Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSFIRÐINGURINN Hjalti Ragn- arsson, sem búið hefur síðustu 17 árin í Danmörku og hlotið frama innan danska hersins, verður sendur til Íraks, þann 14. febrúar n.k. Hann mun gegna hlutverki stýrimanns og skyttu á léttum skriðdreka og segist óbanginn vegna fararinnar. Hjalti er 22 ára gamall og náði þeim áfanga ár- ið 2004 að komast í Konunglegu dönsku lífvarðasveitina. Þess má geta að bróðir hans Gísli Ragnarsson er einnig hermaður í danska hernum og er í lokaþjálfun fyrir lífvarðasveitina. Hjalti er nýkominn heim frá her- þjónustu í Kosovo þar sem hann hlaut heiðursmerki fyrir störf sín þar, auk þess sem hann hefur fengið fjögur önnur heiðursmerki. Hann stefnir á tveggja ára nám í dönskum liðsfor- ingjaskóla að lokinni sex mánaða dvöl í Írak en hann verður staðsettur ásamt hersveit sinni í nágrenni Basra. Spennandi að takast á við þetta „Það verður spennandi að takast á við þetta. Fólk er hjálparþurfi og ég vil vera til staðar fyrir það,“ segir hann. Af spámannsdeilunni og ólgu meðal múslíma í garð Dana hefur hann ekki miklar áhyggjur þótt hann segi teikningarnar í Jótlandspóst- inum ekki munu beinlínis hjálpa upp á ástandið. Hermennskuferil Hjalta má rekja til desember 2003 þegar hann hóf fyrst þjálfun sína og komst síðar meir í þjálfun fyrir lífvarðasveit drottn- ingar. Færri komust að en vildu en þeir sem eru valdir til þjálfunar eru látnir „taka vel á því“ eins og Hjalti orðar það. „Í síðasta prófinu gengum við 120 km með bakpoka auk þess sem kennd eru bókleg fræði líka.“ Sumarið 2004 komst hann síðan í líf- varðasveitina og verður nú stutt að bíða uns tveir ísfirskir bræður verða lífverðir dönsku drottningarinnar þegar Gísli lýkur prófi. Hlutirnir ekki eins einfaldir og maður heldur Hjalti segir herþjónustuna í Kos- ovo hafa verið mjög spennandi og segist hann hafa fengið mjög lær- dómsríka sýn á heiminn. „Hlutirnir eru ekki eins einfaldir og maður held- ur en þarna niðurfrá er rosagott fólk.“ Hjalti lenti aldrei í alvarlegum átökum þar sem þurfti að beita skot- vopnum en hann segir þó hafa hitnað rækilega í kolunum nokkrum sinnum án þess þó að upp úr syði. „Við vorum með góða liðsforingja sem gátu leyst málin og róað ástandið með samræð- um. Danir eru snillingar í því. Ég var feginn því að þurfa ekki að hleypa af skoti á meðan ég var í Kosovo.“ Sýn Hjalta á herþjónustu snýst einkum um að geta orðið að gagni þar sem þörf er á, segir hann. „Mig lang- ar til að fara á vettvang og hjálpa þar sem ég get hjálpað. Mér finnst það mjög spennandi og er góður í því. Tíminn mun leiða í ljós hversu langt ég fer í þeim efnum.“ Eins og fyrr gat verður Hjalti stýrimaður og skytta á léttum skrið- dreka í Írak en um er að ræða tíu manna dreka sem ætlaður er til her- mannaflutninga en er einnig útbúinn fallbyssu. Hjalti verður í Írak fram yfir verslunarmannahelgi og byrjar þá strax í liðsforingjaskólanum. Hann er ókvæntur og barnlaus. „Ég hef ekki tíma fyrir það,“ segir hann og hlær við. Hjalti Ragnarsson, hermaður í danska hernum, á leið til Íraks „Fólk er hjálparþurfi“ Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Hjalti Ragnarsson fremstur í flokki stjórnar hér vaktaskiptum hjá lífvarðasveit drottningar við Amalienborg. Bræðurnir Hjalti og Gísli Ragnarssynir, báðir hermenn í danska hernum. NOKKUR óánægja ríkir meðal sumarbústaðaeig- enda í Miðengi í Grímsnesi með vinnubrögð sveit- arstjórnarinnar í Grímsnes- og Grafningshreppi í tengslum við auglýsingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 200 við Álftavatn í Grímsnesinu bæði nú í jan- úar sl. sem og í maímánuði árið 2002. Hafa þeir ráðið til sín lögfræðing til að kanna réttarstöðu sína í tengslum við auglýsingu sveitarfélagsins á breyttu deiliskipulagi fyrir umrædda lóð. Hinn 11. janúar sl. birtist í Morgunblaðinu aug- lýsing sveitarfélagsins um tillögu að breytingu á deiliskipulagi lands þar sem bústaðurinn stendur, en tillagan gerir ráð fyrir að hámarksstærð frí- stundahúss verði 496 m² í stað 380 m², auk þess sem gert sé ráð fyrir 64 m² bílskúr og 86 m² sum- arhúsi sem muni standa á sérlóð innan marka skipulagsins. „Við erum ósátt við að sveitarfélagið skuli ekki hafa séð ástæðu til að upplýsa nágranna lóðarinn- ar um þær viðamiklu breytingar sem fyrirhugaðar voru. Okkur finnst það ekki eðlilegir stjórnsýslu- hættir að sveitarfélagið skuli ekki hafa séð ástæðu til að kynna þetta almennilega fyrir eigendum í ljósi þess hversu umfangsmiklar breytingar verið var að leggja til,“ segir Jóna K. Kristinsdóttir, einn eigenda sumarbústaðar í Miðengi í Gríms- nesi, og bendir á að þegar deiliskipulag fyrir lóð- ina var auglýst árið 2002 hafi hvergi komið fram að til stæði að reisa byggingu á umræddri lóð, en með því deiliskipulagi var samþykkt 470 m² hús- næði á lóðinni. Bendir hún á að alls séu rúmlega þrjátíu sumarhús við 5. braut við Álftavatn sem séu byggðir upp úr 1940, auk tveggja nýrra bú- staða frá því í kringum 1985. „Þetta er mjög gamalt svæði og þarna eru flest húsin á bilinu 50–70 m² timburhús, þannig að nýja húsið stingur algjörlega í stúf við þá byggð sem nú er á svæðinu og allt umhverfið. Það á bara ekki heima í þessu umhverfi, en landið sem húsið er byggt á er ekki nema 2,5 hektarar. Frístundahús af þessari stærðargráðu eiga ekki heima í svona gömlu hverfi,“ segir Jóna og tekur fram að sum- arhúsaeigendum á svæðinu finnist sveitarfélagið hafa komið aftan að sér í þessu máli. Deiliskipulagið var kynnt með lögformlegum hætti „Ef húsum er vel fyrirkomið í landinu og gott tillit tekið til umhverfisins, líkt og við á um þetta hús, á stærðin ein ekki að skipta neinn mann máli nema þann sem byggir það, býr í því og borgar af því eðlileg fasteignagjöld til sveitarfélagsins,“ seg- ir Ívar Örn Guðmundsson arkitekt, sem teiknaði umrætt hús á lóð nr. 200, en hann átti fund með sumarhúsaeigendum við 5. braut sl. mánudag. Bendir hann á að þó að samþykkt deiliskipulag frá árinu hafi verið kynnt með lögformlegum hætti virðist það hafa farið framhjá fólki. Segir hann ekki hægt að áfellast sveitarfélagið því eftir sinni bestu vitund hafi verið staðið rétt að öllum kynningarmálum á sínum tíma. Að sögn Ívars sneru athugasemdir sumarhúsaeigenda á fyrr- nefndum fundi fyrst og fremst að skipulagsferlinu og því að þeir vissu ekki að þarna yrði byggt hús, hins vegar ætti fólki að vera ljóst að auglýsing á deiliskipulagi feli sjálfkrafa í sér tillögur um upp- byggingu. Segir hann hins vegar engar athuga- semdir á fundinum hafa snúið beint að núverandi breytingu. Að mati Ívars er óeðlilegt að verið sé að fjarg- viðrast út af stærð eins húss vegna samanburðar við önnur hús í nágrenninu. Bendir hann á að kröf- ur manna til sumar- og frístundahúsa hafi tekið miklum breytingum í áranna rás. „Sumarhús nýttust fyrir um 20 árum án hita, rafmagns og heits vatns. Þau hús sem byggð eru með þessum nútímaþægindum, sem þykja eðlileg í dag, eru annars konar en þau hús sem voru byggð áður,“ segir Ívar og bendir jafnframt á að frí- stundahús hafi annað notagildi í dag, þar sem þau séu notuð allan ársins hring öfugt við sumarhús fyrri tíma sem nýttust aðeins í tvo til þrjá heitustu mánuði ársins. Segir hann umrætt hús vera heils- árshús. „Góð hús, hvar sem þau eru byggð, auka, eins og vitað er, verðgildi eignanna í kring. Þetta hús er byggt eftir sveitarómantík dagsins í dag og hefur það markmið að falla vel að náttúrunni.“ Vill fá að stækka sumarbústað í Grímsnesi í 496 fermetra Óánægja með vinnubrögð sveitarstjórnarinnar Á SÍÐASTA ári bárust barnavernd- arnefndum landsins 5.879 tilkynn- ingar en þær voru 5.555 árið 2004. Tilkynningum hefur því fjölgað um 5,8% milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Barnaverndarstofu. Alls bárust 73% tilkynninga til barnaverndarnefnda á höfuðborg- arsvæðinu en 27% til nefnda á landsbyggðinni. Á árinu 2005 var tilkynnt um 5.679 börn en um 4.021 barn árið 2004. Tilkynnt var því um 41,2% fleiri börn árið 2005 en árið 2004. Neyðarlínan 112 tekur á móti barnaverndartilkynningum í um- boði nefndanna. Alls barst 221 til- kynning í gegnum Neyðarlínuna árið 2005. Það er um 3,8% af öllum tilkynningum. Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 30,3% voru vegna van- rækslu, 15,8% vegna ofbeldis, 53,8% vegna áhættuhegðunar barna og 0,2% vegna þess að heilsu eða líf ófædds barns var í hættu. Alls var talið að 164 börn (2,9% allra barna sem tilkynnt var um) hefðu verið í yfirvofandi hættu. Flestar tilkynningar komu frá lögreglu eða 54,4% allra tilkynn- inga. Tilkynnt um mál 41% fleiri barna á síðasta ári HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur sýknað karlmann á þrítugsaldri af ákæru fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á mann í Sandgerði og slegið hann með skóhillu í líkam- ann og nefbrotið hann með hnefa- höggi. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að sá sem fyrir höggunum varð hefði átt upptökin að átökunum og ákærði hefði verið að verja hendur sínar. Ákærði sagði manninn hafa kom- ið á móti sér í dyragætt og ógnað sér með hníf samtímis því sem ann- ar maður hefði nálgast sig aftan frá. Sagðist ákærði þá hafa orðið hræddur og gripið upp tréhillu sem hefði verið á ganginum og slegið manninn tvisvar í hnéð. Ákærði sagði manninn enn hafa ógnað sér með hnífnum og hann hefði því kýlt hann einu sinni með krepptum hnefa í andlitið. Héraðsdómur taldi að þessi árás hefði verið lögmæt og þar með refsilaus eins og á stóð í umrætt sinn. Málið dæmdu héraðsdómararnir Sveinn Sigurkarlsson sem dóms- formaður, Finnbogi H. Alexandersson og Guðmundur L. Jóhannesson. Verjandi var Vilhjálmur Þórhalls- son hrl. og sækjandi Júlíus Kristinn Magnússon, fulltrúi sýslumannsins í Keflavík. Nefbraut mann í sjálfsvörn VERULEGA dró út atvinnuleysi meðal félagsmanna í Verzl- unarmannafélagi Reykjavíkur á seinasta ári. Þannig fengu fjórðungi færri félagsmenn VR greiddar at- vinnuleysisbætur árið 2005 en á árinu á undan. Atvinnuleysi sem hlutfall af fjölda félagsmanna er nú minna en verið hefur síðustu þrjú ár. Vísbendingar eru þó um að at- vinnulausum sé eitthvað að fjölga á nýjan leik því samkvæmt upplýs- ingum sem fengust á skrifstofu fé- lagsins í gær hefur aðeins borið á fjölgun umsókna um atvinnuleys- isbætur á seinustu vikum. Alls fengu 1.969 félagsmenn VR greiddar atvinnuleysisbætur á síð- asta ári. Það er rúmlega 650 færri en árið áður eða 25%. Fækkunin á milli ára er mun meiri meðal kvenna en karla, eða 33% á móti 21%. Hlut- fallslegt atvinnuleysi, þ.e. fjöldi at- vinnulausra félagsmanna sem hlut- fall af fjölda félagsmanna, var 3,6% í fyrra samanborið við 5,3% árið 2004 og 5,7% árið 2003. Atvinnulausum í VR fækkaði mikið milli ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.