Morgunblaðið - 17.03.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 41
MINNINGAR
✝ Sólon Lárusson,kennari og járn-
smiður, fæddist í
Hafnarfirði 7. apríl
1915. Hann andaðist
á Hrafnistu í Reykja-
vík 9. mars síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Petrón-
ella Magnúsdóttir
húsmóðir, f. 29.11.
1889, d. 18.6. 1948,
og Lárus Bjarnason
skútuskipstjóri, f.
9.8. 1875, d. 1917.
Sólon kvæntist
13.6. 1936 Sigurbjörgu Gísladótt-
ur, f. 23.9. 1916, d. 19.10. 1992. Hún
var dóttir hjónanna Gísla Jóhanns-
sonar, verslunarmanns í Reykja-
vík, og Margrétar Sigurðardóttur.
Börn Sólons og Sigurbjargar eru:
1) Ragnar Lárus, fyrrverandi aðal-
varðstjóri í Slökkviliði Reykjavík-
ur, f. 6.3. 1938, kvæntur Louisu
Sampsted hárgreiðslumeistara og
eiga þau fjögur börn; 2) Gísli Grét-
ar, pípulagnameistari í Kópavogi,
f. 6.3. 1942, kvæntur Guðrúnu
Árnadóttur og eiga þau þrjá syni;
3) Nella húsmóðir, f. 6.3. 1942, gift
Floyd Beatty tölvufræðingi; 4) Ein-
ar bifvélavirki, f. 16.10. 1954, var
kvæntur Katrínu Hallgímsdóttur
lyfjatækni, þau eiga
tvö börn, þau skildu;
5) Theodór Júlíus,
húsasmíðameistari í
Reykjavík, f. 16.10.
1954, var kvæntur
Elínu Haraldsdóttur
kennara, þau eiga
þrjú börn, þau
skildu.
Sólon lauk sveins-
prófi í járnsmíði við
Iðnskólann í Reykja-
vík 1934 og öðlaðist
meistararéttindi í
iðninni 1941. Hann
stundaði nám í uppeldis- og
kennslufræði við KHÍ 1975–76 og
lauk því prófi 1976, auk þess sem
hann stundaði ýmis námskeið í sín-
um kennslugreinum hér á landi og
annars staðar á Norðurlöndunum.
Sólon stundaði járnsmíði við
Landsmiðjuna í Reykjavík 1937–
1953, rak vélsmiðju í Reykjavík
ásamt öðrum 1953–1964 og kenndi
við Iðnskólann í Reykjavík 1964–
1986. Hann sat í trúnaðarráði Fé-
lags járniðnaðarmanna á árunum
1940–50 og var trúnaðarmaður á
vinnustað á sama tíma.
Útför Sólons verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Mig langar að minnast afa míns og
nafna með örfáum orðum.
Mínar fyrstu minningar um Sólon
afa eru frá því ég er um 5 ára gamall.
Á þessum árum átti hann Ford
Bronco jeppa og það var mjög spenn-
andi fyrir lítinn afastrák að fá að fara í
bíltúr á rauða jeppanum með afa. Ég
var þá í dagpössun hjá ömmu og afa í
Hjallabrekku.
En hann afi var alltaf að vinna,
enda var hann í fyrirtækjarekstri, rak
og átti vélsmiðju í mörg ár á sínum
yngri árum og fór svo í framhaldi af
því að kenna við Iðnskólann í Reykja-
vík. Afi var af gamla skólanum, hann
vann mikið og átti stóra fjölskyldu
eða fimm börn og þar af tvenna tví-
bura sem öll komust vel til manns.
Sólon afi hafði margar sögur að
segja, sem dæmi má nefna sagði hann
mér frá því þegar hann hjólaði í
Stykkishólm árið 1930 á reiðhjóli en
þangað var langur og holóttur vegur í
þá daga. Síðan minnist ég sögu þar
sem hann ásamt góðum ferðafélaga
hjólaði austur í Fljótshlíð frá Reykja-
vík og til baka um helgi en ferðafélagi
hans átti þaðan rætur að rekja.
Á síðari árum bar flugið oft á góma
í samtölum okkar enda minntist afi
oft á það þegar hann var að vinna út á
Reykjarvíkurvelli í kringum 1937–39
og hann fór í sitt fyrsta flug, ekki man
ég hver flugmaðurinn var en flugvélin
var lítil tvíþekja og flugtúrinn var
suður yfir Arnarnesið og til baka aft-
ur, þetta var ógleymanlegt fyrir hann
sem ungan mann í þá daga.
Ekki ber að gleyma að minnast á
það þegar hann ásamt Pétri vini sín-
um fór frá Landmannalaugum yfir í
Þórsmörk, Laugaveginn svokallaðan,
sextíu og sex ára gamall með allt of
þungan bakpoka, en þetta fór hann
eins og ekkert væri og var þar ekki
eftirbátur þeirra sem yngri voru, til
marks um þrek afa fór hann upp á
Valahnúk daginn eftir að í Þórsmörk
var komið. Því miður voru hnén hans
orðin lúin á efri árum afa og gat hann
þar af leiðandi ekki gengið eins mikið
og hann hefði viljað.
Eftir að afi hætti að vinna var hann
mikið á ferðinni um borgina og oftar
en ekki lá leiðin austur fyrir fjall með
aldraðar frænkur í kaffi í Eden í
Hveragerði og eins í kaffi til afkom-
enda sinna, höfðu sumar tengda-
dætra hans orð á því að hann færi
heldur hratt yfir en hann nefndi sér
þá til málsbótar að hann hefði ekki
lent í óhappi í 30 ár og það viðhélst
þangað til hann hætti að keyra fyrir
um 5 árum. Man ég eftir því þegar
hann sagði mér rúmlega 70 ára frá því
að bílinn væri svo stífbónaður hjá sér
að ef hann myndi þvo hann í Reykja-
vík og síðan halda um 100 km hraða
heim í Kópavoginn þá væri hann orð-
in þurr er þangað væri komið og tilbú-
inn fyrir bílskúrinn, svona var afi ung-
ur í anda.
Síðustu ár ævinnar bjó afi á Dval-
arheimilinu Hrafnistu þar hittumst
við reglulega og var hann mjög
áhugasamur að vita hvar í heiminum
ég hefði verið að fljúga síðast og hvað
á daga mína hefði drifið. Því miður
átti afi orðið erfitt með að tjá sig á síð-
ustu mánuðunum og því var oft um
eintal að ræða þar sem ég fór yfir það
sem var að gerast í mínu lífi og sagði
honum fréttir af fjölskyldunni, hann
skaut þó inn orði og orði sem gaf
manni vissu um að hann fylgdist vel
með því sem ég sagði frá.
En núna er hann afi minn allur og
ég trúi því að hann og amma séu sam-
an á ný eftir langan viðskilnað.
Tíminn líður furðu fljótt,
fölna hár á vanga,
söngvar þagna, nálgast nótt,
nóttin hljóða langa.
Ljósið dvín og lokast brá,
lætur vel í eyrum þá
ómur æsku söngva.
(Fr. G.)
Takk fyrir samveruna elsku afi
minn. Guð varðveiti þig.
Sólon Lárus Ragnarsson.
SÓLON
LÁRUSSON
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför ástkæru dóttur okkar,
systur, mágkonu og frænku,
BÁRU SIGNÝJAR SIGURVINSDÓTTUR,
Fjarðarstræti 55,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk í Fjarðarstræti
55, starfsfólk í Hæfingarstöðinni Hvestu og starfs-
fólk Svæðisskrifstofu fatlaðra á Vestfjörðum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurvin Magnússon, Guðný Guðmundsdóttir,
Unnur Sigurvinsdóttir, Paul Fawcett,
Margrét Sigurvinsdóttir, Ragnar Sigurðsson,
Þórður Sigurvinsson, Þórey M. Ólafsdóttir,
Þorleifur Sigurvinsson, Arnheiður Svanbergsdóttir
og frændsystkin.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGTRYGGUR JÓSEFSSON,
Breiðumýri,
verður jarðsettur frá Einarsstaðakirkju laugar-
daginn 18. mars kl. 14.00.
Björg Arnþórsdóttir,
Jósef Rúnar Sigtryggsson, Margrét Haraldardóttir,
Friðgeir Sigtryggsson,
Gerður Sigtryggsdóttir,
Þórunn Sigtryggsdóttir, Gísli Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HREINS ÞORVALDSSONAR,
Skagfirðingabraut 49,
Sauðárkróki.
Guðrún Þrúður Vagnsdóttir,
Þorvaldur Leifur Hreinsson, Liz Hreinsson,
Birgir Örn Hreinsson,
Auður Sigríður Hreinsdóttir, Bjarni Már Bjarnason,
Halldís Hulda Hreinsdóttir, Rúnar Þór Jónsson,
Friðrik Hreinn Hreinsson, Ástrós Guðmundsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GRÓU BJARNEYJAR HELGADÓTTUR,
Skúlagötu 20.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Heima-
hlynningar og líknardeildar Landspítalans í Kópa-
vogi, fyrir þeirra vináttu og hlýhug.
Sigrún Þorláksdóttir,
María Þorláksdóttir, Þór Jóhannsson,
Sigurjón Þorláksson, Svanfríður Magnúsdóttir,
Gunnar Þorláksson, Kristín Eyjólfsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Lokað
Lokað í dag, föstudaginn 17. mars, frá kl. 12 á hádegi vegna
jarðarfarar GUÐBJARGAR FRIÐRIKSDÓTTUR.
Friðrik A. Jónsson ehf.,
Eyjarslóð 7, 101 Reykjavík.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
HALLDÓRA ÁRNADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
13. mars.
Útför hennar verður frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 21. mars klukkan 14.00.
Hörður Bergmann, Dórothea S. Einarsdóttir,
Árni Bergmann, Lena Bergmann,
Stefán Bergmann, Helga Hrönn Þórhallsdóttir,
Jóhann Bergmann, María J. Gunnarsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og ástvinur,
JÓNAS JÓNASSON
fyrrum starfsmaður Flugleiða,
Skólavörðustíg 46,
Reykjavík,
lést af slysförum á Kanaríeyjum mánudaginn
13. mars sl. Jarðarför auglýst síðar.
Magnea Jónasdóttir, Davíð Vikarsson,
Daði Vikar Davíðsson,
Bryndís Davíðsdóttir,
Sigrún Jónasdóttir, Júlíus Schopka,
Dagbjört Gunnarsdóttir,
Hjörtur Gunnarsson,
Hafsteinn Þór Gunnarsson,
Bryndís Helga Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HERDÍSAR BJÖRNSDÓTTUR,
Varmalæk,
Skagafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Lovísa Sveinsdóttir,
Björn Sveinsson, Magnea K. Guðmundsdóttir,
Gísli Sveinsson, Ásta B. Ólafsdóttir,
Sigríður Sveinsdóttir, Smári Borgarsson,
Ólafur Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ INGVELDUR BENEDIKTSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðju-
daginn 14. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sivert Bjarni Sætran, Steinunn Stefánsdóttir,
Arndís Sigurlaug Guðmundsdóttir, Erlingur Hauksson,
Guttormur Skagfjörð Guðmundsson,
Sigurbjörg Alda Guðmundsdóttir, Ómar Örn Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar