Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 35 DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR „PÍANÓ hafa verið afar vinsæl, þau fara fljótt og vel,“ segir Ari Magn- ússon sem rekur íslenska uppboðs- vefinn á netinu, www.uppbod.is. „Ég verð var við að fólki finnst gott að losna við hluti sem ekki er þörf fyrir lengur. Stundum hef ég selt heilu dánarbúin. Við erum opin fyrir öllu og seljum nánast allt, jafnvel föt eða notaðar þvottavélar. Vöruúrvalið er afar fjölbreytt, bæði gömul antík og nýir hlutir. Fyrir mér er vefurinn stór verslanamiðstöð, þar sem enn ein deild hefur verið opnuð.“ Ari segist verða var við að sumir leiti eftir ákveðnum hlutum, eins og ruggustól eða gömlum síma, og vakti vefinn. Og hann nefnir dæmi um Mávastell sem staldraði stutt við. „Þetta eru oft safnarar eða áhuga- fólk um gamla muni og svo eru aðrir sem kaupa heilu búslóðirnar,“ segir hann. Skoða fyrst Ari leggur áherslu á að bjóðendur skoði vöruna áður en boðið er í hana í sýningarsalnum við Skúlagötu 26. „Boðin eru bindandi,“ segir hann. „Og þó ég reyni að lýsa hlutunum á vefnum og benda á ef eitthvað sér- stakt er að þá er betra að fólk skoði sjálft með eigin augum. Að vísu kemur fyrir að hringt er utan af landi og þá reyni ég að lýsa hlutnum eins vel og ég get.“ Þegar munir eru skráðir inn er sett upp lágmarksverð sem ekki er hægt að bjóða undir. „Það eru alltaf tvær hliðar á pen- ingnum, sá sem selur vill fá meira en sá sem kaupir vill fá lægra verð,“ segir hann. „Þeir sem hafa sett vörur inn á vefinn hafa allir selt þær að lokum og hingað til hefur ekki komið til þess að vöru hafi verið skil- að.“ Á vegum íslenska uppboðsvefsins er rekinn uppboðsvefurinn www.basar.is, þar sem seljendur sjá sjálfir um sölu. Hægt er að opna verslun með því að opna bás með mörgum uppboðum. Þetta er mögu- leiki sem gæti hentað verslunareig- endum, heildsölum eða sölufólki.  NETIÐ | Uppboð á allskyns nýjum og notuðum húsmunum og búsáhöldum á Netinu Ari Magnússon rekur íslenska uppboðsvefinn. Morgunblaðið/Kristinn Uppboðsvörurnar eru til sýnis í sýningarsal www.uppbod.is við Skúlagötu 26 í Reykjavík milli kl. 14–17 Ruggustólar og gamlir símar ÞEGAR gleðja skal vini og vanda- menn, ástmenn og ástkonur með lif- andi afskornum blómum vilja vænt- anlegir blómakaupendur gjarnan fá að vita það hjá afgreiðslufólki blómabúða hve lengi blómin komi til með að standa falleg. Það er hins vegar talsvert undir þeim komið sem blómin fá hvernig þeim reiðir af næstu daga eftir afhendingu. Washington Post gaf í vikunni út nokkur ráð um hvernig best væri að halda lifandi blómum lifandi sem vert er að rifja hér upp í ljósi þess að bæði Valentínusardagurinn, dagur elskenda, er á þriðjudaginn og síðan fylgir konudagurinn í kjöl- farið 19. febrúar, en báðir þessir dagar eru miklir blómasöludagar.  Fjarlægið öll laufblöð af stilk- unum sem eru fyrir neðan vatns- línu.  Styttið stilkana um eina þrjá cm við beittum hnífi áður en blómin eru sett í vatn.  Notið ferskt vatn ásamt blóma- áburðinum, sem fylgir blómunum.  Forðist að setja blómin nálægt ofnum eða gluggum þar sem inn skín mikil sól. Afskorin blóm dafna best á svölum stöðum.  Skiptið um vatn á blómunum á hverjum degi og skerið smávegis af stilkunum á nokkurra daga fresti.  RÓSIR Þarf að hugsa um blómin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.