Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 47
KIRKJUSTARF
Matthíasdóttir þjónar fyrir altari.
Barnakór Grafarvogskirkju syng-
ur. Stjórnandi: Oddný J. Þorsteins-
dóttir. Organisti: Gróa Hreins-
dóttir. Föstumessa á
Hjúkrunarheimilinu Eiri kl. 16.
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Graf-
arvogskirkju syngur.
Æskulýðsguðsþjónusta með léttu
ívafi kl. 20. Prestur séra Anna Sig-
ríður Pálsdóttir Æskulýðsleiðtog-
arnir Ingólfur, Sigrún og Oddgeir,
ásamt börnum úr æskulýðsstarfinu
lesa ritningarlestra, hugleiða og
fara með bænir. Unglingakór Graf-
arvogskirkju syngur, stjórnandi:
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Organisti:
Gróa Hreinsdóttir.
Æskulýðsmessa í
Breiðholtskirkju
ÆSKULÝÐSDAGURINN verður
haldinn hátíðlegur í Breiðholts-
kirkju með fjörugri æskulýðsguðs-
þjónustu sunnudaginn 5. mars kl.
11. Börn úr tíu til tólf ára starfi
kirkjunnar sýna helgileikinn „Óskir
trjánna“. Fermingarbörn flytja
bænir og unglingahljómsveit spilar.
Axel og Ösp koma í heimsókn og að
sjálfsögðu verður mikið sungið. Eft-
ir guðsþjónustuna mun barnakór
kirkjunnar selja vöfflur í safn-
aðarheimilinu en kórinn stendur nú
í fjáröflun fyrir ferð á norrænt
barnakóramót í Danmörku sem
haldið verður í maí. Kórinn mun
syngja nokkur lög fyrir kirkjugesti
í kaffinu. Allir eru velkomnir í
Breiðholtskirkju og eru væntanleg
fermingarbörn sérstaklega hvött til
þátttöku ásamt foreldrum sínum.
Barnaréttur –
foreldraréttur
Á FRÆÐSLUMORGNUM í Hall-
grímskirkju hafa í vetur verið flutt-
ir nokkrir fyrirlestrar um börn og
uppeldi sem er framlag kirkjunnar
til átaksins Verndum bernskuna. Á
fræðslumorgni næsta sunnudag, 5.
mars kl. 10 verður enn einn sem
tengist þessu efni. Þar mun umboðs-
maður barna, Ingibjörg Rafnar,
flytja fyrirlestur um efnið Barna-
réttur-foreldraréttur. Í erindi sínu
mun Ingibjörg ræða rétt barna
gagnvart foreldrum sínum og for-
ráðamönnum og rétt foreldra gagn-
vart börnum sínum og stjórnvöld-
um. Skýrt er kveðið á um
uppeldisrétt og ábyrgð foreldra í al-
þjóðasamþykktum og verður gerð
grein fyrir gildi þeirra í íslensku
réttarkerfi. Á undanförnum árum
hafa réttindi barna verið mjög í
brennidepli og réttindi þeirra við
ýmsar aðstæður bætt verulega.
Uppeldisréttur og umönn-
unarskylda foreldra hefur verið
minna í umræðunni og mun Ingi-
björg einnig taka þetta til umræðu.
Aðgangur er öllum opinn án endur-
gjalds.
Að fyrirlestrinum loknum hefst
fjölskylduguðsþjónusta í umsjá
Magneu Sverrisdóttur djákna og sr.
Sigurðar Pálssonar. Barna- og ung-
lingakór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Friðriks Kristinssonar.
Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Um kvöldið kl. 20 er síðan
samvera fyrir unglinga og foreldra
þeirra í umsjá Magneu Sverr-
isdóttur og munu unglingar sjá um
dagskráratriði.
Jesúbíó
í Neskirkju
JESÚÍMYNDIR í kvikmyndum eru
fjölbreytilegar. 6 kvikmyndir um
Jesú eða kristsgervinga verða sýnd-
ar í Neskirkju næstu sunnudaga kl.
15.
Sýningarnar eru öllum opnar og í
boði Kristnihátíðarsjóðs, sem styrk-
ir sýningarnar. Fyrsta sýningin
verður sunnudaginn 5. mars og
verður þá sýnd The King of Kings
frá 1927. Myndin sýnir yfirvegaðan
en fjarrænan Jesú. Að sýningum
standa Guðfræðistofnun, DEC og
Neskirkja. Á undan sýningu munu
Björn Norðfjörð og Gunnar J.
Gunnarsson skýra efni og umræður
verða eftir sýningu.
Passíusálmanámskeið
ÞRIÐJUDAGINN 7. mars hefst á
vegum Leikmannaskóla þjóðkirkj-
unnar námskeið um Passíusálmana
fyrr og nú. Námskeiðið verður hald-
ið í Grensáskirkju og hefst kl. 20.
Tilgangurinn með námskeiði sem
þessu er að sýna fram á að Pass-
íusálmarnir eigi enn fullt erindi til
samtímans þó að liðnar séu meira
en þrjár aldir frá því að þeir voru
ortir.
Til að skoða þetta verður fjallað
um uppruna og sögu Passíusál-
manna, um trúarskáldið Hallgrím
Pétursson og hvernig sálmarnir
hafa birst í lífi og sögur þjóð-
arinnar. Einnig verður tónlist við
sálmana kynnt með tóndæmum og
skoðuð sú tónlist sem tengist sálm-
unum bæði innlend og erlend.
Fjallað verður um upplestur sálm-
anna og tengsl þeirra við píslarsög-
una í listum og kvikmyndum
Kennslu á námskeiðinu annast
þau dr. Margrét Eggertsdóttir sér-
fræðingur á Árnastofnun, dr. Sig-
urður Árni Þórðarson, prestur í
Neskirkju, Árni Svanur Daníelsson,
guðfræðingur og vefstjóri á Bisk-
upsstofu, Smári Ólason, kennari við
Tónskóla þjóðkirkjunnar, og Grétar
Einarsson verslunarmaður.
Kennt er í Safnaðarheimili
Grensáskirkju og hefst námskeiðið
kl. 20. Kennt er í 5 skipti, tvo tíma í
senn. Skráning fer fram í síma 535
1500 eða á vef Leikmannaskólans.
Fjöldkyldumessa
og kökuhlaðborð
í Neskirkju
SUNNUDAGURINN 5. mars er
æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar.
Þessi dagur er tileinkaður ungu
kynslóðinni og af því tilefni verður
fjölskyldumessa í Neskirkju. Börn
úr barna- og unglingastarfi Nes-
kirkju taka þátt í messunni með því
að lesa ritningalestra og fara með
bænir. Barnakór Neskirkju syngur
undir stjórn Steingríms Þórhalls-
sonar organista. Gunnar Óli Mark-
ússon, þátttakandi í NEDÓ ung-
lingaklúbbi Neskirkju, og
Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, um-
sjónamaður barna- og unglinga-
starfs Neskirkju, prédika. Sr. Örn
Bárður Jónsson þjónar fyrir altari.
Eftir messuna verður kór Neskirkju
með fjáröflun vegna ferðalags kórs-
ins til Ítalíu í sumar og býður kaffi-
og kökuhlaðborð á vægu verði. Um
kvöldið verður unglingaguðsþjón-
usta kl. 20 í Dómkirkjunni með þátt-
töku unglinganna í NEDÓ (samstarf
Neskirkju og Dómkirkju).
Samskipti og sam-
ræður trúarbragða
NÁMSKEIÐ um samskipti og sam-
ræður trúarbragða og menningar-
heima verður haldið mánudaginn 6.
mars og þriðjudaginn 7. mars á veg-
um Leikmannaskóla þjóðkirkj-
unnar. Samræða trúarbragðanna
hefur aldrei verið meira aðkallandi
en í samtímanum, veröldin skrepp-
ur saman og trúarbrögð eru æ mik-
ilvægari þáttur í tengslum innan
samfélaga.
Námskeiðið heitir „Hin trúuðu og
trúarbrögðin“ og verður fjallað um
samskipti og samtal fólks af ólíkri
trú. Fjallað verður um hvað ein-
kennir sýn og umfjöllun fjölmiðla á
trúarbrögð og minnihlutahópa í
ljósi átakanna um myndbirtingar
Jótlandspóstsins af Múhameð spá-
manni. Einnig verður samstarf og
samtal fólks af ólíkum trúar-
brögðum skoðað út frá forsendum
kristinnar guðfræði og stöðu kristni
í fjölmenningu samtímans:
Leiðbeinendur eru þær sr. Krist-
ín Þórunn Tómasdóttir héraðs-
prestur í Kjalarnessprófastsdæmi,
MA í trúarbragðafræðum og Stein-
unn Arnþrúður Björnsdóttir guð-
fræðingur, verkefnisstjóri sam-
kirkjumála á Biskupsstofu, en starf
hennar felur meðal annars í sér
samskipti við önnur trúarbrögð.
Námskeiðið fer fram í Grens-
áskirkju og hefst kl. 18. Kennt verð-
ur í tvö skipti, tvo tíma í senn.
Skráning fer fram á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkjan.is/
leikmannaskoli eða í síma 535 1500
Barna- og fjölskyldu-
samkoma
í Selfosskirkju
NÆSTA sunnudag, 5. mars, sem er
1. sunnudagur í föstu, verður barna-
og fjölskyldusamkoma í Selfoss-
kirkju kl. 11.00.
Stundin verður, vegna fjarveru
sóknarprests, í umsjá Eyglóar J.
Gunnarsdóttur, djákna Selfoss-
kirkju, Guðbjargar Arnardóttur
cand. theol. og Glúms Gylfasonar,
organista kirkjunnar. Báðar deildir
Barnakórs Selfosskirkju syngja og
auk þess verður mikill, almennur
söngur.
Ég, sem þennan dag verð staddur
á stuttri ferð í Danmörku, vil sér-
staklega hvetja sóknarbörn mín til
þess að koma með ungviðið til
kirkju þennan dag, sem er æsku-
lýðsdagur þjóðkirkjunnar. Við meg-
um ekki vanrækja að kenna börnum
okkar bænir, Faðirvor, barnasálma
og vers, og við skulum byrja að
kenna þeim þetta, á meðan þau eru
enn í vöggu. Börn skilja fleira en
okkur grunar og miklu fyrr en okk-
ur órar fyrir. Það er áreiðanlega
ekki hægt að gefa barni betri gjöf
en minninguna um röddina í pabba
og/eða mömmu, þegar farið var
með gott orð fyrir svefninn forðum,
og signt yfir litla rúmið undir nótt-
ina: Í nafni Guðs, föður og sonar og
heilags anda, amen.
Við, sem sjáum svo vel og dyggi-
lega um það, að börnin okkar hafi
ríkulega bæði fæði og klæði, skulum
fyrir alla muni ekki gleyma þeirra
innri manni. Verum vakandi fyrir
því að börnin okkar læri Guðs orð,
bæði í lausu og bundnu máli. Það er
sú hollasta undirstaða sem veitir
innri ró, færir stórmikinn styrk – og
varir alla ævi.
Sr. Gunnar Björnsson.
Minningarsjóður
Ásgeirs Jónsteinssonar
ÆTLAR þú að senda samúðarkort
vini sem misst hefur ástvin? Mundu
þá eftir fallegu kortunum frá Minn-
ingarsjóði Ásgeirs Jónsteinssonar.
Þau fást í verslunum Bónuss á Sel-
fossi og í Hveragerði.
Minningarsjóður Ásgeirs Jón-
steinssonar var stofnaður af Jó-
hannesi Jónssyni, kaupmanni í Bón-
us, á afmælisdegi Ásgeirs
Jónsteinssonar. Ásgeir lést af völd-
um voðaskots hinn 15. mars 2004.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
efnilega nemendur til náms, en jafn-
framt rannsóknir á athyglisbresti,
ofvirkni og annarri atferlisröskun
barna. Auk undirritaðs sitja í stjórn
sjóðsins þeir Eyjólfur Sturlaugsson
skólastjóri og Ólafur Snorrason,
framkvæmdastjóri Ræktunarsam-
bands Flóa og Skeiða.
Reikningsnúmer Minningarsjóðs
Ásgeirs Jónsteinssonar er 0152-18-
460122 í Landsbanka Íslands á Sel-
fossi.
Sr. Gunnar Björnsson
Hátíðamessa vegna
100 ára afmælis
Kvenfélags Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
KVENFÉLAGIÐ er elsta kirkju-
kvenfélag landsins og hefur gefið
Fríkirkjunni marga sína fegurstu
og dýrmætustu gripi. Kvenfélags-
konur hafa verið í forsvari fyrir
ýmsum framkvæmdum í kirkjunni
og verið öflugar í starfi kirkjunnar.
Nýir kirkjumunir verða helgaðir;
altarisklæði með kvenlegum tákn-
um eftir listakonuna Messíönu Tóm-
asdóttur, sem gert er kvenfélaginu
til heiðurs og einnig bæna-
ljósastæða eftir listakonuna Stein-
unni Þórarinsdóttur, sem Kven-
félagið gefur kirkjunni á þessum
tímamótum. Báðar konurnar verða
viðstaddar í kirkjunni. Lestrar
verða í höndum fyrr- og núverandi
formanna Kvenfélagsins, en í dag er
Sigurborg Bragadóttir formaður
þess. Altarisganga. Anna Sigríður
Helgadóttir og Carl Möller leiða al-
mennan safnaðarsöng ásamt Frí-
kirkjukórnum. Þjónustan verður í
höndum prestanna Hjartar Magna
Jóhannssonar og Ásu Bjarkar
Ólafsdóttur, sem jafnframt prédik-
ar.
Glæsilegt messukaffi Lovísu
verður í boði safnaðarins í Safn-
aðarheimili Fríkirkjunnar við Lauf-
ásveg eftir hátíðamessuna. Þar
munu listakonurnar segja nánar frá
verkum sínum.
Samgleðjumst kvenfélagskonum
á þessum tímamótum.
Unglingahljómsveitin
The Beauteful’s í
Bústaðakirkju á æsku-
lýðsdegi kirkjunnar
BARNAMESSA klukkan 11. Þar
koma saman börn og fjölskyldur
þeirra í létta samverustund þar sem
söngur og gleði ræður ríkjum. For-
eldrar eru hvattir til þátttöku.
Börnin fá að venju fræðsluefni í
samverunni í formi límmiða sem
límdur er inn í sérstaka límmiðabók
sem þau hafa fengið fyrr í vetur.
Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Í
guðsþjónustu þessa sunnudags
klukkan 14.00 mun hljómsveitin
The Beauteful’s spila í messunni.
Hljómsveitirnar eru skipaðar ung-
lingum úr Bústaðahverfi. Hreiðar
Örn Zoëga Stefánsson, umsjón-
armaður safnaðarstarfs kirkjunnar
flytur hugvekju dagsins. Ferming-
arbörn aðstoða við athöfnina. Mola-
sopi og djús eftir messu.
Foreldrar eru hvattir til að fylgja
ungmennunum til messu.
Æskulýðs-
dagurinn
í Garðaprestakalli
ÆSKAN verður í aðalhlutverki í
Garðaprestakalli á morgun, á æsku-
lýðsdegi þjóðkirkjunnar. Kl. 11
verður æskulýðsguðsþjónusta í
Vídalínskirkju. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir mun leiða guðsþjón-
ustuna ásamt fermingarbörnum,
æskulýðsfélögum kirkjunnar og
Rannveigu Káradóttur æskulýðs-
fulltrúa. Jóhann Baldvinsson org-
anisti mun leiða tónlistina ásamt
sönghópi Sjálandsskóla og barna-
kór Hofsstaðaskóla, einnig mun
Andri Bjarnason syngja. Að lokinni
guðsþjónustunni verður boðið upp á
vöfflur með rjóma í umsjá æsku-
lýðsnefndar og æskulýðsfélaganna.
Kl. 14 verður æskulýðsguðsþjón-
usta í Bessastaðakirkju. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir mun leiða guðs-
þjónustuna ásamt ferming-
arbörnum. Tónlistarmaðurinn Val-
geir Skagfjörð mun leiða tónlistina,
en barnakór Álftanesskóla syngur
og nemendur úr tónlistarskóla
Álftaness leika á hljóðfæri, einnig
mun Andri Bjarnason syngja. Hall-
dóra Pálsdóttir kirkjuvörður verð-
ur með hressingu fyrir alla að lok-
inni athöfn.
Kl. 20 verður sameiginleg popp-
messa Bessastaða- og Garðasóknar
í Vídalínskirkju. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir leiðir guðsþjónustuna
og tónlistarmennirnir Rannveig
Káradóttir, Óskar Einarsson, Ómar
Guðjónsson, Kristinn Snær Agn-
arsson og Ingi Skúlason mynda öfl-
ugt gospelband.
Fermingarbörn og foreldrar eru
hvött til þátttöku. Allir velkomnir.
Fögnum æskulýðsdegi
þjóðkirkjunnar – eflum
gefandi samfélag!
HVETJUM alla unga og aldna til að
fjölmenna í æskulýðsguðsþjónustu í
Lágafellskirkju sunnudaginn 5.
mars kl. 20.
Æskulýður Mosfellsbæjar mun
sjá um athöfnina, hringja kirkju-
klukkum, lesa lestra, leiklesa og
leiða léttan söng.
Yfirskrift dagsins í Lágafells-
kirkju verður ,,Vináttan“ og mun
Trausti Ólafsson, leikari og kenn-
ari, leiða leiklestur ásamt fjórum
nemendum úr Lágafellsskóla, þeim
Alexöndru Björgu, Bryndísi Maríu,
Oddrúnu og Önnu Christine. Leik-
lesturinn er saminn upp úr völdum
köflum um vináttuna úr bókinni
„Litli prinsinn“ eftir Antoine De
Saint-Exupéry. Skólakór Varmárs-
kóla undir stjórn Guðmundar Óm-
ars Guðmundssonar mun leiða safn-
aðarsönginn og syngja nokkur lög.
Ragnheiður Jónsdóttir prestur og
Hreiðar Örn Zoëga æskulýðsfulltrúi
munu leiða stundina. Organisti
verður Guðmundur Ómar Ósk-
arsson.
Prestarnir.
Fjölskyldu-
gleði í Laugarnes-
kirkju
FJÖLSKYLDUMESSA verður hald-
in í Laugarneskirkju kl. 11 á æsku-
lýðsdegi þjóðkirkjunnar. Umsjón
hefur sr. Hildur Eir Bolladóttir
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með-
hjálpara. Gleðisveit Gunnars Gunn-
arssonar mun leika við athöfnina,
en hana skip auk Gunnars, Þorvald-
ur Þorvaldsson á trommur, Tómas
R. Einarsson á bassa og Örn Arn-
arsson sem syngur og leikur á gítar.
Fermingarmæðginin Hildur Er-
lingsdóttir og Erlingur Einarsson
munu flytja samtalsprédikun og
mörg fleiri fermingarbörn taka þátt
í þjónustunni.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Laufáskirkja