Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í MARS „VIÐ tókum við hótelinu í apríl 2003, breyttum nafninu í Hótel Hekla og opnuðum það formlega undir því nafni í september sama ár,“ segir Sigrún Hauksdóttir sem ásamt eiginmanni sínum, Jóni Þorsteini Hjartarsyni, rek- ur Hótel Heklu á Skeið- um í Árnessýslu. „Við erum í sam- tökum Ferðaþjón- ustu bænda en er- um ekki ferða- þjónustubær heldur hótel því við erum af þeirri stærðar- gráðu. Við erum með þrjátíu og sjö herbergi og rekum veitingahús sem er opið allan ársins hring.“ Sigrún segir matseðilinn vera breytilegan frá degi til dags og fara eftir því hráefni sem þau eiga best þann daginn. „Við leggjum mikið upp úr fiski bæði í forrétt og aðal- rétt og svo auðvitað bjóðum við líka upp á sunnlenskt kjöt en við notum eins mikið af íslensku hráefni og við getum. Meðal annars höfum við lát- ið rækta fyrir okkur mjólkurkálfa og mjólkurgrísi og er það kjöt mjög vinsælt af matseðlinum.“ Finnskir kokkanemar Hótel Hekla er með samning við Háskóla í Finnlandi sem sendir til þeirra nemendur í starfsnám. „Núna erum við með tvo finnska kokkanema. Nemendurnir sem koma eru yfirleitt búnir með tveggja ára bóknám og koma svo hingað um þrjá mánuði í starfsnám. Við fáum líka þjónanema og nema í hótelmóttöku. Ég hef verið með krakka úr þessum háskóla og þetta hefur verð mjög skemmtilegt sam- starf. Það er gaman að fá þeirra hug- myndir og anda hingað inn og við lærum ýmislegt nýtt af þeim.“ Sigrún segir heil- mikið vera að gera hjá þeim yfir vetr- artímann. „Það er mikið um að deildir innan fyr- irtækja og heilu fyrirtækin komi hingað enda erum við með góða fundaraðstöðu og hópeflisgarð. Við erum aðeins 70 km frá Reykja- vík og passlega langt frá Ameríku og Evrópu svo við fáum líka svolítið af alþjóðlegum fundum. Ferða- mennirnir eru nú byrjaðir að koma og verða okkur helstu viðskiptavinir frá maí fram í september,“ segir Sigrún. Að lokum gefur hún les- endum uppskrift að túnfiskforrétti sem Hótel Hekla býður upp á og er virkilega vinsæll þar á bæ.  MATUR | Veitingahús Hótel Heklu á Skeiðum er opið allan ársins hring og býður upp á breytilegan matseðil Grillaður túnfiskur vinsæll Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Heimasíða Hótel Heklu er: www.hotelhekla.is Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Tveir finnskir kokkanemar, sem nú dvelja á Hótel Heklu, og Sigrún Hauksdóttir, eig- andi og hótelstýra, ásamt túnfiskréttinum sem þykir einstaklega bragðgóður. Grillaður túnfiskur með sætri sinnepssósu (Forréttur) Um 120 g túnfiskfilet á mann. Fiskurinn er maríneraður í eft- irfarandi chilí, ferskum engifer, hvítlauk, soju, tómatþykkni, hunangi, salti og pipar. Látið liggja í maríneringu í 1 klst. Túnfiskurinn er grillaður á grillpönnu í um 10 sekúndur á hvorri hlið. Lime tekið áður, skorið í tvennt og sárið sett á pönnuna augnablik. Stungið á prjón með léttgrill- aðri papriku í tveimur litum sínum hvorum megin. Sæt dijon-dressing: Dijon-sinnep og hunang bragðað til í hlutföllunum: 2/3 sinnep á móti 1/3 hun- angi. Borið fram á salatbeði úr blönduðu salati með sinneps- dressingunni og lime-inu sem er svo kreist yfir Ferskum kóríander stráð yfir. ORGANISTINN, kórstjórinn og tón- fræðikennarinn Krisztina Kalló Szklenár kom fyrst til Íslands fyrir rúmum hálfum öðrum áratug þegar hún og ungverskur eiginmaður hennar Zoltán Szklenár, sem er hornaleikari og stjórnar Skólahljómsveit Grafarvogs, sett- ust að á Hólmavík þar sem Krisztina gerðist tónskólastjóri og kirkjukórsstjórnandi í þrjú ár. „Eftir nám okkar heima í Ungverjalandi skrifuðum við út um allan heim og ákváðum að nú væri kominn tími til að freista gæfunnar. Við vorum í ævintýraleit og drifum okkur eftir þó nokkra umhugsun til Íslands. Við sjáum svo sannarlega ekki eftir því. Hér er mjög gott að búa,“ segir Krisztina í samtali við Daglegt líf sem fregnaði á dögunum af heljarinnar veislu, sem Krisztina stóð fyrir. Gúllassúpa fyrir tvo kóra Hún bjó til ungverska gúllassúpu í miklu magni fyrir tvo af fimm kórum, sem hún stjórnar. Í veislunni góðu lentu Kirkjukór Ár- bæjarsóknar og Gospelkór Árbæjarkirkju auk sóknarnefndarinnar. Og svo var það hlutverk kórmeðlima að standa fyrir alls konar uppá- komum, sjálfum sér og öðrum til skemmtunar. „Ungversk gúllassúpa er einskonar þjóð- arréttur í Ungverjalandi, en það er nauðsyn- legt að matbúa hana rétt. Ég hnaut t.d. einu sinni um uppskrift í íslensku dagblaði af ein- hverju, sem kallað var ungversk gúllassúpa, en sú uppskrift stóð ekki undir nafni. Krisztina gefur lesendum því lesendum hér með uppskrift að „ekta“ gúllassúpu. Mismun- andi er hvort menn noti svína- eða nautakjöt í súpuna. Flottara og heilsusamlegra finnst henni að nota nautakjötið, en það sé auðvitað heldur dýrara en svínakjötið. Auk þess að vera organisti og stjórnandi tveggja kóra í Árbænum, stjórnar Krisztina Átthagakór Strandamanna, Esso-kórnum og Sönghópi prestanna, sem eins og nafnið gefur til kynna, samanstendur af séra Jónum ein- göngu. Eftir þriggja ára veru í Hólmavík sneru þau hjón aftur til heimalandsins þar sem þau dvöldu í fjögur ár og Krisztina kenndi við Tón- listarháskólann. Þau komu síðan aftur til Íslands árið 1997 og settust þá að í Vík í Mýrdal í fimm ár. Þar gerð- ist Krisztina organisti og tónskólastjóri. Til Reykjavíkur fluttust þau árið 2002 og segjast una hag sínum vel í höfuðborginni. „Ég er bara svo þakklát fyrir að hafa komið til Íslands og fengið að kynnast Íslendingum og íslenskri menningu. Héðan eigum við svo sannarlega margar góðar minningar. Í ofanálag hef ég verið mjög heppin í lífinu og fengið spennandi og gefandi störf á lífsleiðinni. Englarnir hljóta að vaka yfir mér,“ segir Krisztina, sem er frá bænum Györ í Vestur-Ungverjalandi, rétt hjá austurrísku landamærunum. Í haust stendur til ferðalag með Gospelkór Árbæjarkirkju á heimaslóðir Krisztinu, en í fyrrasumar fór Kirkjukórinn á sömu slóðir og söng fyrir heimamenn við góðar undirtektir. Uppskriftin, sem hér fer á eftir, er fyrir sex til átta manns. Mátulegt er að nota tíu lítra pott og tekur matseldin um hálfan annan tíma. Ungversk gúllassúpa 500 g nauta- eða svínakjöt eða blanda af hvorutveggja, skorið í teninga. 3–4 gulrætur, skornar í teninga 500 g kartöflur, flysjaðar, hreinsaðar og skorn- ar í teninga 1 stór laukur, saxaður salt eftir smekk 2 tsk paprikuduft 2 msk matarolía 1 lárviðarlauf ½ paprika, rauð eða græn 1 stór tómatur, sem settur er út í súpuna í heilu og svo veiddur upp þegar súpan er tilbúin Laukurinn er saxaður niður og steiktur í matarolíunni í potti þar til hann verður mjúk- ur. Kjötið ásamt paprikuduftinu er sett út í og steikt við vægan hita í nokkrar mínútur. Salti bætt út í og um það bil hálfur lítri af vatni. Þeg- ar kjötið byrjar að mýkjast, er potturinn fyllt- ur með vatni og gulrótunum, lárviðarlaufi, tóm- ati og papriku bætt út í. Þegar gulræturnar eru að verða mjúkar er kartöflunum bætt út í og þetta soðið við vægan hita þar til allt verður mjúkt.  MATARKISTAN | Ungversk gúllassúpa að hætti ungverska kórstjórans Krisztinu Kalló Szklenár Súpan mýkir upp söngraddirnar Ungverska gúllassúpan inniheldur m.a. nautakjöt, kartöflur, gulrætur og lauk. Morgunblaðið/Ásdís Það er misjafnt hvort notað er svínakjöt eða nautakjöt í súpuna í Ungverjalandi. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.