Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
Frábær tilboð
Opið sunnudag frá kl. 12-18
Undirfataverslun
Síðumúla 3, sími 553 7355.
15% aukaafsláttur
af útsöluvörum
+ Lagersala • Aðeins 4 verð
500 - 800 - 1.000 - 1.500
Opið virka daga kl. 11-18, laugard. kl. 11-15
ÚTSÖLULOK 11. febrúar
Ný sending af
BASS
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Lagersölu lýkur í dag
Opið 12-16
40-70% afslátturHverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Stefán Jóhann Stefánsson
varaborgarfulltrúi og hagfræðingur
www.stefanjohann.is
3
Veljum Stefán Jóhann
í þriðja sætið
Prófkjör Samfylkingarinnar
í Reykjavík 11. og 12. febrúar.
Velferð
Jafnrétti
Lífsgæði
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Nýjar vörur í Bæjarlind
Allar útsöluvörur á kr. 1.000
í báðum búðum
Verðhrun
Útsölulok
Laugavegi 40
Sími 561 1690
RALPH
LAUREN
Síðasti
dagur
útsölunnar
50%
afsláttur
VEGNA tæknilegra mistaka birtist
ekki hluti fréttar um fyrirhugað
einvígi Boris Spasskí og Friðriks
Ólafssonar á baksíðu Morg-
unblaðsins í gær. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum og fréttin
birt hér í heild.
Boris Spasskí, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, mun heyja
einvígi við Friðrik Ólafsson, fyrsta
íslenska stórmeistarann í skák, í
dag, laugardag. Spasskí kom til
landsins í gær en hann mun flytja
erindi um alþjóðlegan feril Frið-
riks á málþingi sem Skáksamband
Íslands stendur fyrir í dag í aðal-
útibúi Landsbankans í
Austurstræti.
Þar verður fjallað um arfleifð
Friðriks frá mismunandi sjónar-
hornum, en Friðrik var á sínum
tíma meðal bestu skákmanna
heims og hafði djúp áhrif á þróun
skáklistarinnar hérlendis. Friðrik
varð sjötugur á síðasta ári og lét
þá af störfum sem skrifstofustjóri
Alþingis.
Þeir Friðrik og Spasskí ætla að
verða við áskorun skákunnenda og
heyja tveggja skáka einvígi á
laugardag. Í framhaldi af mál-
þinginu og einvíginu mun svo fara
fram hraðskákmót, Friðriksmótið
2006, þar sem ýmsir af bestu skák-
mönnum landsins leiða saman
hesta sína.
Spasskí og Friðrik heyja einvígi
Boris
Spassky
Friðrik
Ólafsson
ALLS gefa 16 frambjóðendur kost á
sér í opnu prófkjöri Samfylking-
arinnar og óháðra í Reykjavík sem
fram fer á laugardaginn og sunnu-
daginn 11. og 12. febrúar. Sjö konur
og níu karlar eru í framboði.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á skrifstofu flokksins má bú-
ast við að fyrstu tölur verði birtar
mjög fljótlega upp úr kl. 18 á sunnu-
dag eftir að kosningunni lýkur en
óvíst er hvenær endanleg úrslit
munu liggja fyrir.
Prófkjörið er opið öllum sem lög-
heimili eiga í Reykjavík og náð hafa
18 ára aldri.
Frambjóðendur í prófkjörinu eru í
þeirri röð sem þeir eru á kjörseðl-
inum: Dofri Hermannsson, sem gef-
ur kost á sér í 4.–6. sæti. Guðrún
Erla Geirsdóttir, gefur kost á sér í
4.–6. sæti. Gunnar H. Gunnarsson,
gefur kost á sér í 4.–5. sæti. Helga
Rakel Guðrúnardóttir, gefur kost á
sér í 5.–6. sæti. Ingimundur Sveinn
Pétursson, gefur kost á sér í 5. sæti.
Kjartan Valgarðsson, gefur kost á
sér í 3. sæti. Oddný Sturludóttir,
gefur kost á sér í 4. sæti. Ragnhildur
Sigríður Eggertsdóttir, gefur kost á
sér í 6.–8. sæti. Sigrún Elsa Smára-
dóttir, gefur kost á sér í 2.–4. sæti.
Stefán Benediktsson, gefur kost á
sér í 2.–3. sæti. Stefán Jón Hafstein,
gefur kost á sér í 1. sæti. Stefán Jó-
hann Stefánsson, gefur kost á sér í 3.
sæti. Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
gefur kost á sér í 1. sæti. Andrés
Jónsson, gefur kost á sér í 4. sæti.
Björk Vilhelmsdóttir, gefur kost á
sér í 3.–4. sæti og Dagur B. Eggerts-
son, sem gefur kost á sér í 1. sæti.
Rafræn kosning á 5 kjörstöðum
Kosið verður rafrænni kosningu á
fimm kjörstöðum; skrifstofu Sam-
fylkingarfélagsins í Reykjavík að
Hallveigarstíg 1, félagsheimili Þrótt-
ar í Laugardal, félagsheimili Fylkis í
Árbæ, Visahúsinu í Mjódd og Gylfa-
flöt 9 í Grafarvogi.
Kjörstaðir verða opnir kl. 10–18,
laugardag og sunnudag.
16 gefa kost á sér í
prófkjöri Samfylkingar
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisfélags
Álftaness fer fram í dag, laug-
ardaginn 11. febrúar kl. 10–18, í
Skátaheimilinu við Breiðumýri.
Sjö frambjóðendur gefa kost á
sér.
Guðmundur G. Gunnarsson, bæj-
arstjóri og bæjarfulltrúi, gefur kost
á sér í fyrsta sæti.
Fjórir gefa kost á sér í annað
sætið, þau eru: Erla Guðjónsdóttir
bæjarfulltrúi og skólastjóri, Bragi
Jónsson, bæjarfulltrúi og
framkvæmdastjóri, Sigríður Rósa
Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi og
deildarstjóri, og Halla Jónsdóttir
verkefnastjóri.
Kristinn Guðlaugsson kennari
gefur kost á sér í þriðja sætið.
Hörður Már Harðarson flugvirki
gefur kost á sér í fjórða til fimmta
sæti.
Kjósa skal 5 frambjóðendur
hvorki fleiri né færri með því að
setja tölustafina 1 til 5 framan við
nöfn frambjóðenda.
Prófkjör
Sjálfstæð-
isfélags
Álftaness
Fréttir
í tölvupósti
Fréttasíminn
904 1100