Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í MARS Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. Afgreiðslugjöld á flugvöllum. Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna, og rútur með/án bílstjóra. Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur, allt að 14 manna. Smárútur fyrir hjólastóla. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum - frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án greiðslu og við staðfestum síðan og sendum samning og greiðsluseðla. Einnig má greiða með greiðslukorti. LALANDIA Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur. Lágmarksleiga 2 dagar. Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006 Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna- höfn og Flensborg. Getum útvegað hjólhýsi og bíla með dráttarkrók. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Fylkir.is ferðaskrifstofa sími 456 3745 Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Óhætt er að segja að þessiferð hafi toppað allt ann-að og haft áhrif á bæðilífsskoðanir okkar og heimssýn,“ segja hjónin Marta María Oddsdóttir, kennari, og Þórður Magnússon, rekstrarhag- fræðingur, sem voru í hópi tuttugu Íslendinga, sem fóru í haust í þriggja vikna ferð um Ekvador og Galapagoseyjar á vegum ferðaskrif- stofunnar Emblu. Flogið var í gegnum Boston og Miami til Quito, höfuðborgar Ekvadors, sem er í 2.850 metra hæð yfir sjávarmáli, þar sem áformað var að hafa bæki- stöðvar. Íslenskur fararstjóri var Guðmundur Páll Ólafsson, en heimamaðurinn og náttúrubarnið Robby fylgdi hópnum eftir í hví- vetna. Ferðalagið skiptist í þrjár ferðir því fyrir lá að skoða Amazon- regnskógana, síðan hásléttuna og loks Galapagos, sem eru eld- fjallaeyjar um þúsund km frá ströndinni. Strax á öðrum degi var flogið til borgarinnar Coca í Ama- zon sem sprottið hefur upp í tengslum við olíuvinnslu á svæðinu. Dvalið var í þjóðgarði, sem byggist á sjálfbærri þróun og vistvænni ferðaþjónustu. „Rekstur lítilla sam- félaga á Amazon-svæðinu er til fyr- irmyndar og mikilvægur þáttur í uppfræðslu íbúanna snýst um að búa í haginn fyrir komandi kyn- slóðir. Áin Napo er aðalsam- gönguæðin og því ferðuðumst við um á litlum mótorknúnum kanóum um svæðið. Við tóku svo nokkrir dagar á fljótabáti, þar sem aðbún- aður var allur til fyrirmyndar. Alla daga var farið í skoðunarferðir um regnskógana tvisvar á dag. Regn- skógunum fylgir mögnuð tilfinning. Náttúruhljóð dýra, sæt og sterk gróðurlyktin, mikill raki og kraftur skógarins umlykur ferðamanninn á þessum slóðum. Alls staðar er líf. Plöntur og dýr nærast hvað á öðru og rotnun gengur hratt fyrir sig. Því er hringrásin bæði stöðug og hröð,“ segir Marta. Skemmtilegir markaðir Eftir skógarævintýrið hélt hóp- urinn norður til Otavalo í And- esfjöllunum þar sem gist var á gömlum spænskum búgarði. „Í Ota- valo fórum við á bændamarkað þar sem lifandi svín, hænsni, nautgripir, lömb og lamadýr voru boðin hæst- bjóðendum. Í smáþorpum í kring sérhæfa þorpsbúar sig í ýmsu fal- legu handverki, svo sem vefnaði, út- skurði, útsaumi, skartgripa- og leð- urgerð. Íbúar hásléttunnar, Inka-indjánar, eru lágvaxnir. Hvorki konur né karlar skerða hár sitt heldur hafa það sítt í fléttum og klæðast litríkum slám og bera hatta á höfði. Konurnar, sem eru ba- búskulegar um sig miðjar, eru ábyrgar fyrir aðdráttum til heim- ilisins sem þær bera á bakinu,“ seg- ir Marta. Síðasti hluti ferðarinnar hófst á því að ekið var frá Cuenca, borg uppi á hásléttunni, niður að hafn- arborginni Guayaquil. Ferðin lá um Inka-stíginn, gamla samgönguæð frá Inka-tímum og var hæst farið í 4.200 metra hæð. „Stórkostlegt var að sjá hvernig gróðurinn og hita- stigið breyttist þegar keyrt var úr allri þessari hæð niður að strönd sem tók aðeins hálfan annan tíma. Á sama tíma breyttist hitastigið úr 4°C í 30°C og útsýnið úr hrjóstrugu landslagi í pálma- og bananatré, en þess má geta að Ekvador er stærsti bananaútflytjandi í heimi,“ segir Þórður. Í Guayaquil mætti ferðalöng- unum allt annað andrúmsloft en þeir höfðu kynnst í landinu til þessa því þarna var iðandi borgarlíf með blönduðum íbúum. Flogið var til Galapagoseyja þar sem gist var um borð í litlu skemmtiferðaskipi. Far- ið var í land á nýrri eyju á hverjum degi og mikið snorklað innan um sæljón og önnur sjávardýr. Eyjarnar voru algjörlega óbyggð- ar fram til ársins 1750, en þar setti Darwin fram þróunarkenningu sína um uppruna tegundanna. „Eyj- arnar eru hrjóstrugar og þar er hægt að lesa söguna. Þarna eru dýrin alls óhrædd við manninn, hvort sem gengið er á landi eða synt í sjónum. Fast er þó gengið á eftir því að dýrin séu ekki snert eða þeim gefinn matur til að rugla ekki vistkerfið. Krökkt er af sæljónum og lamb- kembum og fuglalífið er stórkost- legt. Nefna má ljósbláfættar súlur, óflughæfa skarfa og freigátufugla í tilhugalífinu. Ég komst í návígi við hákarl neð- ansjávar og við sáum bæði sæ- skjaldbökur og landskjaldbökur, sem Galapagos ber nafn sitt af, en þær geta orðið allt að 200 ára gaml- ar og 250 kíló,“ segir Þórður. Jörðin bara að láni Ferðin stóð sannarlega undir væntingum því þau segjast hafa komið ríkari heim. Landið býr yfir andstæðum og fjölbreytileika og sérstakt er að upplifa hin skörpu skil dags og nætur þar sem mið- baugur liggur í gegnum landið, að sögn Mörtu. „Ekvador býr yfir afar flóknu vistkerfi og þar búa ólíkir þjóðflokkar með ólíka menningu. Þarna er gríðarlega mikið dýra- og plöntulíf. Þarna rekast á þrír jarð- skorpuflekar, eldvirkni er mikil auk þess sem landið býr yfir einu flókn- asta hafstraumakerfi jarðar. Allt þetta hefur afgerandi áhrif á veð- urfar á jörðinni. Þetta minnir okkur á ábyrgð og meðvitaða hnattræna hugsun. Þegar ferðast er um þetta svæði þarf maðurinn að muna það að hann hefur ekki erft jörðina heldur í besta falli fengið hana að láni frá afkomendum sínum.“  EKVADOR | Regnskógur, háslétta og eyjar sameinuðust í einni ferð Náttúruhljóðin eru alls staðar Hjónin Marta María Oddsdóttir og Þórður Magn- ússon eru alsæl eftir ferðalag til Ekvador og Galapag- oseyja. Jóhanna Ingvarsdóttir heyrði ferðasöguna. Marta María Oddsdóttir og Þórður Magnússon á leið í land á Galapagoseyjum. Kona við vefnað í Otavalo en í þorpum í Andesfjöllunum sérhæfir fólk sig í ýmsu handverki.Markaðsdagur í Andesfjöllum en þar voru t.d. boðin upp svín, hænsni, lamadýr og lömb. Sæljón í flæðarmáli á Galapagos. join@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.