Morgunblaðið - 17.03.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 17.03.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 11 FRÉTTIR Laugavegi 68 • Sími 551 7015 Glæsilegur vorfatnaður KRINGLUKAST iðunn tískuverslun Kringlunni s. 588 1680 Laugavegi 40 s. 561 1690 20% afsláttur af úlpum frá KIRSTEN Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is Ný staða í varnarmálum Sjálfstæðismenn, formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde utanríkisráðherra, ræðir varnarmálin á fundi í Valhöll á morgun, laugardaginn 18. mars, kl. 10.30. ÆÐSTU yfirmenn varnarliðsins funduðu í gærmorgun með starfsfólki herstöðvarinnar og kynntu sérstak- lega fyrir bandarískum hermönnum og starfsfólki ákvörðun Bandaríkja- stjórnar að draga stórlega úr starf- semi á Keflavíkurflugvelli. Lögð var áhersla á að nú yrðu menn að snúa bökum saman og vinna við að framfylgja þeim ákvörðunum sem teknar verða í framhaldinu, og þá í ljósi þess sem kemur fram í fyrir- huguðum viðræðum milli landanna um áframhaldandi starfsemi á Mið- nesheiði. Jóhannes Halldórsson, trúnaðar- maður starfsmanna, sagði lítið hafa komið fram á fundinum í morgun annað en að varnarliðið væri að pakka saman og fara. Aðspurður hvernig hljóðið í ís- lensku starfsfólki sé segir hann að auðvitað sé enginn sáttur við að missa vinnuna en hins vegar hafi brottför varnarliðsins hangið yfir fólki lengi og á sinn hátt gott að þetta sé komið á hreint, fólk geti þá farið að leita sér að öðru. „Þetta hefur legið í loftinu og hang- ið yfir. En ekki það fyrir, þetta kemur á óvart hversu snögglega þetta kem- ur,“ segir Jóhannes og tekur fram að enn hafi enginn gerst svo djarfur að segja til um hvort einhverjir haldi vinnunni, verði endurráðnir eða hvort hreinlega allir verði látnir fara. Valþór S. Jónsson, framkvæmda- stjóri á viðhaldsdeild varnarliðsins, segir að þeim starfsmönnum sem hann hefur rætt við sé almennt brugðið við tíðindin. Flestir eigi von á að til uppsagna komi en það þyki hins vegar óþægilegt að vita ekki hvert umfang þeirra verði og hve mörgum verði sagt upp. „Menn hafa heyrt út undan sér að öllum starfsmönnum verði sagt upp til að byrja með og ein- hverjir svo endurráðnir en það er óstaðfest,“ segir Valþór. 1.250 hermenn á varnarliðssvæðinu Alls eru um 1.250 bandarískir her- menn á svæði varnarliðsins núna en þar að auki vinna um 900 Íslendingar í varnarstöðinni. Ekki var farið ofan í smáatriði á fundinum varðandi breyt- ingar á störfum starfsmanna né til- kynnt um uppsagnir eða hversu mörgum verður sagt upp á næstu sjö mánuðum. Eiginleg starfsemi á Keflavíkur- flugvelli snýr að flugher varnarliðsins en Bandaríkjafloti rekur bækistöðina, og þjónar þar með flughernum, en því fylgir að reka flugvöllinn. Því þykir ljóst að ef flugherinn hverfur á brott hverfi þjónustuhlutverk flotans einnig. Yfirmenn varnarliðsins funduðu með starfsmönnum í gær „Kemur á óvart hversu snögglega þetta kemur“ Eftir Andra Karl og Árna Helgason Morgunblaðið/RAX Yfirmenn varnarliðsins kynntu hermönnum og starfsfólki ákvörðun Bandaríkjastjórnar á fundi í gær. ÍSLENSKIR starfsmenn varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli eru í dag 592 en voru rúmlega eitt þúsund í mars árið 1990. Þrátt fyrir að ekki hafi verið formlega tilkynnt um fjöldauppsagnir hjá varnarliðinu, fyrir brottflutninga Bandaríkjahers, má telja öruggt að það gerist á næstu dögum og munu margir ef ekki allir missa vinnu sína. Flestir íslenskir starfsmenn varn- arliðsins starfa hjá flotastöðinni. Má þar nefna stofnun verklegra fram- kvæmda sem m.a. annast viðhald og rekstur mannvirkja, s.s. sem tóm- stundadeildar auk veitingahúsa, skemmtistaða og ferðaskrifstofu. Ís- lendingar starfa einnig hjá slökkvi- liðinu sem, auk þess að annast bruna- varnir í mannvirkjum og flugvélum, sér um hálkuvarnir og snjóruðning á flugbrautum, afgreiðslu herflutn- ingaflugvéla og ýmsa aðra þjónustu við flugvélar. Íslenskir starfsmenn starfa svo einnig við margar smærri deildir flotastöðvarinnar og aðrar deildir varnarliðsins. Bandarískir hermenn sem stað- settir eru á svæðinu eru 1.242 í dag, með fjölskyldum búa um 2.800 Bandaríkjamenn á svæði varnarliðs- ins. Fyrir tuttugu árum voru her- menn rúmlega 3.100 og um 2.100 ár- ið 1996, um 4.400 manns með fjölskyldum.                                        ! ! ! ! "! ! !  Sex hundr- uð íslenskir starfsmenn GREININGARDEILD KB banka hefur tekið saman hugsanlegan kostnað ríkisins af brotthvarfi hers- ins á Keflavíkurflugvelli en í gegn- um árin hafa Íslendingar haft veru- legan hag af veru varnarliðsins. Kemur fram í greiningu bankans að Ísland sé eina vestræna ríkið sem engum innlendum fjármunum ver til landvarna en það muni lík- lega breytast. Árið 2004 voru útgjöld til varn- armála í Danmörku um 1,5% af vergri landsframleiðslu og um 1,8% í Noregi. Ef hlutföllin eru yfirfærð á Ísland gæti kostnaðurinn numið um 17 til 19 milljörðum króna á ári. Einnig er bent á að auk þess þurfi að hafa í huga að umsvif varnarliðs- ins hafi skapað óbeinar tekjur fyrir hagkerfið, til að mynda hjá fyrir- tækjum í verslun og þjónustu. Auk þess hafa Bandaríkjamenn veitt Ís- lendingum aðra þjónustu sem hefði annars kostað íslenska ríkið tals- verða fjármuni. Undir það falla m.a. björgunarstörf. Landhelgisgæslan hefur lýst því yfir að hún þurfi á að halda tveimur flugvélum, þremur þyrlum og á fimmta tug manna til að manna þær. Þrátt fyrir það ætti brotthvarfið að hafa óveruleg áhrif á þróun viðskiptajafnaðar. „Vera varnarliðsins hefur í gegn- um tíðina haft jákvæð áhrif á við- skiptajöfnuð á Íslandi og skapað talsvert innflæði fjármagns. Sam- kvæmt tölum frá Seðlabanka Ís- lands voru tekjur af varnarliðinu í fyrra 8,2 milljarðar eða um 2,3% af útflutningstekjum og 0,8% af vergri landsframleiðslu. Í ljósi þess ætti brotthvarf varnarliðsins að hafa óveruleg áhrif á þróun viðskipta- jafnaðar.“ Mat greiningardeildar KB banka Kostnaður við varnir gæti numið 17 til 19 milljörðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.