006. Þar
ber hæst Placebo en aðrar sveitir
eru Disco Ensemble, JR Ewing,
Opeth og
VETO, segir í
tilkynningu.
Placebo, með
Brian Molko
fremstan í
flokki, spilaði á
Hróars-
kelduhátíðinni
árin 1999 og
2001 en hefur
einnig spilað á
Íslandi – það
var árið 2004.
Sveitin
hyggst senda
frá sér sína
fimmtu plötu í mars sem mun bera
heitið Meds. Fyrri plötur sveit-
arinnar eru Placebo, Without You
I’m Nothing, Black Market Music
og Sleeping With Ghosts.
Disco Ensemble er hljómsveit frá
Finnlandi sem spilar orkumikið
emórokk og má í þessu sambandi
t.d. nefna lagið „We Might Fall Ap-
art“.
Norska sveitin JR Ewing leikur
framúrstefnulegt síðharðkjarna-
rokk. Heiti síðustu plötu, Mael-
strom, þykir lýsandi en orðið getur
t.d. þýtt „hringiða“ eða eitthvað í þá
áttina.
Opeth frá Svíþjóð steypir saman
dauðarokki og svartmetal annars
vegar og sinfónísku rokki hins veg-
ar. Plata sveitarinnar frá því í fyrra,
Ghost Reverie, hlaut lof gagnrýn-
enda en meðal áhrifavalda má nefna
svo ólíkar sveitir sem Morbid Angel
og Pink Floyd.
Hin danska sveit VETO spilar til-
finningaþrungið og melankólískt
indírokk. Hún heillar vanalega
áheyrendur á tónleikum, ekki síst
vegna þess að söngur Troels Abra-
hamsens minnir um margt á Jeff
Buckley.
Fólk folk@mbl.is