Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 78
78 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM****
ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA!
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
eee
Kvikmyndir.com
„...falleg og skemmtileg fjölskyldumynd...“
MMJ Kvikmyndir.com
Epískt meistarverk frá Ang Lee
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
„... ástarsaga eins og þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“
eeeee
L.I.B. - Topp5.is
SÝNINGIN VERÐUR AÐ
HALDA ÁFRAM, EN FÖTIN
VERÐA AÐ FJÚKA
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. Judi Dench sem besta leikkona í aðalhlutverki2
ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 1, 3.30 og 5.45
ZATHURA M /ENSKU TALI kl. 3.30, 5.45 og 8
FINAL DESTINATION 3 kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 1, 3.45, 5.50, 8 og 10.10
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 10.15 B.I. 12 ÁRA
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 1 og 3.45
DRAUMALANDIÐ kl. 1
ÞEGAR RÖÐIN KEMUR AÐ ÞÉR
ÞÁ FLÝRÐU EKKI DAUÐANN
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR
ZATHURA kl. 1.40, 3.50 og 6
FINAL DESTINATION 3 kl. 6, 8 og 10.10 (KRAFTSÝNING)
WALK THE LINE kl. 10.10 B.i. 12 ára
FUN WITH DICK AND JANE kl. 10.10
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar sýningar í
Smárabíói
merktar með rauðu
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar sýningar í
Smárabíói
merktar með rauðu
HEIMSFRUMSÝNINGN ý t t í b í ó
FU
N
400 KR. HELGARTILBOÐ Í SMÁRABÍÓ!
Aðeins 400 kr. á þessar myndir í Smárabíói í dag kl. 13
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Berlín,
sem gengur undir nafninu Berlinale,
hófst með pompi og prakt síðastlið-
inn fimmtudag og slær vonandi á
prússnesku vetrarvindana sem
næða um allt hér. Hátíðin, sem nú
er haldin í 56. skipti, verður stærri
og íburðarmeiri með hverju ári og
er í dag virtasta hátíð sinnar teg-
undar í Evrópu ásamt Cannes- og
Feneyjahátíðinni. Berlinale stendur
yfir í tíu daga og lýkur 19. febrúar.
Alls verða 360 myndir frá 56 þjóð-
löndum sýndar en ein af meg-
ináherslum hátíðarinnar er að seil-
ast til eins margra landa og hægt er
í efnisvali. Þannig skoðaði Dieter
Kosslick, framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar, og hans fólk yfir 4.000 inn-
sendar myndir. Kosslick tók við há-
tíðinni fyrir fimm árum og er
þakkað fyrir að hafa rifið hana upp
og blómstrar hún í dag þrátt fyrir
fjárhagskreppu þá sem einkennir
Berlín nú um stundir. Kreppa í
listalífi er þó alls engin nema síður
sé en þessir þættir virðast einatt
fylgjast að. Litlir peningar, mikil
gróska.
Hátíðin er gríðarlega umfangs-
mikil og er skipt upp í nokkra und-
irflokka. Stærstu myndirnar keppa
um gull- og silfurbjörninn en svo
eru flokkar á borð við Panorama
(listrænar, óháðar myndir) og Int-
ernational Forum of New Cinema
(jaðarmyndir og myndir frá svæðum
sem ekki eiga ríka kvikmyndahefð
að baki). Auk þessa eru þýskri kvik-
myndagerð gerð sérstök skil og
gömlum gullmolum er einnig varpað
á tjald í sérstakri dagskrá. Einnig
er sérstök barnamyndahátíð og
samkynhneigð hátíð – Teddy-
verðlaunin en hátíðin sú fagnar nú
tuttugu ára afmæli. Jafnframt því
að vera hefðbundin kvikmyndahátíð
er einnig rekinn kvikmyndamark-
aður á hátíðinni, vinnubúðir (works-
hop) eru starfræktar og alls kyns
fyrirlestrar eru haldnir.
Hátíðin í fyrra þótti slöpp, var að
margra mati með augun of mikið
fyrir neðan beltisstað og var upp-
nefnd Sexinale af einhverjum miðl-
inum. Undirtónn hátíðarinnar í ár er
hins vegar í alvarlegra lagi, áherslan
liggur í raunsæjum, pólitískum og
kaldranalegum myndum. Á meðal
mynda sem prýða hátíðina er t.d.
nýjasta mynd Michael Winterbot-
tom, The Road to Guantánamo, Syr-
iana með George Clooney og pólí-
tiska háðsádeilan Bye Bye
Berlusconi. Engin grið virðast gefin
í ár, þýska myndin Der freie Wille
fjallar um raðnauðgara og Candy
(með Heath Ledger í aðalhlutverki)
fjallar um heróínsjúklinga. Fleiri at-
hyglisverðar myndir í ár eru t.d.
nýjasta mynd Lukas Moodyson,
Container; nýjasta mynd Terrence
Malick (Thin Red Line), The New
World sem skartar Colin Farrell í
aðalhlutverki og þá nýjasta mynd
Sidney Lumet þar sem Vin Diesel
skiptir rækilega um gír. Robert Alt-
man mætir þá með nýjasta útspilið
sitt, A Prairie Home Companion,
kántrígrín með Woody Harrelson,
Meryl Streep og Lily Tomlin en
fjöldi þekktra leikara leggur Altman
lið í myndinni. Þá má ekki gleyma
stórmyndinni Capote með hinum
magnaða leikara Philip Seymour
Hoffman í burðarrullunni.
Í forsvari fyrir aðaldómnefnd há-
tíðarinnar er leikkonan Charlotte
Rampling en með henni í nefndinni
eru m.a. Matthew Barney, Bolly-
wood-leikstjórinn Yash Chopra,
tökumaðurinn Janusz Kaminski
(hefur unnið náið með Spielberg) og
þýski stórleikarinn Armin Mueller-
Stahl. Rampling sagði á að blaða-
mannafundi, sem haldinn var að
morgni dags á fimmtudeginum, að
hinn beitti og alvörugefni útgangs-
punktur hátíðarinnar hefði verið það
Kvikmyndir | Kvikmyndahátíðin í Berlín var sett á fimmtudaginn
AP
Hér má sjá hluta dómnefndarinnar á Berlinale. Kóreska leikkonan Lee Young, breska leikkonan Charlotte Ramp-
ling, formaður dómnefndar, og Matthew Barney, listamaður, eiginmaður Bjarkar Guðmundsdóttur.
Alvarlegur
undirtónn
Arnar Eggert Thoroddsen í Berlín
arnart@mbl.is