Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 49 UMRÆÐAN Í GREIN for- manns jafnrétt- isnefndar Reykjavík- ur í Morgunblaðinu 9. febrúar eru þrjár kórvillur: Í fyrsta lagi er full- yrt að frumvarp rík- isstjórnarinnar snúist eingöngu um bætta réttarstöðu samkyn- hneigðra og þar með er litið fram hjá því að í skilgreiningum þess er verið að breyta hefðbundnum hjónabandsskilningi laga og hefja stríð um merkingu hjóna- bandsins og afkynjun þess. Í öðru lagi er horft fram hjá því að opin- ber nefnd, sem und- irbjó frumvarpið áð- urnefnda, hefur beint því til Þjóðkirkjunnar að vígja samkyn- hneigða í „hjóna- band“. Málið er því hjá henni í lýðræð- islegu ferli og samkvæmt kirkju- skipan þeirri, sem Alþingi hefur samþykkt, ganga mál eftir umfjöll- un Kirkjuþings til Alþingis. Í stjórnarskrá lýð- veldisins er kveðið á um sérstakt sam- band milli þings og þjóðkirkju og ber þingmönnum að styðja hana og vernda en ekki að sýna henni óvirð- ingu. Í þriðja lagi kem- ur fram að jafnrétt- isnefnd Reykjavíkur hefur lýst stuðningi við fyrirhugaða breytingartillögu við stjórnarfrumvarpið, sem ekki hefur verið lögð fram á Alþingi, enginn veit hvernig verður orðuð eða hvað hún mun innihalda í raun, ef hún verður lögð fram. Er það orðið hlut- verk jafnréttisnefndar Reykjavíkur að end- urtaka illa grundaðar klisjur úr pólitískri umræðu? Klisjur og kórvillur Einar Karl Haraldsson svarar formanni jafnrétt- isnefndar Reykjavíkur Einar Karl Haraldsson ’Er það orðiðhlutverk jafn- réttisnefndar Reykjavíkur að endurtaka illa grundaðar klisj- ur úr pólitískri umræðu?‘ Höfundur er varaþingmaður Sam- fylkingarinnar í Reykjavík suður. ÞAÐ verður harður slagur um borgina í vor. Prófkjör Samfylking- arinnar hefur sett málefni fjölskyldna, þjónustu við þá sem eru yngstir og elstir, í forgrunn og þróun borgarinnar og fram- tíðina í forgang. Kosningar vorsins munu snúast um sömu mál, lífsgæði borgarbúa. Og það skiptir máli hverjir stjórna. Nýja Reykjavík Á síðustu árum höfum við skapað kraftmikla og skemmtilega borg. Framsækið skipulag og bygging Tónlistar- og ráðstefnuhúss í mið- borginni skapar henni áður óþekkt tækifæri. Slippasvæðið mun um- breytast í lifandi hafnarbyggð með íbúðum og veitingastöðum og mann- lífi fram á bryggjusporða. Svæðið í kringum Hlemm verður næsta áherslusvæði enda uppbygging og andlitslyfting þar löngu tímabær. Við nýtum tækifærin í Vatnsmýr- inni með aðstoð heimsþekktra skipulagsfræðinga og alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni. En það er ekki sjálfsagt að þessi lykilverkefni komist á leiðarenda. Það skiptir máli hverjir stjórna. Heimsborg og heimabær Lífsgæði íbúanna, forvarnir og þjónusta, eiga áfram að vera for- gangsmál í Reykjavík. Við höfum fært þjón- ustuna nær heim- ilunum, út í hverfin og stofnað þjónustu- miðstöðvar þar sem ein- falt og gott er að nálg- ast aðstoð og stuðning. Málefni aldraðra og efl- ing heilsugæslunnar þarfnast nú sama átaks og gert hefur verið í uppbyggingu leik- og grunnskóla. Ríkið virð- ist hafa gefist upp á þeim verk- efnum. Þau eru því augljóslega bet- ur komin hjá Reykjavíkurborg. Ófært er að hundruð fjölskyldna og þúsundir einstaklinga líði fyrir óljósa verkaskiptingu sem ætti að tilheyra horfnum tíma. Þjónusta við fólk og fjölskyldur er hornsteinn framtíðarborgarinnar. Reykjavík á að vera örugg og heilbrigð, heims- borg og heimabær í senn. Við þurfum sigur í vor Það skiptir máli hverjir stjórna og opið prófkjör Samfylkingar gef- ur öllum sem vilja hafa áhrif á þró- un borgarinnar tækifæri til að stilla upp sigurstranglegum lista. Sam- fylkingin ber fram borgarstefnu sem á brýnt erindi við samtímann og nýtur víðtæks stuðnings meðal borgarbúa. Endalok Reykjavík- urlistans og landslag stjórmálanna gerir það hins vegar að verkum að það er síður en svo sjálfgefið að sig- ur þessara sjónarmiða vinnist í vor. Það er þó sannarlega hægt. Til þess þarf Samfylkingin að ná eyrum þeirra sem eru óákveðnir og þess stóra hóps óflokksbundinna sem ráða mun úrslitum kosninganna í vor. Til þess treysti ég mér og óska eftir sterku umboði til að leiða sam- henta sveit Samfylkingarinnar – til sigurs í vor. Vertu með að velja sigursveit Eftir Dag B. Eggertsson ’Það skiptir máli hverjirstjórna og opið prófkjör Samfylkingar gefur öll- um sem vilja hafa áhrif á þróun borgarinnar tæki- færi til að stilla upp sig- urstranglegum lista.‘ Höfundur sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar. Dagur B. Eggertsson Prófkjör Reykjavík Þriðjudaginn 10. janúar í Vestmannaeyjum kl. 20.00 Miðvikudaginn 11. janúar í Reykjanesbæ kl. 20.00 Fimmtudaginn 12. janúar á Akranesi kl. 20.00 Laugardaginn 21. janúar á Akureyri kl. 10.30 Laugardaginn 21. janúar í Ólafsfirði kl. 14.00 Þriðjudaginn 24. janúar á Sauðárkróki kl. 20.00 Miðvikudaginn 25. janúar í Borgarnesi kl. 20.00 Fimmtudaginn 26. janúar á Selfossi kl. 20.00 Laugardaginn 28. janúar í Reykjavík kl. 13.15 Laugardaginn 4. febrúar á Ísafirði kl. 10.30 Mánudaginn 6. febrúar í Grundarfirði kl. 20.00 Miðvikudaginn 8. febrúar á Höfn kl. 20.00 Fimmtudaginn 9. febrúar á Hellu kl. 20.00 Miðvikudaginn 15. febrúar í Garðabæ kl. 20.00 Fimmtudaginn 16. febrúar á Patreksfirði kl. 12.00 Fimmtudaginn 16. febrúar í Búðardal kl. 17.00 Laugardaginn 18. febrúar á Egilsstöðum kl. 10.30 Laugardaginn 18. febrúar í Fjarðabyggð kl. 13.30 Sunnudaginn 19. febrúar á Seyðisfirði kl. 13.00 Mánudaginn 20. febrúar á Blönduósi kl. 20.00 Þriðjudaginn 21. febrúar í Mosfellsbæ kl. 20.00 Miðvikudaginn 22. febrúar í Grindavík kl. 20.00 Miðvikudaginn 8. mars á Seltjarnarnesi kl. 20.00 Miðvikudaginn 15. mars í Hafnarfirði kl. 20.00 Fimmtudaginn 16. mars á Húsavík kl. 20.00 Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde utanríkisráðherra, fer um þessar mundir um landið og efnir til funda með trúnaðarmönnum flokksins, formönnum og stjórnarmönnum flokksfélaga, fulltrúaráða og kjördæmisráða, sveitarstjórnar- mönnum og þingmönnum. Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is Formaður Sjálfstæðisflokksins á ferð um landið Fundarstaðir verða auglýstir í fundarboði á hverjum stað. MEIRIHLUTI bæjarráðs Kópavogs hefur samþykkt að selja gamla Kópavogshælið, en end- anleg afgreiðsla málsins verður í bæjarstjórn 14. febrúar nk. Fulltrúi Samfylkingarinnar greiddi atkvæði gegn tillögunni í bæjarráði og sama afstaða verður af okkar hendi í bæj- arstjórn. Vonandi sér meirihluti bæj- arstjórnar að sér í þessu máli. Fyrir tæpu ári boðaði þáverandi bæjarstjóri, Hansína Ásta Björgvinsdóttir, að húsið yrði selt sem einbýlishús. Af því varð ekki þá, en nú hefur hugmyndin skotið upp kollinum á ný. Framtíð hússins hefur oftar en einu sinni verið rædd í bæj- arstjórn og hafa undirtektir við hugmyndum um að bærinn eigi húsið áfram og geri það upp verið frekar góðar. Nú horfir greinilega öðruvísi við. Byggt fyrir söfnunarfé Hringskvenna Kópavogshælishúsið stendur sunnarlega á Kópavogstúni austan við núverandi líknardeild LSH. Þetta er eitt elsta steypta húsið í bænum. Konur í Kvenfélaginu Hringnum söfnuðu fyrir byggingu þess og er það teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Húsið var tekið í notkun árið 1926 og ráku Hring- skonur hressingarhæli þar til 1939 þegar ríkið tók við rekstrinum og nokkru síðar var húsið nýtt fyrir holdsveikisjúklinga. Um tíma var kennslu þroskaþjálfanema sinnt í húsinu og til 1985 var þar einnig eldhús fyrir Kópavogshælið. Síð- astliðin 20 ár hefur húsið staðið ónotað og lítið verið um viðhald, þannig að það er illa farið. Kópa- vogsbær eignaðist húsið þegar hluti Kópavogstúns var keyptur af ríkinu árið 2003. Margir nýtingarmöguleikar Hér er um að ræða 80 ára gam- alt hús með merka sögu sem þarfnast vissulega viðhalds en það ætti ekki að vera bænum ofviða að sýna sögunni og fortíðinni þá virðingu að gera húsið upp. Við Kópavogsbúar eigum ekki mörg hús frá þessum tíma, hér er því tæki- færi til að skapa um- gjörð um einhverja þá starfsemi sem hentar þessum góða stað og húsinu sem slíku. Ýmsar hugmyndir hafa verið nefndar um starfsemi í húsinu, svo sem félagsaðstöðu fyrir kvenfélög bæj- arins, gistihús, kaffi- hús, sýningarsali fyrir muni úr sögu bæj- arins eða fyrir sýn- ingar tengdar lífríki Kópavogs- leiranna. Ég veit til þess að Fjölsmiðjan, sem starfar í ná- grenninu, hefur viðrað hugmyndir við bæjaryfirvöld um nýtingu hússins í tengslum við starfsemi sína. Þar gæti verið kominn góður kostur til að skoða nánar. Hug- myndirnar eru margar. Mikilvæg- ast er nú að leggja til hliðar skammsýnar hugmyndir um sölu hússins. Bærinn á að standa að varðveislu þess svo það verði bæj- arbúum til yndisauka og þannig verði um leið varðveittur hluti af menningarsögu bæjarins. Skammsýni að selja gamla Kópavogshælið Sigrún Jónsdóttir fjallar um söluna á Kópavogshæli ’Vonandi sér meirihlutibæjarstjórnar að sér í þessu máli.‘ Sigrún Jónsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.