Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði í gær um 0,96% og var lokagildi hennar 6.465 stig. Heildar- viðskipti í Kauphöllinni námu um 23,2 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með íbúðabréf fyrir um 14,3 milljarða og með hlutabréf fyrir um 4,3 milljarða. Mest voru viðskipti með bréf KB banka, fyrir um 1,2 milljarða. Mest hækkuðu bréf Mosa- ic Fashions, um 3,5%. Þá hækkuðu bréf Dagsbrúnar um 2,6%. Mest lækkun var á bréfum Icelandic Group, um 7,5%. Hækkun í Kauphöllinni        &" ' (    )    ' (* + ")*,  #  ,  6     7              !" #$%  &'   &"   ( %) #%  *+ %" %  * "%  '%) #% ( %)  ,  ,  &  %  -./01 &21#%  3   8## )6 2  7  %   & .0 ( %)  %)  4. 02%   5 %)   672  89& % 8. :;"" %". 0  0 %  < %%   0 %  0)- ,   $9 & ) =;220   -1>" -0%)  $ &   % 5?=@ -A0   0 0     /           /  /  /  / / / / ; %" 1 ;  0 0 / / / / /  / / / / / / / / / / B  CD B  CD / B /  CD B CD B  CD / B CD B  CD / B  CD / B CD B CD B CD B  CD / B CD / B /CD / B / CD / / / / / 4 ) 0   )" % : #0 A  )" E * -        /           /  /   /   / / / /                                         < 0   A +$   :4 F "%  &2 )  0     /     /  / /  / / / / ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● NAFNI Singer & Friedlander, dótt- urfélags Kaupþings banka í Bret- landi, verður breytt í Kaupthing Sing- er & Friedlander á næsta ári, að því er segir á vef Financial Times. Segir í fréttinni að innan tveggja ára frá þeim tímapunkti að Kaupthing bæt- ist í nafnið verði Singer & Friedlander tekið út og eftir muni standa Kaup- thing. Þá segir að Singer & Fried- lander fagni 100 ára afmæli á næsta ári, en um leið glati félagið nafninu. Nafni Singer & Friedlander breytt? ● TILKYNNT var til norsku kauphall- arinnar í gær að Öflun ehf., eigandi Apple á Íslandi, hefði tryggt sér 77,58% hlutabréfa í Office Line verslunarkeðjunni, sem selur Apple- vörur á Norðurlöndunum. Bjarni Áka- son, framkvæmdastjóri Öflunar, hef- ur lýst að markmiðið með sé að sam- eina Öflun og Office Line. Öflun með 78% í Office Line ● SKÚLI Mogensen, forstjóri og stofnandi OZ, flutti í gær erindi á tækniráðstefnu Morgan Stanley í Kanada en fyrirtækið hefur sérhæft sig í að þróa hugbúnað sem gerir far- símanotendum kleift að senda skila- boð í og úr farsímum sínum, líkt og forritið MSN Messenger gerir fyrir einkatölvur. Erindi Skúla fjallaði um slík skilaboð og einnig tölvupóst í og úr farsíma fyrir neytendur. Fyrirtæki sem nú þegar hafa sam- ið við OZ um notkun á þessari far- skilaboðalausn eru meðal annars Microsoft, Motorola, Nokia, Sam- sung, Siemens og Sony-Ericsson. OZ kynnir farskila- boðalausn sína NÓI-Síríus hefur keypt enska sæl- gætisfyrirtækið Elizabeth Shaw. Um er að ræða gamalgróið fyrirtæki með sögu allt aftur til 19. aldar, sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á súkkulaðivörum af ýmsu tagi. Þekktustu merki fyrirtækisins eru Mint Crisps, sem eru innpakkaðar súkkulaðiskífur með myntubragði og Famous Names, sem eru líkjörsfyllt- ir konfektmolar. Kaupverð er ekki gefið upp en Elizabeth Shaw er með svipaða árs- veltu og Nói-Síríus, eða um 1,4 millj- arða króna. Starfsmenn enska fyr- irtækisins eru á þriðja hundrað. Núverandi stjórnendur, sem keyptu fyrirtækið árið 2000, munu áfram eiga hlut í því auk þess sem flestir þeirra starfa áfram hjá félag- inu og sinna daglegri stjórn. Straum- ur-Burðarás veitti Nóa-Síríusi ráð- gjöf varðandi kaupin. Samfara kaupunum hefur verið ákveðið að úthýsa framleiðslu fyrir- tækisins og hefur um það verið sam- ið við þrjá súkkulaðiframleiðendur, bæði á Englandi og í Þýskalandi. Höfuðstöðvar sölu, markaðsstarf- semi og stjórnunar munu þó áfram verða í Bristol á Englandi, að því er segir í tilkynningu. Fengur fyrir fyrirtækið Finnur Geirsson, framkvæmda- stjóri Nóa-Síríusar, segir að þessi kaup muni ekki hafa teljandi áhrif á starfsemi Nóa-Síríusar hér á landi og muni hún verða á sömu nótum og verið hefur. Hins vegar sé fengur í því fyrir Nóa-Sírius að kynnast og taka þátt í með beinum hætti sam- bærilegri starfsemi á svo stórum markaði sem Bretland er. Þegar tvö rótgróin fyrirtæki með svo mikla og góða reynslu rugli saman reytum, megi vænta ávinnings fyrir þau bæði. Nói-Síríus hóf sinn rekstur ár- ið 1920 en saga Elizabeth Shaw nær aftur til ársins 1881, er einn forvera fyrirtækisins, H.J. Packer, hóf starf- semi í Bristol. Nói-Síríus kaupir enska sælgætisgerð BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfs- son, stjórnarformaður Straums- Burðaráss Fjárfestingarbanka, sagði í ræðu sinni á aðalfundi bankans í gær að innan tíðar mætti vænta kaflaskila í rekstri fjármála- fyrirtækja á Íslandi. Sagði hann að íslenskar fjármálastofnanir hefðu notið góðrar arðsemi af fjárfest- ingum sínum á innlendum hluta- bréfamarkaði og að heimamarkað- urinn hefði fjármagnað íslensk fyrirtæki í alþjóðlegri starfsemi í talsverðum mæli. „Óvarlegt er að vænta sambæri- legrar ávöxtunar á íslenskum fjár- málamarkaði til frambúðar, og um leið sama stuðnings hins íslenska fjármálamarkaðar við alþjóðafyrir- tæki okkar,“ sagði Björgólfur Thor. Að mati Björgólfs hefur tæki- færum til umbreytinga og upp- stokkunar á íslenskum fjármála- markaði fækkað. „Kraftmiklir einstaklingar og fyrirtæki hafa á undanförnum árum látið mjög til sín taka og nú er svo komið að ís- lenskur fjárfestingamarkaður hef- ur æ fleiri einkenni annarra mark- aða. Bernskuár hins frjálsa fjármálamarkaðar eru trúlega að baki,“ sagði Björgólfur. Þá sagði Björgólfur að í sínum huga væri stefnumótun Straums- Burðaráss um að bankinn verði norður-evrópskur fjárfestingar- banki með öfluga starfsemi í ná- grannalöndunum eðlileg og sjálf- sögð í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefði hér heima og erlendis. Sagði hann að mikilvægt væri fyrir banka, á borð við Straum-Burðar- ás, að leita víða fanga til að tryggja ávöxtun eigna sinna og arðsemi til langs tíma. Methagnaður Á fundinum fór Þórður Már Jó- hannesson, forstjóri Straums Burðaráss, yfir ársreikning ársins 2005 og var hann samþykktur. Straumur-Burðarás skilaði met- hagnaði á síðasta ári, 26,7 millj- örðum króna eftir skatta og var arðsemi eigin fjár 46,5%. Sjálfkjörið var í stjórn og verður Björgólfur Thor Björgólfsson eftir sem áður stjórnarformaður. Aðrir í stjórn eru Magnús Kristinsson, Þór Kristjánsson, Eggert Magn- ússon og Kristinn Björnsson. Þá var samþykkt tillaga stjórnar um að greiða 6.679 milljónir króna í arð eða sem nemur 25% af hagn- aði ársins 2005 og 65% af nafnverði hlutafjár Straums. Hluti arð- greiðslu Straums-Burðaráss verð- ur greiddur í formi hlutabréfa. Annars vegar greiðast 5 milljarðar króna með hlutabréfum Avion Gro- up, miðað við markaðsvirði á loka- gengi gærdagsins, og hins vegar greiðast 350 milljónir króna með hlutabréfum Icelandic Group, einnig miðað við markaðsvirði á lokagengi gærdagsins. Það sem eftir stendur af arðgreiðslunni verður greitt í reiðufé. Kaflaskil fram undan hjá fjármálafyrirtækjum Stjórnarformaður Straums-Burðaráss seg- ir tækifærum til umbreytinga hafa fækkað Morgunblaðið/Kristinn Kátir Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, Þórður Már Jóhannesson forstjóri og Magnús Kristinsson stjórnarmaður voru kátir á aðalfundinum í gær enda var uppgjör síðasta árs gott. Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is ÍSLANDSBANKI hefur skrifað undir samning um kaup á 50,1% hlut í norska fyrirtækinu UNION Gro- up. Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, segir að kaupin styrki stöðu bankans í viðskiptum með at- vinnuhúsnæði, fjármögnun slíkra viðskipta með sölu til þriðja aðila, auk fyrirtækjaráðgjafar og sjóða- rekstrar á sviði atvinnuhúsnæðis í Noregi. Fram kom í máli Bjarna á síma- fundi með fréttamönnum í gær að UNION Group væri með um 20% markaðshlutdeild og því leiðandi að- ili í sölu, ráðgjöf og samsetningu viðskipta með atvinnuhúsnæði í Noregi. Hann segir að UNION Group útvegi einnig fjármögnun frá þriðja aðila og reki sjóði, með áherslu á atvinnuhúsnæði og fyrir- tækjaráðgjöf á sviði fasteignavið- skipta. Kaupverðið í þessum viðskiptum er ekki gefið upp. Í tilkynningu frá Íslandsbanka kemur hins vegar fram að rekstrartekjur UNION Group hafi verið um 160 milljónir norskra króna árið 2005, sem svarar til tæplega 1,6 milljarða íslenskra króna. Hagnaður fyrir skatta og hlutdeild minnihluta var 90 milljónir norskra króna, um 900 milljónir ís- lenskra króna. Starfsmenn eru um 25 talsins. Kaupin eru háð samþykki yfir- valda í Noregi og á Íslandi. Fram kom í máli Bjarna að frá því Íslandsbanki keypti KredittBanken árið 2004 og BNbank 2005, hefði bankinn leitast við að styrkja stöðu sína í fasteignaviðskiptum og fyr- irtækjaráðgjöf í Noregi. Kaupin á norska verðbréfafyrirtækinu Norse Securities ASA (Norse) í nóvember á síðasta ári hafi verið fyrstu skrefin í þá átt. Í tilkynningu frá Íslands- banka er haft eftir Knut Stokke, hluthafa og talsmanni UNION Group, að það að ganga til liðs við traust og framsækið fjármálafyrir- tæki, eins og Íslandsbanki sé, muni tryggja UNION tækifæri til að bjóða viðskiptavinum fleiri fjármála- afurðir, byggðar á blöndu á mis- munandi eignum og fjármálavörum. Það muni einnig virkja saman fyr- irtækjaráðgjöf UNION og getu Ís- landsbanka til að afla fjárfesta. „Við sjáum tækifæri fyrir okkur, starfs- fólk okkar og viðskiptavini,“ segir Stokke. Íslandsbanki kaupir 50,1% hlut í fasteignamiðlun í Noregi 6 )G -H8     C C &:-= ! I   C C ? ? J,I    C C J,I * % 6      C C 5?=I !K L%     C C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.