Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 34

Morgunblaðið - 17.03.2006, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Geir H. Haarde utanríkisráð-herra flutti Alþingi skýrslu ígær í kjölfar ákvörðunarBandaríkjastjórnar um að færa orrustuþotur og þyrlur frá Kefla- víkurflugvelli. Geir sagði að fram hefði komið í viðræðum íslenskra stjórnvalda við fulltrúa Bandaríkjastjórnar að Bandaríkjastjórn teldi Íslendinga hafa lagt fram mikilsverðar tillögur á fundi fulltrúa þjóðanna í síðasta mánuði og að þeir mætu þessar hugmyndir, en tillög- urnar voru um að Íslendingar myndu greiða kostnað við rekstur Keflavíkur- flugvallar og vegna björgunarþjónustu varnarliðsins. „Hins vegar valdi breyttar aðstæður í öryggismálum á N-Atlantshafi og mikið álag á bandaríska herinn í öðrum heims- hlutum og þörf fyrir búnað og mannskap þar því að ákveðið hafi verið að gera um- ræddar breytingar í Keflavíkurstöð- inni,“ sagði Geir. Geir rakti gang viðræðna við Banda- ríkjastjórn, en í þeim hefðu íslensk stjórnvöld lagt áherslu á að hér yrðu áfram sýnilegar varnir. Tillögurnar fólu í sér að Íslendingar myndu greiða allan kostnað vegna snjómoksturs og slökkvi- liðs á Keflavíkurflugvelli og búnaðar vegna flugumferðarstjórnar. Tillögur Íslands gerðu einnig ráð fyrir að við myndum í haust greiða helming kostn- aðar vegna viðhalds á flugbrautum og allan kostnað vegna þessara þátta frá og með haust 2008. Þá fólst í tillögunum að Ísland myndi frá 2008 greiða allan kostnað við rekstur björgunarþyrlu- sveitarinnar. Gert var ráð fyrir þeim möguleika að við myndum kaupa nýjar þyrlur af sölukerfi Bandaríkjahers og sækja þangað alla viðhaldsþjónustu. „Heildarkostnaður vegna þessa alls og áðurnefndra tillagna gæti numið 1,5-2 milljörðum á ári. Það yrði til við- bótar nokkur hundruð milljónum sem við greiðum árlega vegna starfseminnar á Keflavíkurflugvelli,“ sagði Geir. Geir sagði að sú niðurstaða sem nú lægi fyrir, að varnarliðið færi með þot- urnar og þyrlurnar, fæli í sér að „mannafli á vegum varnarliðsins verður væntanlega mjög lítill“. Geir sagði að í tilkynningu Banda- ríkjastjórnar hefði sérstaklega verið tekið fram að verið væri að binda enda á fasta viðveru orrustuþotna á Keflavík- urflugvelli. Jafnframt var lagt til að fulltrúar landanna hittust sem fyrst til að ræða með hvaða öðrum hætti Banda- ríkin gætu staðið við skuldbindingar sín- ar samkvæmt varnarsamningnum. „Það á eftir að koma í ljós í viðræðum land- anna hvort þetta er gerlegt.“ Geir sagði að í viðræðunum yrði rætt sérstaklega um nánara samstarf um varnir gegn hryðjuverkum og alþjóð- legri glæpastarfsemi. „Það hefur legið fyrir um árabil að í Bandaríkjastjórn væri vilji til að flytja orrustuvélarnar þangað sem meiri þörf væri fyrir þær en bjóða í staðinn upp á varnarviðbúnað af öðru tagi sem þjónaði betur breyttum aðstæðum og nýjum tímum. Verkefnið framundan er þess vegna að freista þess að ná samningum um slík atriði og það sem fyrst. Ella verður gildi varnarsamningsins frá 1951 lítið sem ekkert.“ Formenn Sjálfstæðisflokksins náðu engum árangri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað- ur Samfylkingar, sagði að sú niðurstaða sem nú lægi fyrir þyrfti ekki að koma á óvart því að N-Atlantshafið væri örugg- asti hluti heimsins í dag. Það væru for- réttindi að búa í þessum heimshluta. „Ég hlýt að lýsa ánægju minni með að það skuli loksins komin niðurstaða í 11 ára samningaþóf sem leitt hefur verið af formönnum Sjálfstæðisflokksins. Fyrst fyrrverandi forsætis- og utanríkisráð- herra og, síðan hann hætti, núverandi utanríkisráðherra. Niðurstaðan liggur fyrir; árangurinn e af stað í leiðangur, sem þeir ætluðu sé unarreit. Ástæðan Þeir lögðu upp me farteskinu, röng s ranghugmyndir u vart bandaríska stj Nú hefur það o ríkisstjórnin, undir verið stefnulaust r um.“ Ingibjörg Sólrún gerst í þessum má var við Bandaríki orrustuþotum sem Sjálfstæðisflokkur málum hefur ekk angur náðst. Fory flokksins hafa að v ir til Washingto bandarískum ráðh mönnum. Þeir hafa ina inn í stríðsreks að þeim yrði umb um samningaviðræ eins og þeir einir mál og talið þjóðin andi forsætisráðh tengslum við Bus ríkisráðherra við Þeir ættu leið stjórnkerfinu. Og Enginn, mældur kvarða.“ Ögmundur Jóna sagði að brottför h tímamót. „Þetta fæ að Bandaríkjastjó aldrei haft herlið þjóna eigin hags hentar bandarísku þeir farnir og sýna eisi við íslensk stj ekki annað sagt en um menn sem hafi Framkvæmdastjóri Nató mun ræða var Á eftir að koma í ljó geta staðið við sku Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra átti í gær símtal við Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmda- stjóra NATO, um þá stöðu sem upp er komin í varn- armálum. Hann óskaði eftir að Scheffer ræddi þessi mál á fundi með Georg Bush forseta Bandaríkjanna nk. mánudag. Egill Ólafsson fylgdist með umræðum um varnarmál á Alþingi í gær. Geir H. Haarde og Halldór Ásgrímsson gerðu Alþingi í gær ÖRYGGI HÖFUÐBORGARBÚA Morgunblaðið hefur undanfarnadaga beint spurningum til odd-vita flokkanna, sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík, bæjarstjóra stórra bæja á höfuðborgar- svæðinu og lögreglumanna, í framhaldi af umræðum um þá hættu, sem almenn- um borgurum í höfuðborginni stafar af glæpalýð, sem gerir jafnvel lífshættu- lega atlögu að friðsömu fjölskyldufólki um hábjartan dag. Í svörum bæjarstjóra nágrannabæja Reykjavíkur vekur athygli hversu upp- teknir þeir eru af væntanlegri samein- ingu lögregluembætta á höfuðborgar- svæðinu. Það virðist nefnilega liggja í augum uppi að skipulag lögreglunnar sé aukaatriði í þessu máli. Það er reyndar rétt hjá bæjarstjórunum að nauðsynlegt er að staðarþekking sé fyrir hendi hjá lögreglumönnum og að lögreglan sé sýnileg. En það á alveg jafnt við um ein- stök hverfi innan Reykjavíkur og þess vegna í hverfum innan víðfeðms sveitar- félags á borð við Kópavog eins og um einstök sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu. Hjá sameinuðu lögregluembætti verða menn auðvitað að leggja áherzlu á hverfalöggæzlu hér eftir sem hingað til og jafnvel í enn meiri mæli en áður, enda hefur slíkt fyrirkomulag gefizt vel þar sem það hefur verið reynt. Stærsti kost- urinn við sameiningu lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu er að þannig á að vera hægt að fækka lögreglumönnum, sem sitja á bak við skrifborð, og fjölga lögreglumönnum, sem eru sýnilegir á götunum. Sýnileg, fyrirbyggjandi lög- gæzla hlýtur að vera lykilatriði, vilji menn fækka glæpum og bæta öryggi borgaranna. Í svörum oddvita flokkanna, sem bjóða fram til borgarstjórnarinnar í Reykjavík, er sameiginleg áherzla á for- varnarstarf gegn fíkniefnaneyzlu, glæp- um henni tengdum og öðrum afbrotum. Sú áherzla er nauðsynleg og góðra gjalda verð. Hins vegar hlýtur það að vekja kjós- endur til umhugsunar hversu dræmt – eða jafnvel alls ekki – oddvitarnir taka í að mun harðar verði tekið á fíkniefna- og ofbeldisbrotum með hertum refsingum. Ástandið á höfuðborgarsvæðinu er nefnilega orðið þannig að við það verður ekki unað. Fólk getur hvorki verið öruggt um líf sitt og limi né um eigur sínar vegna glæpalýðsins, sem veður uppi. Að sjálfsögðu verður að eiga við orsakir vandans með forvarnarstarfi af ýmsu tagi. En það tekur langan tíma og skilar oft takmörkuðum árangri. Í borgum víða erlendis, þar sem borg- urunum hefur ofboðið hvernig glæpa- menn vaða uppi, hefur tekizt að fækka glæpum til muna á tiltölulega stuttum tíma með samstilltu átaki. Það hefur fyrst og fremst gerzt með tvennu; ann- ars vegar stórauknum sýnileika lögregl- unnar og hins vegar með því að taka mun harðar á afbrotum. Slíkt hefur ekki sízt verið gert með því að auka ítrek- unaráhrif afbrota, jafnvel „minni“ glæpa á borð við innbrot og þjófnað. Brotamenn fá þá kannski tvö tækifæri áður en þeir fá þungan dóm, en ekki það þriðja. Augljós munur er reyndar á afstöð- unni til þyngri refsinga eftir því hvar frambjóðendur eru staddir í hinu póli- tíska litrófi og þarf ekki að koma á óvart. Þannig hefur það líka verið í umræðum um lög og reglu í nágrannalöndum okk- ar. Oddvitar Samfylkingar og Vinstri grænna, þau Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir, eru augljóslega frábitnir slíkum aðferðum. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna, segir hins vegar að senda verði skýr skilaboð til þeirra, sem gerist jafnvel ítrekað brotlegir. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, vill ekki útiloka þyngdar refsingar fyrir ofbeldisbrot. Ólafur F. Magnússon, odd- viti Frjálslyndra, tekur í sama streng. Þótt löggæzlu- og dómsmál séu á for- ræði ríkisins hljóta frambjóðendur til borgarstjórnarkosninganna, sem fram- undan eru, að hafa á þeim skoðun, því að hér er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir borgarbúa. Kjósendur munu taka eftir því hvar flokkarnir standa í þessum efnum. BJÖRT FRAMTÍÐ SKÁKLISTAR Það verður að teljast fátítt að húrra-hróp og klapp heyrist í Ráðhúsi Reykjavíkur. En bandaríski stórmeist- arinn Maurice Ashley á heldur ekki sæti í borgarstjórn. Þá væri áreiðanlega meira um fagnaðarlæti á þeim vett- vangi. Ógleymanlegt var fyrir skákáhuga- menn að fylgjast með skákskýringum Ashleys á rauntíma á Glitnismótinu í gær, s.s. á sigrum Magnúsar Carlsens á heimsmeistaranum í hraðskák, Visw- anathan Anand, og á því þegar Norð- maðurinn ungi mátaði ísraelska stór- meistarann Sergey Erenburg með aðeins sekúndu eftir á klukkunni. Þá var frækileg frammistaða stórmeistar- ans Hannesar Hlífars Stefánssonar í mótinu ánægjuleg, en það var ekki fyrr en í úrslitaeinvígi gegn Carlsen að hann varð að játa sig sigraðan. Sjaldan hefur legið jafnljóst fyrir af hverju skák hefur svona sterka skír- skotun meðal Íslendinga. Skák er skemmtileg! Og það var vel til fundið að yfirskrift Skákhátíðarinnar væri „Skákin brúar bil“. Það leyndi sér ekki á fyrri degi hraðskákmótsins, sem haldið var til minningar um Harald Blöndal hæsta- réttarlögmann. Tæplega tvö hundruð manns skráðu sig til leiks, fólk á öllum aldri, af báðum kynjum, ólíkum trúar- brögðum og af yfir 40 þjóðernum. Tefld- ar voru leiftrandi skákir þar sem treyst var á innsæi og eðlisgáfu og leikirnir ekki alltaf fyrirséðir eða kórréttir, en stemmningin því meiri. Einmitt þannig lifir Haraldur Blöndal í minningunni. Og skákin brúar bil. Skákin er tungumál sem allir geta lært á örskömmum tíma, sagði Guðfríð- ur Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksam- bands Íslands, í viðtali í Morgunblaðinu. „Í hverri skák eiga sér stað ákveðnar samræður milli keppenda, sem þurfa að læra inn á þankagang hvor annars. Vegna þess að skákin er tjáningarform sem allir geta tileinkað sér hentar hún einkar vel til að brúa bilið milli ólíkra hópa.“ Ekkert bendir til annars en að fram- tíð skáklistarinnar sé björt hér á landi. Orðið hefur mikil vakning og það kom berlega í ljós á Reykjavíkurskákmótinu að fjölmargir ungir íslenskir skákmenn eru að hasla sér völl. Mikilvægt er fyrir þessa ungu skákmenn að fá tækifæri til að spreyta sig á alþjóðlegum stórmótum sem þessu. Hér fer á eftir meginmál varnarsamningsÍslands og Bandaríkjanna frá 5. maí1951. „Þar sem Íslendingar geta ekki sjálf- ir varið land sitt, en reynslan hefur sýnt að varn- arleysi lands stofnar öryggi þess sjálfs og friðsamra nágranna þess í voða, og þar sem tvísýnt er um al- þjóðamál, hefur Norður-Atlantshafsbandalagið far- ið þess á leit við Ísland og Bandaríkin að þau geri ráðstafanir til að látin verði í té aðstaða á Íslandi til varnar landinu og þar með einnig til varnar svæði því sem Norður-Atlantshafssamningurinn tekur til með sameiginlega viðleitni aðila Norður-Atlants- hafssamningsins til að varðveita frið og öryggi á því svæði fyrir augum. Samningur sá, sem hér fer á eft- ir, hefur verið gerður samkvæmt þessum tilmælum. 1. gr. Bandaríkin munu fyrir hönd Norður- Atlantshafsbandalagsins og samkvæmt skuldbind- ingum þeim, sem þau hafa tekist á hendur með Norður-Atlantshafssamningnum, gera ráðstafanir til varnar Íslandi með þeim skilyrðum, sem greinir í samningi þessum. Í þessu skyni og með varnir á svæði því sem Norður-Atlantshafssamningurinn tekur til fyrir augum lætur Ísland í té þá aðstöðu í landinu sem báðir aðilar eru ásáttir um að sé nauð- synleg. 2. gr. Ísland mun afla heimildar á landsvæðum og gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að í té verði látin aðstaða sú sem veitt er með samningi þessum og ber Bandaríkjunum eigi skylda til að greiða Íslandi, íslenskum þegnum eða öðrum mönnum gjald fyrir það. 3. gr. Það skal vera háð samþykki Íslands, hverr- ar þjóðar menn eru í varnarliðinu, svo og með hverjum hætti það tekur við og hagnýtir þá aðstöðu á Íslandi sem veitt er með samningi þessum. 4. gr. Það skal háð samþykki íslensku ríkisstjórn- arinnar hversu margir menn hafa setu á Íslandi samkvæmt samningi þessum. 5. gr. Bandaríkin skulu framkvæma skyldur sín- ar samkvæmt samningi þessum þannig að stuðlað sé svo sem frekast má verða að öryggi íslensku Varnarsamningurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.